Morgunblaðið - 11.06.1985, Síða 5
MORGUNBLAÐID, ÞRIÐJUDAGUR 11. JÚNÍ 1985
5
Yfirleitt
gott at-
vinnuástand
— Verkfall sjómanna í
Reykjavík hefur þó
leitt til uppsagna
í MAÍMÁNUÐI sl. voru skráðir
rösklega 16 þúsund atvinnuleysisdag-
ar á iandinu öllu. hetta jafngildir því
að um 800 manns hafi verið á at-
vinnuleysisskrá allan mánuðinn eða
sem svarar 0,6 % af áætluðum mann-
afla samkvæmt spá hjóðhagsstofnun-
ar, segir í frétt frá Vinnumálaskrif-
stofu félagsmálaráðuneytis.
Skráðum atvinnuleysisdögum
hefur samkvæmt þessu fækkað um
2 þúsund frá fyrri mánuði og voru
færri núen í sama mánuði árin
1984 og 1983. Þessi fækkun skráðra
atvinnuleysisdaga átti sér stað víð-
ast hvar á landinu nema í Reykja-
vík, þar sem skráðum dögum fjölg-
aði um 2.400 frá aprílmánuði. Þar
gætir vafalaust áhrifa frá fjölgun á
vinnumarkaði með tilkomu skóla-
fólks, en síðasta virkan dag mánað-
arins voru 224 skólanemendur á at-
vinnuleysisskrá þar, en voru 432 á
sama tíma í fyrra. Bendir þetta til
þess að skólafólki gangi mun betur
að fá vinnu nú en í fyrra, sérstak-
lega stúlkum, sem eru mun færri
skráðar nú en áður.
Þegar á heildina er litið virðist
atvinnuástandið gott viðast hvar á
landinu. Verkfall sjómanna í
Reykjavík hefur þó þegar leitt til
uppsagna hjá fiskvinnslufólki á
stærri vinnslustöðunum og getur
auk þess ef dráttur verður á lausn
þess haft áhrif á sumarvinnu
skólafólks, sem gjarnan er ráðið til
afleysinga í sumarleyfum fisk-
vinnslufólks, segir í frétt frá ráðu-
neytinu.
Hinir æöislegu
Tremeloes
er að hefjast á
I I I Kl
í Broadway nk. föstudags-, laugar-
dags- og mánudagskvöld, sunnudags-
kvöld í Sjallanum.
Missiö ekki af einstæðu tækifæri til aö rifja upp gömlu
stemmninguna meö gömlu góöu félögunum í Broadway.
Miðasala og borðapantanir í Broadway
daglega, slmi 77500. ctX)AtmAy
V,