Morgunn - 01.06.1946, Blaðsíða 31
MORGUNN
21
bókinni er ætlunin sú, að sunnudagurinn í dag eigi í sér-
stökum skilningi að leiða hugi mannanna að þessum efn-
um, og þótt hér sé vissulega um svo geysilega víðtækt
rannsóknarsvæði að ræða, að ekki sé meira hægt að gera
en að drepa á fáein atriði og athuga örfáar hliðar, skulum
vér gera þetta að viðfangsefni voru í dag.
Hvað sem líður efunarhyggju mannanna og tregðu þeirra
til að trúa því, sem ekki verður tekið á og sannað í rann-
sóknastofum raunvísindanna, má það vera öllum ljóst,
sem nokkurn snefil hafa af þekkingu á því, hvað heilög
Ritning geymir á blaðsíðum sinum, að hvergi verður hún
svo lengi lesin, að ekki verði fyrir lesandanum spádómar,
og þeir í mörgum myndum og næsta ólíkum. Guðspjallið,
sem lesið var frá altarinu í dag, sýnir oss hina ævafornu
trú, sem Ritningin viðurkennir, á það, að lesa megi spá-
dóma um hið ókomna út úr gangi himintunglanna, og guð-
spjallið, sem lesið var af predikunarstóli, sýnir oss þá trú,
sem einnig er ævafom og Ritningin viðurkennir ennþá
miklu ákveðnara, að menn fái vitneskju um hið ókomna í
draumi og geti þá ójarðneskar verur, engilverur, veitt hin-
um jarðneska viðtakanda þessa merkilegu vitneskju.
Það er svo biblíuleg trú, að fram hjá henni verður engan
veginn komizt, nema með því, að afneita vægðarlaust
rnargendurteknum staðhæfingum hinnar heilögu bókar,
að slíkar vitsmunaverur hafi vakað yfir a. m. k. öllum
böfuðatriðunum í lífi Jesú Krists og starfi, og hafi auk þess
stundum flutt spádóma um ókomna atburði í lífi hans. Oss
verður vitanlega minnisstæðast allt, sem á einhvern hátt
snertir beint hans heilögu persónu, allt, sem á einhvern hátt
kemur hans dýrlega lífi við og bregður ljósi yfir það, já,
það er eins og allt fái fyrir oss sérstakt gildi, sérstaka þýð-
iog, sem í beinu sambandi stendur við hann, en þó má
hitt ekki gleymast, að því er til spádómanna í heilagri
Ritningu kemur, að þeir eru engan veginn einskorðaðir við
hann og líf hans. Minnumst aðeins allra spádómanna í
Gamla testamentinu, og þó einnig nokkurra í hinu nýja,
sem snerta persónu hans ekki.