Tímarit Máls og menningar - 01.11.1967, Blaðsíða 78
Tímarit Máls og menningar
Comandante Turcios Lima, padre
Camilo Torres, Comandante Fabricio
Ojeda, Comandante Lobatón og Com-
andante Luis de la Puente Uceda, en
allir þessir menn stóðu framarlega í
byltingarhreyfingum Guatemala, Kól-
ombíu, Venezúela og Perú.
En starf og hreyfing alþýðunnar
skapar henni nýja leiðtoga; César
Montes og Yon Sosa hefja merkið í
Guatemala; Fabio Vazquez og Maru-
landa í Kólombíu; og í Venezúela
stjórnar Douglas Bravo baráttunni í
vesturhluta landsins en Américo Mar-
tín í E1 Bachiller.
Nýjar uppreisnir munu hefjast í
þessum og öðrum löndum Rómönsku
Ameríku, eins og þegar hefur gerzt
í Bólivíu, og þær munu halda áfram
að þróast þrátt fyrir allar þær þreng-
ingar sem eru því samfara að vera
byltingarmaður nú á tímum. Margir
munu týna lífi og gjalda fyrir mis-
tök sín; aðrir munu falla í þeirri
hörðu orustu sem nú fer í hönd; nýir
baráttumenn og nýir leiðtogar munu
birtast í miðju róti byltingarbarátt-
unnar. Alþýðan og stríðið sjálft
munu skapa sína eigin baráttumenn
og leiðtoga -—- og bandarískum kúg-
unarsendlum mun fjölga. Nú eru
handarískar hersendinefndir í öllum
þeim löndum þar sem baráttan eykst
að þrótti; herinn í Perú virðist hafa
staðið að velheppnaðri sókn gegn
byltingarmönnum þess lands, og sá
her er æfður af Bandaríkjamönnum
og þiggur ráð þeirra. En ef hreiður
stríðsins eru byggð af nógum póli-
tískum og hernaðarlegum skilningi
munu þau verða að heita má ósigr-
andi, og Bandaríkjamennmununeyð-
ast til að senda aukinn liðstyrk. Jafn-
vel í Perú eru margir nýir og nærri
óþekktir menn byrjaðir að endur-
skipuleggja skæruhernaðinn. Smám-
saman verður skipt á úreltum vopn-
um, sem nægja til að berjast við litla
flokka, og nútímavopnum, og i stað
hersendinefnda frá Bandaríkjunum
munu koma reglulegir hermenn, og
þá mun koma að því að Bandaríkja-
menn neyðast til að senda æ fleiri
herdeildir til þess að treysta nokkurn-
veginn í sessi ríkisstjórn sem hefur
glutrað niður leppher sínum í har-
áttunni við skæruliða. Þetta er víet-
namska leiðin; sú leið semmunverða
farin í okkar Ameríku, en við mun-
um njóta þeirra hlunninda að bar-
áttusveitirnar geta myndað samvinnu-
nefndir til að gera bandarískum kúg-
unarher h'fið leitt og flýta fyrir sigri
byltingarinnar.
Ameríka, gleymt land í síðustu bar-
dögunum fyrir frelsi, er nú byrjuð
að láta til sín heyra í Þriggja-heims-
álfna-sambandinu, og framvörður
þjóða hennar, kúbanska byltingin
mun nú hafa því þýðingarmikla hlut-
verki að gegna að skapa annað eða
þriðja Víetnam, eða annað og þriðja
Víetnam heimsins.
Við verðum að gæta þess að im-
284