Búnaðarrit - 01.01.1952, Blaðsíða 233
B Ú N A Ð A R R I T
231
á skrifstofunni og utan hennar, og vcrður þá Ijóst,
að l'cngsælastir verða þeir bændurnir, seni bezta hafa
aðstöðuna til að fylgja sínum málum sjálfum eftir,
og reynist þó sumum vel að fela umboðsmönnum mál-
efni sín. Að öðrum kosti takast varla ráðningar.
Það þarf varla að taka fram um verkafólkið, sem
í framboði er, að það er nærri allt úr Reykjavík. Nokk-
ur framboð koma úr Hafnarfirði og af Reykjanesi, en
aðeins örfá annars staðar að.
Ráðningastofan hefur ekki afskipti af samningum
um kaup og kjör, þótt bún gefi að vísu nokkrar upp-
lýsingar í því efni, þegar tilefni gefst. Einhver bækkun
mun nú hafa orðið á kaupgreiðslum frá því, sem
verið hefur, en þó ekki að því skapi, sem nemur
hækkun á kaupgjaldsvísitölu.
Á töflunum hér á eftir er gert nokkurt yfirlit og sam-
anburður varðandi starfsemi ráðningastofunnar og
árangur af henni 5 s. 1. ár.
Tafla V sýnir fyrst tölu skráðra bænda ár hvert.
Þá sýnir hún framboð og eftirspurn, flokkað og sam-
talið, hvort í sínu lagi. Og loks sýnir hún, hvernig
framboð og eftirspurn ber að mánaðarlega. Koma þar
eðliiega fram sömu samtölur sem við flokkun verka-
fólksins.
Taflan sýnir, að það, sem ráðningastofan hefur til
„umsetningar“ á háðar hliðar, fer vaxandi ár lrá ári
á þcssu tímabili, með þeirri einu undantekningu þó,
að eftirspurnin cr lílið eitt minni 1948 cn 1947, og
kemur það fram á fullorðna fólkinu. Hún sýnir, að
flest er af konum, bæði í framboði, en þó einkum í
■eftirspurn, og væri því aldrei liægt að fullnægja eftir-
spurn eftir konum, jafnvel þótt hægt væri að ráða
allar konur, sem í framhoði eru, en því fer fjarri, að
það takist. Að undanskildu árinu 1947 hefur framboð
karla verið meira en eftirspurnin, einkum síðustu 2