Morgunblaðið - 16.12.1984, Blaðsíða 25
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 16. DESEMBER 1984
25
íslenska hljómsveitin og Fflharmonía:
Jólatónleikar í
Keflavík og Reykjavík
EIMMTU og sjöttu tónleikar ís-
lensku hljómsveitarinnar á þessu
starfsári bera yfirskrift „vetrar-
sólstöóur." Efnisskrá þessara að-
ventutónleika verður frumflutt í
nýja íþróttahúsinu í Keflavík
þriðjudaginn 18. desember kl.
20:30 og endurtekin í Bústaða-
kirkju í Reykjavík daginn eftir,
miðvikudaginn 19. desember kl.
20:30.
Tónleikarnir í Reykjavík eru
jafnframt þriðju áskriftartón-
leikar hljómsveitarinnar í ár.
Stjórnandi verður Guðmundur
Emilsson aðalstjórnandi ís-
lensku hljómsveitarinnar og
söngstjóri söngsveitarinnar
Fílharmóníu, en kórinn flytur
tvö verkanna á tónleikunum og
leiðir fjöldasöng tónleikagesta
líkt og á fyrri jólatónleikum
hljómsveitarinnar.
í frétt frá íslensku hljómsveit-
inni segir m.a.:
„í desember hefur dimman
nær hjúpað allan sólarhringinn
á íslandi, en erill okkar aukist að
sama skapi. Hátíð fer í hönd.
Aðventutónleikar íslensku
Hljómsveitarinnar eru litaðir
þessari tíð. Þar er leikið á mild-
um tónum með kórsöng, víólu-
og sellóleik. Holst og Vaughan-
Williams, báðir kunnir af hóg-
værð, báru merki þjóðlegrar
enskrar tónlistar af reisn.
Eiunleikshlutverk víólunnar í
verkum þeirra er í höndum Ás-
dísar Valdimarsdóttur. Svipaður
hugblær prýðir Cantique Faurés
en það undurfagra söngverk býr
yfir ljóðrænum þokka sem von
er til úr þeirri átt. Söngsveitin
Fflharmónía, sem í ár fagnar
tuttugu og fimm ára afmæli,
flytur verk Faurés og Vaughan-
Williams. Sænski sellóleikarinn
Mats Rondin er í aðalhlutverki i
sellókonsert Tartinis, þar sem
birtu slær á djúpa strengi. Mið-
bik tónleikanna hylur kjarnyrt
Adagio Jóns Nordal. Að lokum
leiðir Söngsveitin Fílharmónía
fjöldasöng tónleikagesta líkt og
á fyrri jólatónleikum íslensku
hljómsveitarinnar."
Einleikarar á tónleikunum
verða þau Ásdís Valdimarsdóttir
og^Mats Rondin.
Ásdís Valdimarsdóttir (1962)
hóf nám í Barnamúsíkskólanum
með fiðlu sem aðalhljóðfæri
undir handleiðslu Gígju Jóhann-
esdóttur og síðar í Tónlistarskól-
anum í Reykjavík þar sem Rut
Ingólfsdóttir var aðalkennari
liennar. Árið 1979 skipti Ásdís
aifarið um hljóðfæri og snéri sér
að lágfiðlunni. Árið eftir hóf hún
nám við Juilliard tónlistarhá-
skólann í New York, þar sem dr.
Paul Doktor var aðalkennari
hennar. Hún lauk BM-prófi í vor
en í fyrravetur var dr. William
Lincer leiðbeinandi hennar. Ás-
Mats Rondin
dís hefur sótt fjölda sumarnám-
skeiða í tónlist, 1979 í In-
terlocken í Illinois og 1980 í
Vermont. Sumarið 1982 var hún
á námskeiði í Fontainebleu í
Frakklandi, 1983 í Siena á Ítalíu
hjá Ulrich Koch, og 1984 í Aspen
í Colorado. Hefur Ásdís notið
styrkja til þess að sækja öll þessi
námskeið svo og til að stunda
nám í Juillard. Næsta vetur
hyggst Ásdís ljúka meistara-
gráðu frá Juilliard, auk þess að
gegna stöðu 1. lágfiðluleikara í
stærstu hljómsveit þess skóla.
