Morgunblaðið - 13.03.1979, Blaðsíða 23
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 13. MARZ 1979 23
John Hudson KR átti ekki miklu láni að fagna í gærkveldi. Hér að
ofan sést hann þó brjótast í gegnum vörn Valsmanna. í lok leiksins
fékk Hudson hins vegar rautt spjald og verður því ekki með í næstu
leikjum KR-inga. (Ljósm.: gíg)
Rauða spjaldiö,
æsingur og spenna
er Valsmenn lögðu KR-inga
VALSMENN opnuðu íslandsmót-
ið í körfuknattleik heldur betur
upp á gátt er þeir lögðu meistara
KR að velli í æsispennandi leik f
gærkveldi með 79 stigum gegn 74
eftir að staðan hafði verið 47—34
þeim f hag f hálfleik. KR-ingar
þjörmuðu verulega að Valsmönn-
unum f seinni hálfleik en það
dugði ekki til og allt getur gerst í
úrvalsdeildinni. Að leik loknum
létu KR-ingar og áhangendur
þeirra skap sitt bitna á dómurum
leiksins og eftir harða rimmu
milli Guðbrands Sigurðssonar og
John Iludsons lauk þeirri viður-
eign með þvf að Hudson fékk
rauða spjaldið. „Hudson rak hnéð
harkalega í mig óg ég sýndi
honum þvf rauða spjaldið,“ sagði
Guðbrandur eftir að mesti hasar-
inn var liðinn. betta getur reynst
KR-ingum afar örlagarfkt þar
sem Hudson á jafnvel yfir höfðu
sér þriggja leikja bann þar sem
honum var vikið af leikvelli íyrr í
vetur.
Gangur leiksins var í megin-
VALUR vann Breiðablik 16—13 í
fyrstu deild kvenna í handbolta á
sunnudaginn. Leikurinn var slak-
ur svo að ekki sé meira sagt og
margt í þeim handbolta. sem
spilaður var, greinilega frumsam-
dráttum sá, að Valsmenn skoruðu
fyrstu tvö stigin og þegar 6 mínút-
ur voru liðnar var staðan orðin
11—8 fyrir þá. Þá tóku KR-ingar
það til bragðs að setja Jón Sig-
urðsson inná, en sem kunnugt er
hafði hann ekki náð sér af slæm-
um meiðslum frá því í síðustu
viku. Við þessa skiptingu dofnaði
verulega yfir KR-ingum og Vals-
menn komust 8 stig yfir. Enn seig
á ógæfuhliðina fyrir KR og þegar
skammt var til leikhlés var
munurinn orðinn 12 stig. Má segja
að vörn Valsmanna hafi í þessum
hálfleik veriðrbæði vatns- og vind-
held, því að nánast ekkert fór í
gegnum hana. Það var ekki fyrr en
á síðustu mínútum hálfleiksins að
eitthvað lak í gegn, en það breytti
ekki miklu um þann mun sem
Valsmenn höfðu byggt upp. Sem
sagt 34—47 í hálfleik.
I seinni hálfleik fóru KR-ingar
fyrst af stað og með miklum
stuðningi áhorfenda hófu þeir að
saxa á forskot Valsmanna, sem
urðu nú heldur ráðalausir í sókn-
ið á staðnum. Eftir að hafa
margséð til þessara liða í vetur,
fullyrðir undirritaður, að þessi
litli sigur Valsstúlknanna stafar
frekar af því að Valur lék afar
illa frekar en að Blikarnir hafi
inni. Síðustu 7 mínútur leiksins
skildu síðan aðeins 1—3 stig liðin
að, en á síðustu mínútunni innsigl-
uðu Valsmenn sigurinn. Ríkharður
Hrafnkelsson brenndi af tveimur
vítaskotum fyrir Val þegar 21
sekúnda var til léiksloka, en í
næstu sókn fékk Jón Sigurðsson,
sem heldur betur hafði tekið á
honum stóra sínum, dæmda á sig
vafarsama sóknarvillu, en Tim
Dwyer innsiglaði sigur Valsmanna
með tveimur öruggum stigum úr
vítum þegar 6 sekúndur voru til
leiksloka, 79—74.
