Búnaðarrit - 01.01.1952, Blaðsíða 164
162
BÚNAÐARRIT
I. verðlaun fyrir afkvæmi. í Búnaðarritinu, 64. árg.,
bls. 234—235, er gefin ællartala Fífils ásamt lýsingu
á afkvæmum hans, er sýnd voru með honurn 1949, og
vísast til Jiess. Tafla 1 B sýnir, að afkvæmi Fífils eru
nú með afbrigðum væn og hafa mjög útlögugóðan
brjóstkassa.
Hjalti Gestsson segir um afkvæmi Fífils: „Þau eru
fram úr skarandi glæsileg og væn, bringan vel fram-
setl og ágællega breið, sérstaklega aftur, brjóstið ágæt-
lega þanið og bakið mjög breitt, en Iærvöðvar tæplega
nógu stinnnir og ná ekki eins vel niður á hækilinn
eins og á afkvæmum Pjakks. Afkvæmin bera með sér
kynfestu.“
Samkvæmt skýrslum fjárræktarfélagsins eru af-
kvæmi Fífils svipuð að vænleika og afkvæmi Pjakks,
en lömbin hafa 0.5% lægri kjötprósentu. Fullorðnu
lirútarnir, synir Fífils, fengu báðir I. veðrlaun.
Fífill hlaut I. verdlaun fyrir aflwæmi sín eins og
194-9.
C. Uggi nr. XXVII, eign Eggerts ólafssonar í Laxár-
dal, var sýndur með afkvæmum 1949. I Búnaðarrit-
inu, 64. árg., bls. 236—237, er ættartala Ugga gefin
ásamt lýsingu af afkvæmum hans þá. Tafla 1 C sýnir,
að afkvæmi Ugga eru geypivæn og standa að því leyti
ekki að baki afkvæmum Fífils og eru enn bakbreiðari.
Hjalti Gestsson lýsir afkvæmum Ugga þannig: „Af-
kvæmi Ugga eru með ágætlega framsetta bringu, ágæt-
lega holdgóð á baki og mölum, lærin þykk og þroska-
mikil. Vænleiki afkvæmanna cr mjög mikill, cn þau
eru dálilið sundurleit, er ber vott um ónóga kynfestu.
Fullorönu hrútarnir, synir Ugga, hlutu báðir I. verðl.
Uggi hlaut I. verðlaun fgrir afkvæmi cins og 1949.
D. Roði nr. XXXVI, eign Gríms Guðbjörnssonar,
Syðra-Álandi, er heimaalinn þar. Ættartala Roða fylg-
ir hér með: