Morgunn - 01.06.1946, Side 20
10
MORGUNN
og kæmi ekki til hugar að gera, en aðeins það eitt, er
snerti hversdagslegar ytri venjur og siði, t. d. éta og
drekka eitthvað það, sem hann vildi ekki snerta við í vök-
unni. En allar slíkar tilraunir mínar hafa staðfest, að dá-
valdinum er ekki unnt að breyta né umturna siðgæðishug-
sjónum hins dásvæfða, þ. e. a. s. rýra siðgæðisþroska hans
eða gera hann léttúðugra mann. En — hins vegar er dá-
valdinum unnt að göfga siðgæðisvitund hans og hefja
hana hærra. Dávaldinum er heldur ekki unnt að uppræta
sanna ást úr lífi karls og konu, en honum er unnt að má
á brott ástríðu- og girndarhneigðir úr lífi þeirra. Honum
er heldur ekki unnt að breyta trúarsannfæringu hins
dásvæfða.
Ung stúlka, sem þekkti til starfsemi minnar, bað mig
að veita sér aðstoð í ástamálum sínum. Hún hafði verið
trúlofuð um skeið, en nú sagði hún mér að unnusti sinn
væri að verða sér fráhverfur ,,og farinn að fella hug til
annarrar stúlku“, svo að ég noti hennar eigin orð. „Reynið
þér nú að dáleiða hann og snúa hug hans aftur til mín“.
Ég sagði henni í fullri hreinskilni, að þetta væri mér ekki
unnt. Mér kom heldur ekki til hugar að maður þessi myndi
fús til að láta gera slíka tilraun. En einhvern veginn hafði
hún mál sitt fram, kom með hann, og bað mig að gera
tilraun. Mér gekk vel að dásvæfa hann, og ég reyndi að
beina tilfinningum hans og hugsun til hinnar fornu unn-
ustu hans og gerði mitt ítrasta, en þegar hann vaknaði
af höfganum hafði engin breyting orðið á viðiiorfi hans.
Ég hafði ekki fengið neinu um þokað með þessum hætti.
Máske er rétt að bæta því við, að hann giftist hinni síðari
og er hjónaband þeirra enn hið farsælasta. En aftur á
móti hefur mér mörgum sinnum tekist að uppræta ástríðu-
og girndarhneigðir úr lífi karla og kvenna, og allar tilraun-
ir í þá átt hafa jafnan borið árangur.
Þetta eru staðreyndir, en orsakir þeirra eða tilefni er
mér ekki unnt að skýra á grundvelli þegar fundinnar þekk-
ingar. Þær virðast hentugar forsendur að frekari rann-