Sem fyrr sagði urðu heldur
skærur eftir leikinn og m.a. fékk
undirritaður yfir sig talsvert
magn af karamellum, sem ætlaðar
voru dómurunum. Að loknum
þessum leik eru þrjú lið efst og
jöfn, KR, UMFN og Valur, þ.e.a.s.
hafa tapað jafnmörgum stigum.
Njarðvíkingar og Valur eiga eftir
að leika innbyrðis og verður sá
leikur vafalaust magnaður.
Lið Vals lék af miklum krafti
þennan leik, en enginn á vellinum
farið á kostum og ieikið af snilld.
Það gerðu þeir sko ekki. Staðan í
hálfleik var 8—5 fyrir Val.
Ef segja á frá gangi leiksins án
þess að láta mönnum leiðast,
komst Valur í 8—2, UBK minnkaði
það í 8—6. Valur náði aftur afger-
andi forystu 11—6 og var sigur
Vals aldrei í hættu eftir það, en
um lokatölurnar hefur þegar verið
fjölyrt, 16—13.
Magnea í marki UBK er alger
yfirburðamaður í liðinu og er
auðveldlega hægt að ímynda sér
stöðu UBK ef meðalmarkvörður
stæði þar milli stanganna. Magnea
varði 14 skot í leiknum, sem er
framúrskarandi með slíka gatasíu-
vörn fyrir framan sig. Sigurborg
stóð vel fyrir sínu þegar á leið, en
hún var afar mistæk í byrjun
leiks. Auk þeirra áttu þær Ása og
Jónína góðan leik. Aðrar Blika-
stúlkur eiga ekki hrós skilið fyrir
framlag sitt í leiknum, síst af
öllum Hulda Halldórsdóttir sem
skoraði aðeins 2 mörk í leiknum,
en notaði til þess 16 tilraunir! Er
það 12,5% nýting! Var erfitt að
skilja hvers vegna henni var ekki
kippt út af. Blikastúlkurnar voru
flestar mistækar, en þetta var
metið.
Valsliðið var slakt að sinni, en
eigi að síður sást greinilega að það
býr bæði yfir miklu meiri styrk og
breidd en Bíikaliðið. Þannig var
sigur liðsins aldrei í hættu þó að
illa væri leikið. Engin skaraði
fram úr í liðinu, en margar stúlkn-
anna gerðu góða hluti milli þess
sem þær klúðruðu.
MÖRK UBK: Sigurborg 4, Hrefna
3, Hulda og Ása 2 hvor, Jónína og
Auður 1 mark hvor.
MÖRK Vals: Harpa 5, Oddný 4,
Sigrún 3, Elín 2, Björg og Ágústa 1
hvor.
— KS.
lék betur en Tim Dwyer. Hann var
bókstaflega allt í öllu hjá Vals-
mönnum bæði í vörn og sókn. Eftir
leikinn sagði Dwyer, að Valsmenn
hefðu ekki tapað leik sem þeir
hefðu náð forystunni í upphafi og
þessi leikur hafi engin undantekn-
ing verið þar frá. Hann hefði verið
hræddur um að tapa þessu for-
skoti því að KR-ingar væru í raun
besta liðið og hann sjálfur gerði
allt til að líkja eftir þeim. En af
öðrum Valsmönnum má nefna
Ríkharð Hrafnkelsson, Sigurð
Hjörleifsson, Hafstein Hafsteins-
son og Kristján Ágústsson, sem
allir léku vel.
KR-ingar geta nagað sig í negl-
urnar fyrir að hafa ekki farið að
leika af krafti í upphafi fyrri
hálfleiks, en e.t.v. hafa þeir haldið
Valsmenn auðvelda viðureignar,
án Þóris Magnússonar. Þeir sem
eitthvað létu að sér kveða voru
Hudson og Jón Sigurðsson þegar
langt var liðið á leikinn, en aðrir
leikmenn virtust aldrei ná sér
almennilega á strik. Þó má einnig
nefna Garðar Jóhannsson, sem
barðist vel allan tímann, en mætti
fá meira af boltanum í sókninni.
