Morgunblaðið - 16.12.1984, Blaðsíða 66
66
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 16. DESEMBER 1984
Husqvarna Optima
0 Husqvarna Optima er full-
komin saumavél, létt og auö-
veld í notkun.
0 Husqvarna Optima hefur
nytjasauma innbyggöa.
O Husqvarna Optima saumar
allt frá þynnsta silki til gróf-
asta striga og skinns.
O Husqvarna Optima óska-
draumur húsmóðurinnar.
Verö frá kr. 12.000.- stg.
0\
Gunnar Ásgeirsson hf.
Suóurlandsbraut 16 Simi 9135200
(fi) Husqvarna
IMÝTIÐ YKKUR ÞAU
GÓÐUSAMBÖND
SEM VK) HÖFUM
Ódýrar ferðir til London og Kaupmannahafnar.
London Kaupmannahöfn
Helgarferöir alla föstudaga. Komiö 3 dagar, frá kr. 11.102.-
heim á mánudegi. 4 dagar, frá kr. 11.550.-
Verö frá kr. 10.369.- Vikuferðir alla mánudaga.
Vikuferðir alla mánudaga. Verö frá kr. 15.350.-
VerÖ frá kr. 14.330.- Oll verð miðast við gistingu í tveggja manna herbergi
Spennandi tungumálanámskeið um þvera og
endílanga Evrópu og Bandaríkin:
*Enska
Bretland
I Hastings á Englandi bjóðum við upp á
ódýr og árangursrík námskeið af öllum
stvrkleikastigum. Almenn kennsla -
einkakennsla. Lágmarksvöld 2 vikur.
Brottför alla laugardaga fram til 1. júní.
Bandaríkfn
Einkakennsla að eigin vali. Búið heima
hjá kennaranum. Lágmarksdvöl 4 vikur.
* Franska
Frakkland - Sviss
Pú getur valið um 3 staði í Frakklandi og
tvo í Sviss. Fjölbreytt námskeið fyrir
byrjendur og bá sem lengra eru komnir.
I París verður þriggua vikna kennaranám-
skeið.
* Þýska
Þýskaland
Alls konar námskeið um allt Pýskaland.
Sérstakt kennaranámskeið í júlí.
Vlö erum ferðaskrifstofa þeirra sem
ekkl vaöa í penlngum.
* ítalska
ítaiía
í listaborginni Flórens bjóðum við upp á
margs konar námskeið, stutt og löng
eftir bví sem hentar.
Sérstakt kennaranámskeið í júlí.
* Spænska
Spánn
Stutt og löng námskeið af öllum styrk-
leikastigum. Kennt í Barcelona, Madrid
og á Costa del Sol.
SKRIFSTOFA ,
STUDENTA I
Hringbraut,
sími 25822 og 16850
Sr. Gerald
Boots látinn
Séra Gerard Boots, sem mörg-
um var að góðu kunnur hér á
landi, andaðist að morgni hins 11.
desember sl.
Hann var Hollendingur, fæddist
25. mars 1888, stundaði prestnám
þar í iandi og var vígður til prests
af reglu heilags Montforts í júlí
1913.
Fyrst starfaði hann í heima-
landi sínu en fluttist til Danmerk-
ur 1917 og starfaði þar í rúm þrjú
ár. Að þeim tíma liðnum fluttist
hann til Íslands og starfaði þar í
rúm 50 ár, ýmist í Reykjavík,
Stykkishólmi eða Hafnarfirði. Um
tíma var hann staðgengill biskups.
Sennilega er séra Boots kunn-
astur hér á landi fyrir orðabækur
þær sem hann samdi, fransk-
íslenska og íslensk-franska, sem
bættu úr brýnni þörf því hér voru
þá engar slíkar bækur fyrir. Alli-
ance Francaise sæmdi hann heið-
ursmerki fyrir það afrek. Enn-
fremur kenndi hann ýmsum
tungumál í einkatímum.
Síðustu ár ævinnar dvaldist
hann í Hollandi og andaðist þar,
eins og fyrr segir.
Þeim sem kynntust séra Boots
verður hann ógleymanlegur.
Reglusemi hans var viðbrugðið,
hann skipulagði tima sinn til hlít-
ar og þannig vann hann orðabæk-
ur sínar, án þess að þurfa að
ganga á þann tíma sem hann
hlaut að verja til prestsstarfa.
Hann var íhaldssamur í hugsun og
neitaði að varpa fyrir borð hverju
því sem hann taidi enn í góðu gildi
og gilti það jafnt um siði og háttu
kirkjunnar sem annað. Hið eina
sem gat breytt voru fyrirmæli yf-
irmanna hans.
Veraldlegt eftirlæti við sjálfan
sig var honum algerlega framandi
og hverskonar munað taldi hann
hégóma einn, þótt hann léti atferli
annarra afskiptalaust. Þá átti
hann til gamansemi í svo ríkum
mæli að sögur um orðatiltæki
hans vekja mönnum enn í dag
bros á vör. Þá var íslenskukunn-
átta hans afburða góð enda var
það einmitt á henni sem mörg
fyndni hans byggðist.
Vinir hans minnast hans með
hlýju og söknuði, þessa vel mennt-
aða, prúða og orðheppna prests,
sem var íhaldssamur á þann hátt
að jafnvel róttækum mönnum
fannst ekkert að því. Hann kann
að hafa verið fulltrúi liðins tíma í
mörgu, en samt finnst mér að
margt mundi fara betur ef menn
ættu almennt til lítið eitt af
íhaldsseminni hans.
Hann hvíli í friði.
Torfi Ólafsson
Legsteinar
granít — - marmari
Opið alla daga, ^0lanít ö.f
einnig kvðld Unnarbraut 19, Seltiarnarnesi,
og helgar., símar 620809 og 72818. ^
Legsteinar
Framieiðum ailar stærðir og gerðir af legsteinum.
Veitum fúsiega upplýsingar og ráðgjöf
um gerð og val legsteina.
S.HELGASOH HF
STEINSMIÐJA
SKBVWUÆGI 48 SWI 76677
HJAIJ»AKS,JO«UIl
GÍRÚNÚNIER 90000-1
Rauði kross íslands