Morgunblaðið - 11.06.1985, Síða 30
30
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 11. JÚNÍ 1985
Laurent Fabius
í A-Þýskalandi
Berlín, 10. júní. AP.
LAIIRKNT Fabius, forsætisráð-
hcrra Frakklands, kom til Austur-
Berlínar í dag og næstu tvo dagana
mUn hann eiga viðræður við Erich
Honecker, leiðtoga austur-þýska
Bandaríkin:
Claus von
Biilow
sýknaður
Providence, Khode Island, Bandaríkjunum,
10. júní. AP.
kommúnistaflokksins, og aðra
embættismenn.
Honecker flokksleiðtogi tók
sjálfur á móti Fabius á Schöne-
feld-flugvelli í Austur-Berlín en
franski forsætisráðherrann er
fyrsti ráðamaðurinn frá ríkjum
bandamanna, Bandaríkjanna,
Frakklands og Bretlands, sem
fer í opinbera heimsókn til
Austur-Þýskalands. Af þessum
sökum er mikið látið með komu
hans og sagði m.a. í blöðunum,
að heimsóknin væri til marks
um „þá miklu virðingu, sem
Frakkar bæru fyrir austur-
þýska alþýðulýðveldinu". Búist
er við, að aukin viðskipti milli
ríkjanna verði helsta umræðu-
efnið.
Erich Honecker, leiðtogi austur-þýska kommúnistaflokksins, fagnaði Laurent Fabius, forsætisriðherra Frakka, við
komuna til Austur-Berlínar.
(’LAIJS von Biilow, kaupsýslu-
maður af dönskum ættum, var í
dag sýknaður af því að hafa í tví-
gang reynt að fyrirfara konu sinni
með insúlíngjöfum. í öðrum rétt-
arhöldunum fyrir þremur árum
var hann hins vegar fundinn sek-
ur.
Von Búlow var ákærður fyrir
að hafa sprautað konu sína,
Mörthu „Sunny" von Búlow,
með insúlíni á jólunum 1979 og
aftur 1980 með þeim afleiðing-
um, að hún féll í dá og meðvit-
undarleysi. Náði hún sér í fyrra
sinnið én læknar segja, að hún
muni ekki fá rænu aftur eftir
síðara áfallið.
Solsjenitsin:
Sækir um
bandarískan
ríkisborg-
ararétt
HINN kunni sovéski rithöfundur,
Alexander Solsjenitsin, sem búið
hefur í útlegð í Bandaríkjunum sl.
níu ár, hefur sótt um bandarískan
ríkisborgararétt. Þetta kemur
fram í frétt norrænu fréttastof-
unnar TT frá Washington.
Samkvæmt frétt TT hefu.
Solsjenitsin einnig sótt um
ríkisborgararétt fyrir Nataliu,
eiginkonu sína, og fái þau hjón
ósk sína uppfyllta öðlast synir
þeirra þrír sjálfkrafa banda-
rískan þegnrétt.
Solsjenitsin, sem er 66 ára að
aldri, hefur búið í Stalbans í
Vermont-ríki frá því hann kom
til Bandaríkjanna árið 1976.
Hann hrökklaðist frá Sovétríkj-
unum árið 1974 og bjó fyrstu tvö
útlegðarárin í Vestur-Þýska-
landi og Sviss.
Lýtalæknir efast um að
lík Mengeles sé fundið
Frankfurt, 10. júní. AP.
SÆKJANDINN í máli stríðsglæpamannsins Josefs Mangele, Hans Eberh-
ard Klein, sagði í dag að hann væri að rannsaka hvort bæversk hjón,
lögfræðingurinn Hans Sedlmaier og kona hans, hefðu hindrað gang réttvís-
innar með því að skýra ekki frá skjölum, sem þau kynnu að hafa fengið frá
Mengele.
Lögfræðingurinn starfaði eitt
sinn fyrir landbúnaðarvélafyrir-
tæki Mengele-fjölskyldunnar í
Gúnzburg í Bæjaralandi. Seint í
síðasta mánuði fundust bréf og
fleiri skjöl, sem kunna að hafa
komið frá Mengele, í skáp í
svefnherbergi Sedlmaiers.
