Tímarit Máls og menningar - 01.11.1967, Blaðsíða 3
TÍMARIT MÁLS OG MENNINGAR • 28. ÁRG. 1967
HEFTI . NÓV.
Brynjólfur Hjarnason
Októberbyltingin 50 ára
Ég hef verið svo haniingjusamur að geta fylgzt töluvert með þróun Sovét-
ríkjanna í hálfa öld allt frá upphafi vega. Ég fékk að vera sem gestur á 2.
heimsþingi alþjóðasambands kommúnista 1920 og í þá daga varð maður að
ferðast ólöglega til þess að geta notið slíkra hlunninda. Ég heyrði Lenín tala
og nú get ég hiklaust orðað það svo, að ég hafi heyrt veraldarsöguna tala
og gera áætlun um framvindu sína á löngu tímaskeiði með tungu Leníns og
félaga hans. Síðan hef ég komið oft til Sovétríkjanna á öllum tímaskeiðum
í sögu þeirra í fimmtíu ár. Ég get borið um það af eigin raun, að þessi saga
var eins og náttúruhamfarir og að þeim loknum er jörðin ekki söm og áður.
Síðast í sumar fékk ég tækifæri til að ferðast um Sovétríkin ásamt sex öðrum
Islendingum. Fyrir það er ég mjög þakklátur. Það var allt gert til þess að
við gætum fengið sem bezt tækifæri til þess að kynna okkur land og þjóð,
núverandi aðstæður og þróun þeirra, og við spurðum fjölmarga aðila ótal
spurninga sem svarendum hefur sjálfsagt fundizt furðulegar sumar hverjar,
enda ekki auðvelt að leysa úr þeim öllum. Við spurðum sem vinir, sem vita
að örlög heimsins eru tengd örlögum Sovétríkjanna, og þessvegna spurðum
við helzt í þaula um þau málefni, sem við höfðum mestar áhyggjur af.
Arið 1920 var ég þegar sannfærður um yfirburði sósíalismans og sigur
hans í heiminum, og ég vonaði og trúði að Sovétríkjunum tækist að sigrast
á hinum feiknarlegu erfiðleikum brautryðjandans. Það geisaði enn borgara-
stríð og innrásarslríð í landinu, iðnaður þess mátti heita í rústum og milljón-
ir manna sultu heilu hungri. Svo að þrátt fyrir von mína og traust mitt á
flokki Leníns, vissi ég að örlög þessa lands og þar með sósíalismans í heim-
inum um langt skeið voru í mikilli tvísýnu. Nú í sumar fékk ég sönnunina
fyrir því, sem ég vonaði 1920. Sósíalisminn hefur sigrað þrátt fyrir öll þau
ósköp, sem á hafa gengið í hálfa öld, til þess að ráða niðurlögum hans,
þrátt fyrir tvær heimsstyrjaldir, sem hvor um sig lögðu mikinn hluta landsins
14 tmm
209