Morgunn - 01.06.1946, Side 40
30
MORGUNN
daginn eftir, sagði hann mér, að hann vissi allt það, sem
mig hefði dreymt, og þá hafði hann dreymt sama draum-
inn! Við vorum bæði orðlaus af undrun. (Þetta atvik virð-
ist mér harla merkilegt, og merkilegra en flest fyrirbrigði,
sem ég hef lesið um, því að draumum sínum ræður mað-
ur ekki sjálfur, og það má telja mjög furðulegt, að hægt
sé að yfirfæra draum frá einum huga til annars).
1 ágústmánuði í fyrra (1914) var vinur minn einn af
þeim fyrstu, sem kvaddir voru í herinn, sjóherinn. Meðan
hann var að æfingum í Walmer, fór ég til miðils, sem
sagði mér þá, að sex árum áður en við hefðum kynnzt
hefði ég verið astralt- eða andlega sameinuð einhverj-
um manni. Þessi miðill sagði mér furðulega hluti og
hvatti mig til þess, að vera eins og ég gæti í astral-líkama
mínum hjá vini mínum til þess að vernda hann fyrir hætt-
um. Síðan fór vinur minn með flotadeildinni til þess að
verja Antwerpen, það sá ég í blöðunum, og í fimmtán
daga vissi ég ekkert frekara um hann, vissi ekki, hvort
hann væri lífs eða liðinn. En ég beindi allri hugarorku
minni að því, að vera hjá honum í anda, til þess að vemda
hann, ef mögulegt væri. Ég skrifaði honum bréfspjald
og sendi það til Ostend, ef ske kynni, að það bærist hon-
um einhvern veginn, og á það skrifaði ég þessi orð: „Vertu
öruggur". Nokkurum mánuðum síðar skrifaði hann mér,
og í bréfinu sagði hann mér, að þegar verstu ógnirnar
hefðu dunið yfir, og hann hefði verið að því kominn að
gefast upp af þreytu, hungri og af að sjá félaga sína falla
umhverfis sig, hefði astral-líkami minn birtzt sér, bent
sér áfram og sagt: „Vertu öruggur", og síðan hefði þessi
mynd mín gengið fyrir sér á hinni löngu göngu hersins
til Groningen, en þar kvaðst hann hafa dvalið með setulið-
inu síðan. Fáeinum mánuðum áður en ég fékk þetta bréf
frá honum, hafði ég fengið endursent bréfspjaldið, sem
ég hafði áður sent honum, það hafði flækzt til Berlínar,
en hann aldrei fengið það. Ég hlýt að hafa birtzt honum
í astral-líkamanum um leið og ég skrifaði bréfspjaldið.