Stig Vals: Dwyer 44, Ríkharður
13, Kristján 8, Torfi, Hafsteinn og
Sigurður 4 hver og Gústaf Gúst-
afsson 2.
Stig KR: Hudson 31, Jón 16,
Garðar 11, Árni og Birgir 6, Einar
og Gunnar Jóakimsson 2 stig hvor.
Dómarar voru þeir Guðbrandur
Sigurðsson og Sigurður Valur
Halldórsson og dæmdu þeir mjög
ei'fiðan leik eins vel og unnt var,
þótt eitt og annað færi miður.
gíg
• Ása Alfreðsdóttir UBK, lengst til hægri, grípur Ernu Lúðvíksdóttur
glímutökum og með aðstoð nokkurra Blika, sveiflar henni í gólfið.
Ljósm. Emilía.
Elnkunnagjðfln
Valur: Lárus Hólm 1, Hafsteinn Hafsteinsson 2, Óskar Baldursson 1,
Ríkharður Hrafnkelsson 3, Gústaf Gústafsson 1, Helgi Gústafsson 1,
Sigurður Hjörleifsson 3, Kristján Ágústsson 2, Torfi Magnússon 2.
KR: Árni Guðmundsson 2, Birgir Guðbjörnsson 2, Einar Bollason 2, Jón
Sigurðsson 3, Kolbeinn Pálsson 1, Gunnar Jóakomsson 1, Garðar
Jóhannsson 3, Þröstur Guðmundsson 1.
Fram ekki í vand-
ræðum með Míking
FRAM hóf leikinn af öryggi og komust í 3—0 með mörkum Jóhönnu.
Guðríðar og Jennýjar. Leikur Víkings skánaði þegar líða tók á leikinn
og Ingunn lagaði stöðu þeirra með 3 mörkum og staðan varð 5—3
Fram í vil. Þannig hélst staðan í jafnvægi fram að hálfleik. Fram hafði
þetta 2—3 mörk yfir.
Á 14. mínútu leiksins tóku Víkingsstúlkurnar Guðríði úr umferð og
við það riðlaðist leikur Fram nokkuð. Sóknin varð bitlausari en samt
tókst Framstúlkunum að halda f horfinu og staðan f hálfleik var 7—5
Fram í vil.
í seinni hálfleik var nokkuð sama uppi á teningnum til að byrja með.
Vfkingsstúlkurnar tóku nú tvær Framstúlkur úr umferð og virkaði
leikur Fram ckki sannfærandi eftir það. án þess þó að sigur þeirra
væri nokkurn tíma í hættu. Staðan var jöfn fram að 17. mín. seinni
hálfleiks, Fram hafði þetta 1—2 mörk yfir. Á þessum tíma hafði
Víkingur misnotað 2 víti af 4 og áttu þær enn eftir að misnota tvö. En
nú fóru Framstúlkurnar að sýna einhvern styrkleika og sigu hægt og
bitandi fram úr og staðan breyttist úr 12—10 í 15—10. Iris bætti stöðu
Víkings með tveimur vítum, en lokaorð leiksins átti Guðríður þrátt
fyrir stranga gæzlu. Leiknum lauk því með sigri Fram 16—12.
Guðríður hjá Fram var áberandi besti leikmaðurinn á vellinum og
ekki bar mikið á öðrum ieikmönnum.
Varnirnar voru skárri hliðin hjá báðum aðilum í miðlungsleik. Nr.
13 hjá Fram og nr. 3 hjá Víkingi voru áminntar og Guðríður fékk að
hvíla í tvær mín. Dómarar leiksins. Ingimar Ilaraldsson og Ólafur
Jóhannesson. komust vel frá auðdæmdum leik.
II.H.
Hvað væri UBK
ánMagneu