Þessi bréf leiddu til þess að upp
var grafið lík manns, sem kann að
hafa verið Mengele, skammt frá
Sao Paulo í Brazilíu. Maðurinn,
sem þar var grafinn, mun hafa
látizt þegar hann var á sundi 7.
febrúar 1979. Rannsókn á líkinu
heldur áfram.
Klein var að því spurður hvort
honum fyndist ekki einkennilegt
að fjölskylda Mengele hefði ekki
tilkynnt um dauða hans 1979. „Það
vekur nokkrar efasemdir,” svaraði
hann. „Við höfum reynt að tala við
fjölskylduna, en án árangurs."
í Sao Paulo telur kunnur lýta-
læknir, Roberto Farina, að líkið,
sem brazilíska lögreglan telur lík
Mengeles, sé lfk annars manns.
Hann sagði að verulegur munur
væri á ljósmyndum af Mengele og
nýfundnum myndum af mannin-
um. Eyru þeirra og nef séu ólík.
Mengele var dökkeygður, en mað-
urinn á nýfundnu myndunum var
bjarteygður.
Farina kvaðst telja, eftir vand-
lega athugun á myndunum, að
maðurinn hefði ekki látið breyta
útliti sínu með skurðaðgerð.
Jaime Edson Andrade Mend-
onca, sem undirritaði dánarvott-
orð mannsins sem drukknaði, seg-
ir að maðurinn hafi verið á sex-
tugsaldri. Mengele var 68 ára
1975. Samkvæmt dánarvottorðinu
hét maðurinn Wolfgang Gerhard
og var austurrískur.
Tannlæknir að nafni Maria Hel-
ena Vieira de Castro kveðst hafa
stundað manninn, sem lögreglan
telur að hafi verið Mengele, þar til
í apríl 1979, tveimur mánuðum
eftir að yfirvöld telja að Mengele
hafi drukknað.
Nazistaveiðarinn Simon Wies-
enthal sagði í gær að vestur-þýzka
stjórnin hefði árangurslaust reynt
að greiða stjórn Paraguay 16
millj. marka 1964 fyrir að fá
Mengele framseldan.
Upplýsingar Wiesenthals virð-
ast stangast á við yfirlýsingu
Gittu nokkurrar Stammer, sem
sagði að ráðsmaður á býli fjöl-
skyldu hennar í Brazilíu hefði við-
urkennt 1962 að hann væri Meng-
ele og búið á býlinu 1961—1974.
Þrír vestur-þýzkir sérfræð-
ingar, sem fóru til Sao Paulo í síð-
ustu viku, ganga út frá því að lík-
ið, sem þar var grafið upp, sé lfk
Mengele, að sögn blaðsins „Die
Welt“.
Blaðið segir að þeir hafi dregið
þessa ályktun þegar þeir höfðu yf-
irheyrt austurrísk hjón og konu,
sem sögðu að þau hefðu skotið
skjólshúsi yfir Mengele í Brazilíu.
Samkvæmt þessum upplýsing-
ISRSSÉÉ
Wolfgang Gerhard (á miðri mynd), sem lögreglan í Brazilíu telur að hafi
verið Josef Mengele. Ljósmyndin fannst á heimili austurrískra hjóna í Sao
Paulo, sem sagt er að hafi skotið yfir hann skjólshúsi.
um kom Mengele til Gúnzburg
1959 til þess að verða við útför
föður síns. Sagt er að hann hafi
fengið lítið fé frá fjölskyldu sinni.
Áður en Mengele fór til Brazilíu
bjó hann i Argentinu og kallaði
sig „Zimmermann" samkvæmt
þessum upplýsingum.
Mengele fluttist til Caieras
skammt frá Sao Paulo 1%7, sett-
ist að í húsi hjónanna Geza og
Gitta Stammer og stjórnaði kaffi-
plantekru þeirra, að sögn Die
Welt. Hann fluttist til Sao Paulo
1%9 og bjó þar þangað til hann
beið bana í sundi 7. febrúar, að
sögn blaðsins.
Maðurinn sem var i raun Wolf-
gang Gerhard, sneri aftur til Graz
i Austurriki 1974 og gaf Mengele
brazilískt vegabréf sitt, ökuskír-
teini og atvinnuleyfi. Gerhard lézt
16. desember 1978, að sögn Die
Welt.
Sonur Mengele, Rolf, heimsótti
föður sinn í Braziíiu 1977 eða 1978.
