Morgunblaðið - 23.02.1985, Blaðsíða 52
52
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 23. FEBRÚAR 1985
Kúabóndi
sigraði í
maraþon-
skautahlaupi
MIKIÐ maraþon-skautahlaup var
haldið í Hollandi sl. fimmtudag.
Skautaðir voru 199 kílómetrar í
gegnum 11 borgir. Hlaup þetta
var haldið síðast 1963.
Það var 26 ára kúabóndi, Evert
Van Benthem, sem sigraði í þessu
mikla hlaupi sem 300 keppnis-
Lyft í Festi
islandsmeistaramót unglinga í
kraftlyftingum veröur haldiö í dag
í Festi í Grindavík og hefst kl. 12
með keppni í léttari flokkum og
þyngri flokkarnir verða síðar um
daginn. Sextán keppendur m»ta
til leiks. Meðal þeirra eru Hjalti
Árnason og Torfi Ólafsson.
Unglingamót FSÍ
UNGLINGAMÓT FSÍ verður hald-
ið í Laugardalshöll í dag, laugar-
dag 23. febrúar.
Mótið fer fram í tveimur hóp-
um, fyrri hópurinn hefur keppni
kl. 13.30 en sé síðari kl. 16.00.
Keppt verður eftir íslenskum fim-
leikastiga og er þaö í fyrsta sinn á
mótum FSÍ. (Fr4tt.tilky„ninfl)
menn og 16.175 trimmarar tóku
þátt í. Benthem skautaði þessa
199 km á 6 klukkustundum 45
mínútum og 47 sekúndum og setti
nýtt met. Gamla metið átti þjálfari
hans, Jeen Van Den Berg og var
það sett 1954.
Talið er að um 500.000 manns
hafi fylgst með þessu mikla
skautahlaupi sem hefur ekki verið
haldið í 22 ár vegna þess hve veö-
ur hefur verið milt þar um slóðir á
þessum árstíma.
Allir keppendur sem trimmarar
fá verölaun, bronsverölaun ef þeim
tækist að Ijúka hlaupinu fyrir mið-
nætti á fimmtudagskvöld.
í hverri borg sem þeir fóru fram
hjá þurftu keppendur aö láta
stimpla í keppniskort sem þeir
báru á sér svo ekki væri hægt að
svindla.
Viö endamarkiö afsökuöu
þreyttir skautahlauparar sig og
töldu þetta mjög erfitt hlaup, þrátt
fyrir að veður væri gott. „Síöustu
80 kílómetrarnir voru mjög erfiðir,"
sagöi einn af betri hlaupurunum
eftir aö hann kom í mark. „Svelliö
var huliö 10 sentimetra háu
vatnsboröi og var erfitt yfirferðar,"
sagði hann ennfremur.
Slík keppni var fyrst haldin 1909
og tóku þá um 50 manns þátt í
henni.
Bingham óhress meö
tímasetninguna í Mexíkó
BILLY Bingham, einvaldur norö-
ur-írska landsliðsins í knatt-
spyrnu, er óhress meö tímasetn-
ingu úrslitakeppninnar í heims-
meistarakeppninni í knattspyrnu,
sem fram fer í Mexíkó é næsta
éri.
Bingham segir, aö vegna lofts-
lagsins og hins mikla hita sem er á
þessum tíma í Mexíkó, hafi liö frá
Evrópu minni möguleika á aö
vinna keppninna.
Þó aö Noröur-írar hafi ekki enn
tryggt sér rétt til aö leika í Mexíkó
fór Bingham til Mexíkó til aö skoða
aöstæöur þar. Hann sagði eftir
komuna aö vegna hins mikla raka
og hitastigs í loftinu á þessum tíma
sem úrslitakeppnin byrjar, sé
nánst óbærilegt aö spila knatt-
spyrnu fyrir Evrópumenn.
Hann sagöi ennfremur aö tíma-
setningin hafi fyrst og fremst veriö
ákveöin af kaupsýslumönnum og
sjónvarpsstöövum.
• Davíö Oddsson borgarstjóri afhendir hér Bjarna Friðrikssyni júdókappa hinn veglega bikar sem
fylgir sæmdarheitinu íþróttamaöur Reykjavíkur 1984.
Bjarni íþróttamaður
ársins í Reykjavík
BJARNI Friðriksson júdómaöur
úr Ármanni, var í gær kjörinn
íþróttamaður Reykjavíkur 1984,
í hófi sem borgarstjórinn í
Reykjavík hélt honum til heiö-
urs að Höföa.