Mats Rondin (1960) hóf selló-
Guðmundur Emilsson
nám aðeins sjö ára að aldri.
Hann lærði meðal annars hjá G.
Norrby og Erling Blöndal-
Bengtsson. Fyrst lék hann ein-
leik með hljómsveit sextán ára
gamall og hefur síðan leikið með
sænsku útvarpshljómsveitinni,
Fílharmóníusveit Stokkhólms,
sinfóníuhljómsveitum Gauta-
borgar og Málmeyjar, og leikið
einleik víða um Evrópu. Hann
hefur hlotið fjölda viðurkenn-
inga í heimalandi sinu og var
einn af tólf evrópskum einleikur-
um á „Rostrum of Young Per-
formers" í Bratislava 1983. Hann
er nú fyrsti sellóleikari
Sinfóníuhljómsveitarinnar í
Málmey. Mats Rondin hefur gert
fjölda hljóðritana fyrir útvarp
og sjónvarp í heimalandi sínu og
víðar en fyrsta hljómplata hans
kemur út innan tíðar.
Guðmundur Emilsson (1951)
stundaði ungur nám við Tónlist-
arskólann í Reykjavík undir leið-
sögn Dr. Róberts A. Ottóssonar
og Þorkels Sigurbjörnssonar. Að
Ásdís Valdimarsdóttir
loknu tónmenntakennaraprófi
1973 nam hann við Eastman
tónlistarháskólann í New York
og lauk Bachelor- og Master-
prófi. Á árunum 1980—82 var
hann stjórnandi New Music Ens-
emble við tónlistarháskólann í
Bloomington, Indiana, og hefur
nú um nokkurt skeið unnið að
iokaverkefnum til doktorsprófs í
hljómsveitarstjórn samhliða
störfum hér heima. Aðalkennar-
ar hans hafa verið Thomas
Baldner, Bryan Balkwill, Marg-
aret Hillis og Robert DeCormier.
Guðmundur var helsti hvata-
maður að stofnun íslensku
hljómsveitarinnar. Hann hefur
verið stjórnarformaður hljóm-
sveitarinnar og annast daglegan
rekstur hennar frá upphafi. Þá
hefur hann kennt við Tónlist-
arskólann í Reykjavík og stjórn-
að hljómsveit skólans, stjórnað
söngsveitinni Fílharmóníu og
Sinfóníuhljómsveit íslands bæði
á tónleikum og við hljóðritanir
fyrir útvarp.
á Kástle skíðum, Marker bindingum og Dynafit skíðaskóm. Við bjóðum upp á skíðapakka með
skíðum og bindingum á ótrúlega lágu verði.
Fullorðins-
pakki
Kástle Comfort skíði
lengd 160-195
ysívrkrittzö.-
Jólatilboð kr. 6.990,
Extra-tilboö
Byrjendaskíðasett,
barna og fullorðins.
Skíði og bindingar.
Extra-tilboðsverð
kr. 2.850.-
Barna- og
unglingapakki
Kástle Champ skíði
lengd 120-140
Marker M 15 bindingar
y&rb kr. 4.650.-
Jólatilboðkr.3.890.-
Kástle Champ skíði
lengd 150-175
Marker M 15 bindingar
wft kr. 4.850.-
Jóiatilboð kr. 3.990.-
Gönguskíöa-
pakki
KástleTouring
gönguskíði
lengd 180-215
Marker gönguskíða-
bindíngar
jíerðkr.3.210.-
Jólatilboð kr. 2.680
SuperShadow
stœrðir5-12
jjesðkfrSÆfO.-
Jólatilboð kr.
2.540.-
LadyClassic
stœrðir4-7
verðkr. 2.650.-
Jólatilboð kr.
1.980.-
MtfL
Junior Master
stærðir 30-40
jærá kr. 1.550.-^
Jólatilboð kr.
1.190.-
SKÁTABÚDIN
gönguskíðaskór
DynafitTouring75
stærðir 40-47
ypri kr. T.O50.-
Jólatilboð kr.
1.190.-
Snorrabraut 60 sími 12045