„Welt am Sonntag“ segir að mynd
af Rolf hafi fundizt i húsinu, þar
sem Mengele er sagður hafa búið í
Sao Paulo. Rolf Mengele býr i
Freiburg i Vestur-Þýskalandi.
Frú Stammer segir, að maður-
inn, sem hafi í raun og veru verið
Gerhard, hafi borið ábyrgð á ör-
yggi Mengele í Brazilíu og starfað
í þágu alþjóðahrings sem haldi
verndarhendi yfir nazistum.
Ungverjaland:
Tuttugu og fímm óháðir fram-
bjóðendur náðu sæti á þingi
Búdapest, 10. Júní. Al'.
25 FRAMBJÓÐENDUR óháðir ung
verska kommúnisUflokknum voru
kjörnir á þing í kosningum á laugar-
dag. Hafa aldrei svo margir óhaðir
frambjóðendur náð kosningu, en
þingið skipa alls 387 þingmenn.
Samkvæmt niðurstöðum kosn-
inganna biðu þeir frambjóðendur,
sem ekki voru á hinum opinbera
lista kommúnista, mestan ósigur.
Meðal þeirra sem ekki komust á
þing voru Jende Fock, fyrrverandi
forsætisráðherra landsins, og Bela
Biszku, fyrrum innanríkisráðherra.
Aðalritari kommúnistaflokksins,
Imre Pozsgay, kvaðst eftir að
niðurstöður kosninganna voru
kunngerðar ekki búast við því að
átök yrðu milli þingmanna komm-
únistaflokksins og hinna óháðu:
„Við berum fyllsa traust til þeirra
(þ.e. hinna óháðu þingmanna),
enda samþykktu þeir stefnuskrá
kommúnistaflokksins."
Ungverskir andófsmenn höfðu
reynt án árangurs að tilnefna fjóra
frambjóðendur í fjórum kjördæm-
um. Þeir hafa sakað stjórnvöld um
að hafa hagrætt kosningaúrslitun-
um að eigin geðþótta.
Meðal þeirra andófsmanna sem
voru mjög nálægt því að komast á
þing var Laszlo Rajk, og héldu
stuðningsmenn hans því fram að
stjórnvöld hefðu hagrætt úrslitun-
um í kjördæmi hans. Vantaði hann
einungis 67 atkvæði til að ná kjöri.
Kosningarnar nú voru þær
fyrstu eftir að þau Iög voru sett
1983 að a.m.k. tveir frambjóðendur
yrðu að vera í kjöri um flest þing-
sætanna.
Kommúnistaflokkurinn tilnefndi
þó tvo frambjóðendur í langflest
þingsætanna, en kjósendur fengu
að tilnefna aðra en félaga í komm-
únistaflokknum í 71 kjördæmi.
Kjörsókn var í samanburði við 97%
árið 1980, en 5,4% atkvæða voru
ógild.
Veður
Lægst Hnst
Akureyri 13 skýjaó
Amsterdam 10 18 skýjaó
Aþena 20 33 heiðskírt
Barcelona 22 lóttskýjaö
Berlin B 15 skýjaö
BrUssel 6 17 rígning
Chicago 21 29 rigning
Dublin 7 14 skýjaó
Feneyjar 18 rigning
Frankturt 8 14 rigning
Genf 4 16 skýjaó
Helsinkí 8 13 skýjaó
Hong Kong 28 28 skýjaó
Jenisalem 15 29 heiöskírt
Kaupmannah. 10 13 skýjaó
Las Palmas 26 téttskýjaó
Lissabon 14 25 heióskirt
London 9 17 heíóskirt
Los Angeles 19 30 heióskirt
Lúxemborg 11 skúrir
Malaga 22 alskýjaó
Mallorca 24 Wttskýjaó
Miami 25 32 heióskirt
Montreal 11 19 heiöskirt
Moshva 11 12 skýjaó
Mew York 16 24 heióskírt
Ostó 7 12 skýjaó
París 11 18 skýjaó
Peking 18 32 heiðskirt
Reykjavík 8 rigning
Ríó de Janeiro 10 24 skýjaó
Rómaborg 19 24 heiðskirt
Stokkhólmur 10 14 skýjaö
Sydney 9 20 heiöskírt
Tókýó 17 21 skýjaó
Vínarborg 10 16 skýjaó
Þórshöfn 9 léttskýjað