Það var framkvæmdastjórn
jþróttabandalags Reykjavíkur í
samráöi viö borgarstjórn sem
stóöu fyrir þessu kjöri. Borgar-
stjórinn, Davíö Oddsson, afhenti
Bjarna hinn veglega bikar sem
fylgir sæmdarheitinu íþróttamaö-
ur Reykjavíkur 1984. Davíö sagöi
viö þaö tækifæri aö þaö væri
mikiö atriði aö eiga góöa íþrótta-
menn sem auglýstu landiö og
borgina út á viö og væri þaö ein
besta landkynning sem til væri.
„Þaö er staöreynd aö eftir því
sem við eigum fleiri afreksmenn í
íþróttum því fleira fólk fáum viö
til aö taka þátt í iþróttum," sagöi
Davíö.
Bjarni Friöriksson er mjög vel
aö þessum titli kominn, hann
vann þaö frækilega afrek aö
vinna bonsverölaun í júdó á
Ólympíuleikunum í Los Angeles í
sumar, hann hefur einnig unniö
til margra verölauna á árinu
1984. Bjarni varö í ööru sæti á
opna skoska meistaramótinu í
júdó, þriöji á opna enska meist-
aramótinu, Noröurlandameistari
í opnum flokki og annar á sama
móti í 95 kg flokki. Bjarni er ís-
landsmeistari 1984 t opnum
flokki og í 95 kg. flokki.
Bjarni hefur veriö landi sínu til
mikils sóma og þaö fer ekkert á
milli mála aö hann er fyrirmyndar
íþróttamaöur jafnt utan vallar
sem innan.
Tvær knattspyrnu-
stúlkur úr Val í at-
vinnumennsku á Ítalíu
TVÆR knattspyrnustúlkur úr
Val, Bryndís Valsdóttir og Krist-
ín Briem, hafa gert atvinnu-
samning við ítalskt 1. deildar fé-
lag og munu leika með því é
keppnistímabilinu sem nýlega
er hafiö.
Félagiö, Giugliano frá Napolí,
varö í 7. sæti af 12 liðum í 1.
deildarkeppninni á síöasta
keppnistímabili. Félagiö er aö
sögn Bryndísar svipaö aö styrk-
leika og Valur.
Giugliano vann sinn fyrsta leik
í deildinni i byrjun febrúar og
skoraöi Bryndís þá tvö mörk.
Síöasti leikur liösins tapaðist
hins vegar, 2:0, og meiddist
Bryndís þá lítillega.
Kristín hefur einnig leikiö með
liöinu undanfariö og staöiö sig
vel í vörninni.
Það vakti athygli þegar ís-
lensku stúlkurnar komu til Giugli-
ano — og var skrifað um þær í
blaö í Napolí, Notte, þar sem far-
iö er lofsamlegum oröum um ís-
• Bryndís (t.v.) og Kristín.
lensku stúlkurnar.
Valsstúlkurnar sömdu til eins
árs viö Giugliano.
Real vann
Maccabi
REAL MADRID fré Spéni sigraöi
liö Maccabi fré Tel Aviv með
100—76 í undanúrslitum Evrópu-
bikarkeppninnar í körfuknattleik
é fimmtudagskvöld.
Real Madrid var yfir í hálfleik,
51—38, og voru ákaft hvattir af
5000 áhorfendum á heimavelli sín-
um á Spáni.
Önnur liö sem taka þátt í undan-
úrslitunum eru Cibona frá Júgó-
slavíu, Banco Roma og Granarolo
frá Italíu og Tska frá Sovétríkjun-
um. Tvö efstu liöin í undanúrslitun-
um munu keppa um Evrópubikar-
inn í Aþenu í Grikklandi 3. apríl nk.
Sovéska liöiö Tska lék seinni
leik sinn viö ítalska liöiö Banco
Roma í sömu keppni á fimmtudag
og sigruöu Sovétmenn eftir aö
jafnt haföi veriö lengst af í fyrri
háifleik, 97—77.
Eftir fimm mínútur var staöan
14—14, eftir 10 mínútur var staö-
an enn jöfn, 25—25, en þá tóku
liösmenn Tska leikinn í sínar hend-
ur og var staöan f hálfleik 48—38
fyrir Tska, og lokatölurnar uröu
eins og áöur segir, 97—77.
Banco Roma vann fyrri leikinn
sem spilaöur var í Róm í desember
meö 74—71.
CALCIO FEMMINILE /Alla vigilia del via al«ampionato u.
II Giugliano presenta la novita:
é Varsdottir la nuova bomber
di MIMMO MAlíTTANO
pronta per un eventuí e impiego ad ínizio d
campionato, é la centr; vanti Varsdottir cht '
i r iiii w imiMnnMM—MM
Giugliano kynnir nýjung: þrumufleyginn Valsdóttur" segir blaöið Napoli Notte þarna í fyrirsögn.