Morgunblaðið - 11.06.1985, Qupperneq 33
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 11. JÚNÍ 1985
33
Kuldakast
í Lundúnum
London, 10. júní. AP.
ÞAÐ SEM af er júnímánuði hefur
ekki verið kaldara á Bretlandseyjum
í tvo áratugi, og útlitið er frekar
dapurlegt, áframhaldandi dumb-
ungsveður, samkvæmt upplýsingum
brezku veðurstofunnar.
Föstudagurinn var kaldasti
júnídagurinn í 21 ár með aðeins 13
stiga hámarkshita. Alla vikuna
síðustu rigndi nær látlaust í Lond-
on og kalsaveður hið mesta. Á
laugardag braust sólin hins vegar
í gegnum skýjabakkann stöku
sinnum og hitinn fór upp í 14
gráður. Það sem af er júní hefur
veðrið verið líkara því sem Bretar
venjast í aprílbyrjun. Útlit er
fyrir rigningaveður alla þessa
viku.
Meðalhiti júnímánaðar í Lond-
on er 19 gráður og meðalúrkoma
4,7 sentimetrar. I síðustu viku
mældist úrkoman í höfuðborginni
4,75 sentimetrar.
Auglýsti
skilnaðinn
Worksop, 10. júní. AP.
ELLEN Pike var svo ánægð er henni
var veittur skilnaður frá fyrrum
ektamanni sínum, að hún keypti svo-
hljóðandi auglýsingu í staðarblaðinu
Worksop Guardian: „Ellen Pike, áð-
ur Waddel, er það gleðiefni að til-
kynna skilnað sinn frá Geoffrey.
Hún þakkar fjölskyldu sinni stór-
kostlegan stuðning."
Frú Pike sagði blaðamanni að
hún væri himinlifandi að vera
loksins laus við manninn sinn
fyrrverandi. Hún er 27 ára en
maður hennar 36 ára fyrrverandi
grænmetissali. Segist hún aldrei
hafa ráðstafað fjármunum jafnvel
og er hún auglýsti skilnaðinn.
Rokkstjarn-
an styður
námamenn
London, 10. júnf. AP.
Kokkstjarnan Bruce Springsteen
hefur gefið 20.000 dollara í sjóð, sem
styrkir námamenn í norðausturhluta
Englands sem þátt tóku í nær 12
mánaða árangurslausu verkfalli
brezkra námamanna, að sögn blaðs-
ins Sunday Mirror.
Springsteen hélt tónleika í
Newcastle í Englandi í síðustu
viku. Við það tækifæri átti hann
fund með eiginkonum náma-
manna, sem myndað hafa samtök
er berjast gegn lokun náma. Þar
lýsti hann samúð með málstað
Ætiarþú til útlanda ísumar?
Einn íslenskra banka býður Búnaðarbankinn Visa ferðatékka í
portúgölskum escudos frá Banco Pinto & Sotto Mayor í Portúgal
og ferðatékka í ítölskum lírum frá Banco di Roma.
Við bjóðum einnig:
Visa ferðatékka í Bandaríkjadollurum,
sterlingspundum, frönskum frönkum
og spönskum pesetum.
Ferðatékka í vestur-þýskum mörkum
frá Bank of America og ferðatékka í
Bandaríkjadollurum frá American Express.
VISA greiðslukort til afnota innanlands og utan.
Verið velkomin í bankann. Starfsfólk gerir sitt ýtrasta til að
veita skjóta og örugga þjónustu í öllum viðskiptum.
BtíNAÐARBANKI ÍSLANDS
TRAUSTUR BANKI
námamanna.
1» ára ending og reunsla UTANHÚSS MALNING pypý Olíulímmálning 18 litir f MÁLNING HINNA VANDLATU hentar vel á nýjan og áður málaðan stein, svo og á járn- og asbestklædd hús, bæði á veggi og þök. Niðurstöður Teknologisk Institut í Danmörku sýna að: PERMA-DRI,,andar“*hefur lágt PAM-gildi (m2 • h ■ mm Hg/g) Ken-Drí (siucone) notast á alla lárétta áveðursfleti áður en málað er, hentar einnig vel á múrsteinshlaðin hús og á hlaðinn stein.
á íslandi Greiðslukjör. SMIÐSBÚÐ /Sigurður Pálsson Sendum 1 postkrofu. Smiðsbúð 8 Garðabæ / Sími 91-44300