Morgunblaðið - 11.06.1985, Qupperneq 1
80 SÍÐUR MEÐ 12 SÍÐNA ÍÞRÓTTABLAÐI
STOFNAÐ 1913
129. tbl. 72. árg.
ÞRIÐJUDAGUR 11. JÚNÍ 1985
Prentsmiðja Morgunblaðsins
Iiech Walesa um pólsk stjúrnvöld:
Mesta kúgun
eftir Stalín
LECH Walesa, leiðtogi Samstöðu, sagði eftir vitnaleiðslur við réttarhöld yfir
þremur Samstöðuleiðtogum að pólsk yfirvöld beittu þjóðina nú mesta harðræði
síðan á Stalínstímanum, að sögn BBC-fréttastofunnar. f AP-fréttum frá
Gdansk segir að Walesa hafi haldið fram sakleysi þremenninganna og að hann
hafi sagt réttarhöldin pólitíska aðför að Samstöðu.
Walesa var vígreifur í réttar-
salnum og sagði að hjá engri sið-
menntaðri þjóð væri vinum fyrir-
munað að hittast. Kvaðst hann
einn bera ábyrgð og eiga frum-
kvæði að haldinn var á heimili
hans fundur Samstöðuleiðtoga í
febrúar. Fundurinn hefði ekki verið
leynilegur. Saksóknari segir þar
hafa verið lagt á ráðin um verkfall,
en þremenningarnir eru lögsóttir
fyrir að reyna koma verkfalli í
kring.
Walesa var klæddur hvítum
ermastuttum bol skreyttum merki
Samstöðu og prentað var stórum
stöfum yfir brjóstið „L’homme de
fer“, eða Járnmaðurinn, sem er tit-
ill á Óskarsverðlaunamynd pólska
kvikmyndaleikstjórans Andrzej
Wajda um upphaf Samstöðu. Eftir
yfirheyrslur undirritaði Walesa
skjal, þar sem réttarhaldinu var
mótmælt. Verður undirskriftum
safnað í helztu borgum Póllands.
Walesa var 50 mínútur í vitna-
stúkunni. Er hann yfirgaf hana
kallaði Adam Michnik, einn þre-
menninganna: „Hafðu engar
áhyggjur, Samstaða sigrar þegar
upp verður staðið." Yfirdómarinn
lét flytja Michnik úr réttarsalnum
við svo búið, fjórða sinni sem hann
er færður úr salnum.
I prísundinni
AP/Sfmamynd
Sextán finnsku gæzluliðanna af 21, sem er ( haldi hers kristinna manna í Suður-Líbanon, sem nýtur stuðings Israela.
Myndin var tekin þar sem Finnarnir eru í haldi nærri þorpinu Adaisseh. Finnsku hermennirnir eru í gæzlusveitum
Sameinuðu þjóðanna, UNIFIL.
Sambandið við finnsku
gæzluliðana alveg rofið
Beirút, 10. júní. AP.
ALLT samband hefur rofnað við
finnsku gæzluliðana úr UNIFIL-
sveitunum í Líbanon og hafa þeir ver-
ið fiuttir burt af svæði UNIFIL til
höfuðstöðva hers Suður-Líbanons. Er
Þjóðaratkvæði um vísitölubindingu launæ
Craxi vinnur
mikinn sigur
Rómarborg, 10. júní. AP. ^
ÍTALIR veittu stjórn Bettino Craxi mikilsverðan stuðning er þeir höfnuðu í
þjóðaratkvæði tillögu um vísitölubindingu launa. Craxi hafði lýst yfir því, að
stjórn sín, ein sú lífseigasta eftir stríð, segði af sér, ef tillagan yrði samþykkt.
Úrslit þjóðaratkvæðisins urðu
þau að 15,45 milljónir manna sögðu
já, eða 45,7%, en 18,39 milljónir,
eða 54,3%, nei. Kjörsókn var 78%.
Craxi hélt því fram fyrir kjörið
að samþykkt tillögunnar, sem haft
hefði í för með sér sjálfvirkar
launahækkanir, yrði til að koma af
stað verðbólgubáli. Stjórnin nam
úr gildi ákvæði um vísitölubind-
ingu launa, sem hækkuðu sjálf-
krafa ef framfærslukostnaður
jókst.
Kommúnistaflokkur Ítalíu, næst
stærsti flokkur landsins, fékk því
framgengt með stuðningi nýfas-
istaflokksins, fjórða stærsta
flokksins, að efnt var til þjóðar-
atkvæðis um vísitölubindingu
launa. Bindingin var numin úr gildi
í fyrra.
það taliö til marks um að þeirra bíði
„löng vist í gíslingu". Finnska ríkis-
stjórnin hvatti til þess að lífi þeirra
yrði hlíft og bað ýmis ríki að beita sér
fyrir því að þeir yrðu látnir lausir.
UNIFIL-sveitirnar kröfðust þess
að fá að senda lækni til finnsku
hermannanna, þar sem einn þeirra
væri sjúkur. Meðan gæzluliðarnir
voru í haldi við þorpin Qantara og
Adaisseh, voru sveitirnar í tal-
stöðvarsambandi við þá, en eru
ekki lengur.
