Morgunblaðið - 11.06.1985, Page 23
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJPDAGUR11. JPNÍ1985
23
FV
■ - £
S&ff
at‘. ííj«&
Morgunblaðið/TJlfar
Halldór Guðmundsson forstöðumaður Hlífar og framkvæmdastjóri Bygg-
inj'asamvinnufélaf'sins Hlífar. Á auða svæðinu vinstra megin við bygginguna
i nýja húsið að rísa.
stofa, bókasafn auk aðstöðu fyrir
félagsstarf aldraða og e.t.v. vinnu-
aðstaða fyrir þá sem vilja starfa
að atvinnurekstri.
Þegar þessi nýbygging verður
komin í gagnið á að vera búið að
sjá vel fyrir málefnum aldraðra
hér á ísafirði fram yfir næstu
aldamót og ef vel tekst til virðist
mér að ísafjörður verði aftur
kominn í forystu á íslandi í öldr-
unarmálum, en að því stefnum við
afdráttarlaust," sagði Halldór
Guðmundsson að lokum, en hann
er jafnframt því að vera forstöðu-
maður Hlífar framkvæmdastjóri
hins nýstofnaða byggingarsam-
vinnufélags og er ákveðinn í að
láta þær áætlanir sem gerðar hafa
verið standast. Má reikna með því,
þar sem starf hans sem forstöðu-
manns hefur verið mjög árang-
ursríkt og íbúar Hlífar allir mjög
ánægðir með þennan forstöðu-
mann sinn.
Staðsetning hússins er mjög
góð, efst á eyrinni, í nágrenni við
æskuna í menntaskólanum og
væntanlegan tónlistarskóla neðar
í lóðinni. Stutt er að ganga niður í
gamla bæinn og í verslunar- og
þjónustufyrirtæki bæjarins. Þá er
gamli blómagarðurinn að verða
hluti af umhverfi Hlífar og gott
útsýni er út yfir Pollinn. Arkitekt
hússins er Ingimundur Sveinsson
og er að sjá að honum hafi tekist
mjög vel að leysa fjölmörg mál í
byggingu slíks heimilis.
— Úlfar.
Lág tilboð í vegagerð:
Hreiii undirboð verk-
taka meðal skýringa
— segir Jón Rögnvaldsson, verkfræðingur hjá Vegagerðinni
MIKILL munur hefur oft í tíðum verið á tilboðum verktaka og kostnaðaráætl-
unum Vegagerðar ríkisins við útboð vegagerðarverka í vor og vetur. Lægstu
tilboð hafa í mörgum tilvikum verið innan við helmingur kostnaðaráætlunar
Vegagerðarinnar og í einstaka tilvikum verið ennþá lægri. Af þessu tilefni
vakna spurningar um af hverju þessi mikli munur stafi. Jón Rögnvaldsson
verkfræðingur fjallar um þessi mál f grein í nýútkomnum Vegamálum —
fréttabréfi Vegagerðarinnar. Telur hann að undirboð verktaka sé meðal skýr-
inga á þessum mun.
1 greininni gerir Jón fyrst grein
fyrir muninum á markaðsspá og
kostnaðaráætlun en hjá Vegagerð-
inni hefur það verið venja á undan-
förnum árum, að tala sú sem hefur
verið birt við opnun tilboða byggi á
kostnaðaráætlun en ekki mark-
aðsspá með vissum undantekning-
um, svo sem þegar boðin er út lögn
bundinna slitlaga, annarra en
klæðninga. Hann segir að mark-
aðsspár byggi á tilboðsverðum
verktaka í hliðstæð verk, ásamt
mati á aðstæðum, s.s. árstíma,
ástandi á vinnumarkaði o.fl.
Kostnaðaráætlun byggi hins vegar
á reynslutölum um raunverulegan
kostnað við einstaka verkþætti f
verkum hjá Vegagerðinni sjálfri
eða upplýsingum um afköst ein-
stakra tækja.
Hann telur orsakir þess munar
sem verið hefur á tilboðum verk-
taka og kostnaðaráætlana vera
margar en nefnir sérstaklega eftir-
farandi atriði:
— Eins og áður segir eru eininga-
verð þau sem notuð eru við gerð
kostnaðaráætlana flest byggð á
reynslutölum úr eigin verkum.
Að sjálfsögðu liggja misjafn-
lega ítarlegar upplýsingar fyrir
um hina ýmsu verkþætti og
raunar mjög fátæklegar um
suma. Hefur oft á tíðum verið
mjög erfitt að fá sundurliðun
kostnaðar úr verkum og jafnvel
enn erfiðara að fá upplýsingar
um raunverulegt magn. Af
þessum orsökum verður að telja
að ýmis einingaverð, sem notuð
hafa verið standi á veikum
runni.
flestum verkum Vegagerðar-
innar, sem unnin eru með eigin
vinnuflokkum munu allir bið-
tímar tækja vera greiddir og
koma því beint inn í eininga-
verð viðkomandi verkþátta. Lík-
legt er að verktakar geti haft
meira frjálsræði um reiknings-
færslur biðtíma, þegar um eigin
tæki er að ræða. Taxtabreyt-
ingar hafa verið látnar hafa
bein áhrif á einingaverð þar,
sem það hefur getað átt við
(akstur, vélavinna), annarsstað-
ar hafa hækkanir verið reiknað-
ar í samræmi við hækkun vega-
gerðarvísitölu. Líkur eru á að
hækkanir á töxtum hafi í sum-
um tilfellum verið óeðlilega
miklar. Má benda á að á tíma-
bilinu frá ágúst 1977 til mars
1985 hafa taxtar vinnuvéla
(D7E f) og vörubíla (10-13 tonn)
hækkað talsvert meira en vega-
erðarvísitalan.
sumum verkþáttum má ef-
laust gera ráð fyrir að komin sé
til sögunnar ný tækni, sem hafi
áhrif á verð þeirra frá því sem
var þegar einingaverð Vega-
gerðarinnar voru ákvörðuð, má
þar t.d. nefna sprengingar.
Reynt hefur verið að leiðrétta
verðin með tilliti til þessa, en
ekki er víst að það takist alltaf
til fulls.
— Loks er ekki ósennilegt að sum
af þeim tilboðsverðum sem sést
hafa að undanförnu séu hrein
undirboð.
KALT HÁREYDANDI VAX
LOUIS MARCEL
S T R I P W A X
Ekkert sull,
engin fyrirhöfn.
OIME
IHMtMtHI RtHðVCS
UMWAIMIEÞ M AlM FO«
LOUIS MARCEL
FACIAL STRIP WAX
Kalt
háreyðandi
VAX
»■»* *>*■«•*
Kalt strimla-VAX fjarlægir
óæskileg líkamshár á svip-
stundu, meö einu handtaki.
Reyndu kalda strimla-VAXIÐ frá
Louis Marcel.
LO
þANN
rrM fínu útgáfuna
rforei.K«*1T