Morgunblaðið - 23.02.1985, Side 27
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 23. FEBRÚAR 1985
27
Aldrei í bað:
Allra
KuaU Lumpur, 22. febrúar. AP.
LAI THO MENG og kona hans,
Chou Sau Lain, eru 85 ára og
ákaflega heilsuhraust. Lai dreg-
ur enga dul á hvers vegna þau
hjónin verdi varla vör við háan
aldur sinn, „við höldum svona
góðri heilsu af því við böðum
okkur ekki,“ segir Lai og deplar
ekki auga, enda er honum fúl-
asta alvara.
Raunar viðurkennir Lai að
hann fari einu sinni í bað á ári,
á áramótakvöldi Kínverja, en
Sudur-Afríka:
Kjarnorkuveri
lokað „um tíma“
Cape Town, Subur-Afrfku, 22. febrúar. AP.
Kjarnorkuverinu f Koeberg f
Suður-Afríku, sem er um 40 km
norður af Cape Town, verður lokað
„um tíma“, meðan könnun fer fram
á, hvort stálrör í verinu séu hugsan-
lega gölluð, að sögn embætt-
ismanna, en fyrirtækið er f eigu
ríkisins.
Járnagnir fundust í nokkrum
röranna í tveimur af einingum
versins, og á nú að prófa þær, áður
en rafmagnsframleiðsla verður
hafin í næstu viku, að þvi er
stjórnarformaður orkustofnunar
landsins,I.D. van der Walt, sagði í
gærkvöldi.
Eining Koeberg-kjarnorkuvers-
ins, sem lokað var í janúar vegna
hefðbundins viðhalds, verður lok-
uð áfram, meðan sams konar
rannsókn fer fram þar, sagði van
der Walt.
Döniim fækkaði
um 1022 á
síðasta ári
Kaupminnaböfn, 22. febrúar. AP.
ÍBÚAFJÖLDI Danmerkur var
5.112.130 manns 1. janúar sl., eða
1.022 færri en í ársbyrjun 1984, að
því er fram kemur í frétt frá dönsku
hagstofunni f dag, föstudag.
Þar sagði, að körlum hefði
fækkað um 870, en konum um 152.
Alls fæddust 51.855 bðrn Mand-
inu á árinu, 1.033 fleiri en árið
áður. Alls létust 57.140 á árinu
1984, aðeins 16 færri en árið áður.
Yngsta fráskilda konan í Dan-
mörku í ársbyrjun 1985 var 17 ára
gömul. Yngstu eiginkonurnar voru
átta 15 ára gamlar stúlkur, en
yngsti eiginmaðurinn var 16 ára
að aldri.
Á sama tíma voru 74 karlar og
178 konur yfir hundrað ára að
aldri, sagði í frétt hagstofunnar.
IHorjjunblíibib
JSÍÖ
reglulega af
öllum
fjöldanum!
meina bót
þau Lai og Chou eru kínversk
þó þau séu búsett í Malaysíu.
Lai segir að þau renni aðeins
rökum svampi yfir líkama sína
daglega, böð valdi hitatapi sem
sé heilsuspillandi. „Ég svindla
einu sinni á ári, en get ekki
sagt að mér líði neitt sérstak-
lega vel þegar baðinu árlega er
lokið. Kona mín hefur ekki
farið í bað í 20 ár. Faðir minn
sagði mér frá óheilnæmi baða
þegar ég var lítill strákur og
nam ég þau orð hans vel. Hann
hætti sjálfur að baða sig 23
ára gamall og náði hárri elli,“
segir Lai, sem vinnur 10
stunda vinnudag í sósuverk-
smiðju og blæs varla úr nös.
Lai segir að það hafi verið
, erfitt í fyrstu að snúa baki við
böðum, því jafnaldrarnir hafi
strítt sér gríðarlega og þrá-
faldlega reynt að draga sig
nauðugan undir bununa i
skólaleikfiminni. „Þeim tókst
það ekki og á endanum hættu
þeir að reyna,“ segir Lai og
bætir við að þau hjónin eigi í
erfiðleikum með að sannfæra
börn sín sex um galla baða.
Elsti sonurinn sem er 54 ára
og heitir Lai Pong Yin segir að
það sé ákaflega lítt freistandi
að hætta að baða sig. „Það er
geysilega heitt í veðri hérna
lengst af ársins og ef ég færi
ekki í bað í hitanum myndi
mér ekki líða vel, hvað þá fjöl-
skyldu minni og samstarfs-
mönnum. Gamla konan, Chou,
segir að hún hefði ekkert á
móti því að baða sig svo sem
einu sinni fyrir forvitnissakir,
en sennilega láti hún það
ógert, því það kynni að skaða
sig að fara í bað eftir öll þessi
ár.
Ítalíæ
Sadolini varn-
armálaráðherra
til Túnis
Róm, 22. febrúar. AP.
ÍTALSKI varnarmálaráðherrann,
Giovanni Spadolini, fór í dag í
þriggja daga heimsókn til Túnis, þar
sem hann mun eiga viðræður við
Habib Bourguiba forseta og fleiri
ráðamenn.
Við brottförina sagði Spadolini,
að hann mundi ræða heimsókn
Shimonar Peres, forsætisráðherra
ísraels, til Rómar fyrr í vikunni og
viðleitni hófsamra Arabaríkja til
að koma á friði í Miðausturlönd-
um.
VILTU SPARA
15 til 75 þúsund krónur?
Vegna mikillar sölu og sérstakra samninga viö verksmiðjurnar, þá er
MAZDA 323 DeLuxe 15—75 þúsund krónum ódýrari en sambærilegir
bílar í sama gæöaflokki.
Eftirfarandi búnaður fylgir Mazda 323 DeLuxe:
Rúllubelti — Stillanleg hæð á framsæti með mjóhryggsstillingu —
Sportrendur á hliðum — Heilir stuðarar með rauðri innfelldri rönd —
Öryggisljós að aftan — Litað gler í rúðum — Niðurfellanlegt aftursætis-
bak í tvennu lagi — Handgrip í lofti — Tauáklæði á sætum — Quarts
klukka — 60A rafgeymir — Sérstök hljóðeinangrun í farþegarými — 3
hraða rúðuþurrkur — Halogen aðalljós — Stokkur á milli framsæta —
Blástur á hliðarrúður — Spegill í sólskyggni hægra mepin — Farangurs-
geymsla klædd í hólf og gólf — 3 hraða miðstöð — Utispegill — Bak-
sýnisspegill með næturstillingu — Þurrka og sprauta á afturrúðu — Hit-
uð afturrúða — Opnun á afturhlera og bensínloki innan frá — Ljós í far-
angursgeymslu (HB) — Barnaöryggislæsingar — Vindlakveikjari og
margt fleira.
MEST FYRIR PENINGANA
Opið laugardag
frá kl. 10—4____■ ■
BÍLABORG HF
Smiöshöföa 23 sími 812 99