Morgunblaðið - 23.02.1985, Blaðsíða 5
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 23. FEBRpAR 1985
5
UtvarpsráÖ
ræðir þing-
fréttir Páls
ÚTVARPSSTJÓRI lagði í gær fyrir
útvarpsráð úttekt á þingfréttum Páls
Magnússonar fréttamanns að ósk
Ingibjargar Hafstað, útvarpsráðs-
fulltrúa Kvennalistans, sem telur að
Páll hafi brotið hlutleysisreglur
Ríkisútvarpsins með fréttaflutningi
sínum. Páll hefur í annan stað kært
Ingibjörgu fyrir meiðyrði og atvinnu-
róg. Það mál er nú til meðferðar hjá
Rannsóknarlögreglu ríkisins.
Inga Jóna Þórðardóttir, formað-
ur útvarpsráðs, sagði eftir fund-
inn í gær að ráðsmenn myndu
hafa gögnin til umfjöllunar fram
að næsta fundi ráðsins, málið
hefði ekki verið rætt á fundinum í
gær.
Útvarpsfréttamenn:
Útvarpsráð
mælir með
Sigríði og
Sigurði
ÚTVARPSRÁÐ samþykkti á fundi
sínum í gær að mæla með þeim Sig-
ríði Árnadóttur fréttamanni og Sig-
urði Helgasyni kennara í stöður
fréttamanna við útvarpið.
Hlaut Sigríður sjö atkvæði á
fundi ráðsins en Sigurður fimm,
að sögn Ingu Jónu Þórðardóttur,
formanns ráðsins. Er gert ráð
fyrir að Sigriður verði innan
skamnis skipuð í fasta stöðu út-
varpsfréttamanns og að Sigurður
verði settur til eins árs. Tveir aðr-
ir umsækjendur, þau Birna Þórð-
ardóttir og Úlfur Björnsson, hlutu
sitt atkvæðið hvort.
Útvarpsráð
hafnar kröfu
stúkumanna
um bjórfund
KRAFA Stórstúku íslands um
kappræðufund í sjónvarpi um bjór-
málið undir stjórn Ómars Ragnars-
sonar fréttamanns hlaut ekki stuðn-
ing á fundi útvarpsráðs í gær. Verður
því ekki úr þeim fundi að sinni.
Útvarpsráð samþykkti hinsveg-
ar tillögu Lionshreyfingarinnar á
íslandi um skemmtiþátt í sjón-
varpi, sem fluttur yrði til að vekja
athygli á fjáröflunarherferð
hreyfingarinnar til að safna fyrir
línuhraðli fyrir K-deild Landspít-
alans. Svavar Gests hefur verið
tilnefndur af hreyfingunni til að
undirbúa skemmtiþáttinn.
Lánskjara-
vísitalan
1077 stig
í mars
Lánskjaravísitalan fyrir
marsmánuð verður 1.077 stig. í
febrúarmánuði var hún 1.050 stig,
og hækkar því um 2,6% á mílli
mánaðanna. Mælir hækkun vísi-
tölunnar nú 36% verðbólgu miðað
við 12 mánaða tímabil.
Þúsund
manna
terta
í Eyjum
Vestmannaeyjum, 20. febrúar.
SÍÐASTLIÐINN fímmtudag bauð
verslunin Tanginn viðskiptavinum
sínum að gæða sér á heljarstórri
rjómatertu í tilefni þess að versl-
unin hafði verið stækkuð og endur-
bætt en Tanginn er „stórmarkað-
ur“ þeirra Vestmannaeyinga.
Þessi veglega terta stóð versl-
unargestum til boða frá því kl.
14 og þar til lokað var kl. 18, og
munu um 1.000 skammtar hafa
náðst út úr þessari forlátu tertu
Tangans. Þáðu verslunargestir
þessar trakteringar með þökkum
og renndu tertusneiðunum niður
með rjúkandi kaffi. Þess má til
gamans geta að í þessa tertu
fóru um 24 lítrar af rjóma, 104
egg, 4 lítrar frómas, tugir heil-
dósa af ávöxtum auk alls annars
sem til þarf svo úr verði gómsæt
rjómaterta. Tertan vó á að giska
80 kg fullbökuð, var 1,10 m á
breidd og 1,40 m á lengdina.
- hkj
HVERSVEGNA
borga tvöfalt fyrir
bíl sem fæst á
243.700 kr. meö 125.000
út og 118.700 á
10 mánuðum?