Morgunblaðið - 11.06.1985, Page 18
18
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 11. JÚNÍ 1985
’85 nefndin:
Hátíðahöld
kvenna 19. júní
KONUR á Islandi minnast þess meö
ýmsu móti viösvegar um landiö 19.
júní næstkomandi aö 70 ár eru liðin
síðan þær fengu kosningarétt.
í fréttatilkynningu frá 19. júní-
hóp ’85-nefndarinnar eru konur
hvattar til að sýna það í orði og
verki að þær muni og viti hversu
langa og stranga baráttu hafi
þurft til að konur fengju þennan
sjálfsagða rétt.
Konur um allt land munu halda
fundi í tilefni þessara tímamóta
og gróðursetja tré. 19. júní-hópur-
inn á Suður- og Vesturlandi undir-
býr sameiginlegan fund undir Ár-
mannsfelli kl. 20.00 að kvöldi 19.
júní. í Eyjafirði munu konur fjöl-
menna á Gróðursvæði, s.s. í
Kjarnaskógi og víðar, og verður
þvínæst haldin kvöldvaka í skóg-
inum. Svona mætti lengi telja,
eins og segir í fréttatilkynning-
unni, en þá er einkum vakin at-
hygli á því að með gróðursetningu
trjáa víðsvegar um landið séu kon-
ur að hefja nýtt landnám, sem
ýmsar hafi hug á að halda áfram,
og minnast þannig þeirrar baráttu
sem formæður og -feður þeirra
hafi háð til þess að réttarbót yrði
og styrkja jafnframt stöðu sína til
áframhaldandi baráttu fyrir bætt-
um lífskjörum á íslandi.
(Úr rrélUlilkyniliogu)
37 stúdentar útskrifað-
ir frá Kvennaskólanum
KVENNASKÓLANUM í Reykjavík
var sagt upp 31. maí sl. I skólanum
var starfrækt uppeldissvið meö
tveimur tveggja ára brautum, fóst-
urbraut og íþróttabraut, og mennta-
braut til stúdentsprófs. Á haustönn
voru liðlega 300 nemendur í skólan-
um og í janúar voru útskrifaöir 29
stúdentar. Á vorönn voru nemendur
292 en útskrifaðir stúdentar 37.
Verðlaun fyrir bestan heildar-
árangur á vorönninni fékk Guð-
laug Bjarnadóttir frá Reykjum í
Hrútafirði, en verðlaunin eru veitt
úr Minningarsjóði frú Þóru Mel-
steð. Auk þess voru veitt bóka-
verðlaun í tungumálum frá
danska, þýska og franska sendi-
ráðinu, úr Minningarsjóði frk.
Ragnheiðar Jónsdóttur, Móður-
málssjóði og Minningarsjóði Guð-
rúnar J. Briem. Fyrir hönd ný-
stúdenta talaði Steinunn Mar og
kveðjur bárust frá 30 og 45 ára
afmælisárgöngum.
Skólastjóri, Aðalsteinn Eiríks-
son, minntist í ræðu sinni þriggja
kvenna sem starfað höfðu við
skólann og sett á hann sitt mark,
en látist á skólaárinu, þeirra Sól-
veigar Kolbeinsdóttur frá Skriðu-
landi, Þorbjargar Halldórs frá
Höfnum og Maríu M. Guðmunds-
dóttur frá Jónsnesi.
Nýstúdentum og gestum var
boðið til kaffidrykkju í skólanum
og skólanum þannig slitið i 111.
sinn.
Nýstudentar frá Kvennaskólanum í Reykjavík.
Framkvæmdanefnd kvenna vegna hátíðahaldanna 19. júní.
J J J I
Herra: bolur 449.-, jakki 1.989.-,
belti 229.-, buxur 1.189.-, skór
599.-.
Dömu: jakkaföt 2.489.-, bolur
439.-, belti 429.-, veski 989.-.
Dömu: peysa 1.189.-, jakki
1.889.-, buxur 1.189.-.
Dömu: kjóll 1.789.-, klútur, slaeða
199.-.
Herra: skyrta 469.-, bindi 289.-,
buxur 889.-, skór 989.-.
Telpna: bolur 299.-, jakki 1.589.-,
buxur 849.-, skór 299.-.
Drengja: bolur 439.-, jakki 1.299.-,
buxur 849.-, skór 599.-.
Dömu: bolur439.-, buxur 1.189.
belti 429.-.
Dömu: bolur989.-, buxur 1.189.-
Sími póstversiunar er 30980.
HAGKAUP