Morgunblaðið - 11.06.1985, Side 21
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 11. JÚNÍ 1985
21
Morgunblaðið/G Berg
Finnur Birgisson, skipulagsstjóri, og Jónas Karelsson, formaður skipulagsnefndar Akureyrarbæjar, við hið nýja
skipulag.
Akureyri:
Nýtt deiliskipulag innbæjarins sýnt
Akureyn, 7. júní.
NÝTT deiliskipulag Innbæjarins i
Akureyri er nú til sýnis í Dynheim-
um i Akureyri. Hjörleifur Stef-
ánsson, arkitekt hefur unnið hið
nýja deiliskipulag. Gert er ráð
fyrir að allnokkur ný hús rísi á
svæðinu, en að sögn Jónasar Kar-
elssonar, formanns skipulags-
nefndar, er meginmarkmið skipu-
lagsins það að fjaran og innbær-
inn verði áfram lifandi íbúðar-
hverfi sem haldi öllu sínu menn-
ingarlega og efnhagslega gildi,
sem vissulega erifyrir hendi í
þessum elsta kjarna byggðar á
Akureyri.
Bæjarstjórn hefur fyrir sitt
leyti samþykkt nýja deiliskipulag-
ið og er það nú sýnt bæjarbúum
samkv. skipulagslögum, sem kveða
á um að slíkt skipulag skuli kynnt
opinberlega í 6 vikur. Að sýning-
unni lokinni hafa bæjarbúar síðan
tvær vikur til stefnu til að skila
inn athugasemdum varðandi
skipulagið.
Sýningin í Dynheimum verður
opin alla virka daga kl. 14.—18 og
munu starfsmenn skipulagsdeild-
ar Akureyrarbæjar verða á sýn-
ingunni kl. 16—17 daglega til þess
að svara fyrirspurnum varðandi
deiliskipulagið. Ráðgert er að efna
til borgarafundar um málið að
lokinni sýningunni.
— GBerg
Götumynd hins nýja deiliskipulags frá Búóargili og norður undir sjúkrahúsið.
Mazda
eigendur
Bestu kaupin eru hjá okkur!
Hjá okkur fáiö þiö original pústkerfi í allar geröir
MAZDA bíla. Viö veitum 20% afslátt ef keypt eru heil
kerfi meö festingum. Kaupiö eingöngu
EKTA MAZDA pústkerfi
eins og framleiöandinn mœlir meö
— þau passa í bílinn.
BILABORG HF.
Smiðshöfða 23. S. 81265
HÚSA
SMIEUAIM
Siiödvog. 3-6. )Ö4 Pkjykjavík ~ Sirnt 687700
—_m--------