Finnskur herforingi segir að 11
liðsmenn hers Suður-Líbanons,
sem hersveitir shíta hafa í haldi,
séu liðhlaupar. Krafizt er frelsis
þeirra í skiptum fyrir finnsku gísl-
ana. Yitzhak Shamir, utanríkis-
ráðherra ísraels, sagðist harma
töku finnsku hermannanna og að
ísraelar myndu gera sitt til að
tryggja frelsi þeirra. Rabin,
varnarmálaráðherra, sagði Finn-
ana geta sjálfum sér um kennt, þar
sem þeir hefðu afvopnað 11-menn-
ingana og afhent þá sveitum shíta.
Síðustu ísraelsku hersveitirnar
yfirgáfu Líbanon í dag. Skömmu
áður sprungu tvö sovézk flugskeyti
rétt við þorp í ísrael, en þeim var
skotið frá Líbanon, hin fyrstu frá
því ísraelar hófu brottflutning
þaðan í febrúar. Varaði Shimon
Peres v.ið því að hryðjuverk, sem
rætur áttu að rekja til Líbanons,
hefðu valdið innrás ísraela á sínum
tíma.
ísraelar viðurkenna í einkavið-
tölum að allt að 100 hermenn séu
enn í Suður-Líbanon sem ráðgjafar
hers Suður-Líbanons.
Shimon Peres kynnti í dag áætl-
un í fimm liðum um friðarráð-
stefnu fyrir Mið-Austurlönd, þar
sem óskað er eftir stuðningi en ekki
þátttöku Sovétríkjanna. Gert er
ráð fyrir Bandaríkjunum sem eina
utanaðkomandi aðilanum á ráð-
stefnunni og undirbúningi hennar.
Gífurleg sprenging er
eldflaug hæfði Bagdað
Nikósíu, 10. júní. AP.
ÍRANIR skutu langdrægri eld-
fiaug, sem hæfði Bagdað, höfuð-
borg írak. Gífurleg sprenging kvað
við í borginni vestanverðri, en
óljóst er hvaða tjóni fiaugin olli.
íbúar í miðborginni sögðu sír-
enur sjúkra-, lögreglu- og
slökkvibifreiða verið þeyttar og
mikið lið björgunarmanna stefnt
til hverfisins, sem flaugin hæfði.
Nötraði miðborgin í sprenging-
unni, sem var langt í burtu. Mik-
ill grásvartur sprengjustrókur
grúfði yfir borginni. Eldflaug-
inni var skotið af skotpalli í ír-
Ciriaco De Mita,
þjóðaratkvæðinu
lútandi var felld
og stjórn hans.
AP/Slmamynd
framkvæmdastjóri Kristilegra demókrata, greiðir atkvæði í
um vísitölubindingu launa. Tillaga kommúnista þar að
og er það mikill sigur fyrir Bettino Craxi, forsætisráðherra
Bandaríkin virða
Salt II-samninginn
Washinffton, 10. júní. AP.
Wa.shinglon, 10. júní.
RONALD REAGAN Bandaríkjaforseti sagði í kvöld að Bandaríkjamenn
myndu virða Salt Il-samninginn um takmörkun kjarnavopna og skoraði á
Mikhail Gorbachev, leiðtoga Sovétríkjanna, að bæta fyrir brot Rússa á ákvæð-
um samningsins.
Reagan sagði Bandaríkjamenn
hafa virt öll ákvæði samningsins,
sem Bandaríkjamenn frestuðu að
staðfesta vegna innrásar Rússa í
Afganistan. Sovétmenn hefðu aftur
á móti brotið Salt II og áskildu
Bandaríkjamenn sér rétt til að
mæta frekari brotum þeirra með
því að fara sjálfir út fyrir ákvæði
samningsins á viðeigandi og sam-
svarandi hátt.
Með þessu móti er Salt Il-samn-
ingurinn tæknilega í gildi, en
Bandaríkin munu ekki líða frekari
brot af hálfu Sovétmanna. Höfðu
Bandaríkjamenn íhugað að hafna
samningnum vegna ítrekaðra brota
Rússa, en ákváðu að ganga ekki
lengra til að spilla ekki tilraunum
stórveldanna til að semja um tak-
mörkun vígbúnaðar. Sagðist Reag-
an reiðubúinn að ganga lengra en
áður til að ná „raunverulegri gagn-
kvæmri takmörkun".
í bréfi til Gorbachevs í dag
hvatti Reagan til þess að Rússar
bættu fyrir „mjög alvarleg" brot á
samningnum. Sagði Reagan Rússa
m.a. hafa gert tilraunir með aðra
nýja langdræga kjarnaflaug í
trássi við Salt II, og áskildi Banda-
ríkjunum rétt til að gera tilraunir
með svokallaða Midgetman-flaug,
sem tilbúin verður eftir tvö ár.
Leiðtogar beggja flokka í Banda-
ríkjaþingi fögnuðu yfirlýsingu
Reagans í dag. Þeir sögðu hana til
þess fallna að draga úr spennu á
alþjóðavettvangi og dregin hefði
verið tönn úr áróðursmaskínu Sov-
étmanna.