Búnaðarrit - 01.01.1952, Blaðsíða 290
288
i
BÚNADARRIT
ár hafa verið notuð mörg naut af Kiuftakyni, og er
þeirra merkust Skuggi frá Kiufluin, sem Diðrik á
Kanastöðum flutti þangað. Nú hefur verið söðlað um,
og eru nú í vetur 4 naut austan úr Mýrdal og undan
Eyjafjöllum, og er þar fyrstan að telja Bíld frá Eyjar-
hólum, sem félagið leigir af nautgriparæktarsamband-
inu. Ég hef þá trú, að vænta megi, að fram komi álit-
legir kynbótagripir í Nf. Djúpárhrepps, ef það tekst
að bæta svo mikið meðferð kúnna, að ]iær njóti sín
fyllilega, og ekki komi afturkippur í skýrsluhaldið.
12. Nf. Búbót, Ásahreppi, Rangárvallasýslu. Þetta
félag hefur slarfað í 4 deildum fram að þessu, og hafa
þær haft lítið samstarf. Nú hefur sú breyling á orðið,
að þær hafa tekið upp hið þýðingarmikla samstarf að
skiptast á um nautin. í félaginu eru margir áhuga-
samir menn, og má segja, að nokkur kynbótaárangur
sjáist. Þó eru kýrnar of fitulágar, og ennþá vantar
allan heildarblæ á starfsemina.
13. Nf. Holtalirepps, Rangárvallasýslu. Þetta félag
hefur verið í öldudal. Það á gott starf að baki og nokkr-
ar býsna athyglisverðar kýr. En á síðari árum hefur
það heldur liðast í sundur, og nú siðast hafa deildirnar
slitið með sér samstarfi um nautahaldið. Ég vona, að
félagið beri gæfu lil þess að hefja, áður en langt um
líður, markvissa baráttu fyrir auknu samstarfi, en
það er undirstaðan að öllum varanlegum framgangi í
kynbótum.
14. Nf. Landmannahrepps, Rangárvallasýslu. Hér er
ungt félag, aðeins þriggja ára. Árangur þvi lítill enn
sem komið er. En hér eru góð skilyrði til nautgripa-
ræktar. Ef félagatalan tvöfaldaðist, þá færi að verða
talsverðar líkur fyrir örum kynbótum.
15. Nf. Villingaholtshr., Árnessýslu. Hér cr enginn
samstæður kynstofn, enda starfar félagið, sem er
fámennl i stórri sveit, í mörgum deildum án raun-
hæfs samstarfs. Aðalgallinn á kúnum i þessu félagi