Morgunblaðið - 11.06.1985, Síða 37
MORG UNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 11. JÚNl 1985
37
Erlendir sægarpar
í íslandsheimsókn
Á HVERJU sumri kcmur nokkur fjöldi erlendra skúta hingað til lands og
fer þeim fjölgandi, sem leita siglandi á vit ævintýra á norðurslóðum. Þá
hefur þeim Islendingum einnig fjölgað, sem halda siglandi til Bretlands
og annarra landa. I gær lágu tvær erlendar skútur í Reykjavíkurhöfn,
Iskra frá Englandi og Asterias frá Póllandi. Blaðamaður ræddi við skip-
Laxveiði er nú nýhafin í Blöndu og sl. föstudag mætti kampakátur selur á
veiðisvæðið, laxveiðimönnum á Breiðinni til hrellingar
Óvenjulegur gest-
ur á ferð í Blöndu
verja í gær.
Utilokað að halda áætlun
Frank Mulville er breskur
sæfari sem gert hefur víðreist
um heiminn á skútu sinni síð-
ustu áratugina. Hann hefur
skrifað bækur sem hann byggir
á reynslu sinni af siglingum,
bæði skáldsögur og bækur
tæknilegs eðlis fyrir áhugamenn
um siglingar.
Mulville er nú staddur hér á
landi ásamt konu sinni Wendy,
en hingað sigldi hann frá smábæ
í Essex sem Wick heitir. Tók
ferðin sjö daga. Eiginkonan kom
hinsvegar fljúgandi frá Eng-
landi, en Mulville siglir oftast
einsamall.
Mulville tjáði blaðamanni að
ferðin hefði verið í erfiðara lagi,
hann hefði lent í ýmsum svipti-
vindum á leiðinni og því þurft að
nota vél skútunnar talsvert. Af
þeim sökum hafði áætlun hans
breyst nokkuð; í stað þess að
koma beina leið hingað hafði
hann þurft að lenda i Vest-
mannaeyjum til þess að taka
eldsneyti. Sagði hann vinda og
veðurfar við íslandsstrendur
með versta móti fyrir siglinga-
menn, og svo að segja útilokað
að halda nokkurri áætlun. Þó
taldi hann skútusiglingar ekki
hættulegri en margt annað sem
menn taka sér fyrir hendur, en
því var kona hans ósammála og
áleit þessa iðju hið mesta hættu-
spil.
Eins og fyrr segir hefur Mul-
ville ferðast víða á skútunni,
m.a. hefur hann fimm sinnum
farið þvert yfir Atlantshafið til
Ameríku, þar af einu sinni til
Kúbu. Um þá ferð skrifaði hann
bók, sem fjallar þó fyrst og
fremst um þau áhrif sem Kúba
hafði á hann, vangaveltur hans
um fólkið í landinu og hver áhrif
byltingin þar hafi haft á líf þess.
Sagði hann að maður liti lönd og
þjóðir sem maður heimsækti
með þessum hætti dálítið öðrum
augum en venjulegur ferðamað-
ur, enda væri öðruvísi brugðist
við manni, og því sæju sllkir
ferðalangar fólkið og umhverfið
líklega skýrari augum en þeir
sem koma og fara með venju-
legum hætti.
Skúta Mulville er fimmtíu og
átta ára gömul en sem ný að
hans sögn. Segir hann endingu
slíkra báta ótrúlega, ef smíðin og
efniviðurinn væri góður, og vel
við haldið. Hún ber nafnið Iskra
sem er komið úr slavnesku og
þýðir neisti, eða eitthvað í lík-
ingu við það.
Mulville hefur skrifað fimm
bækur og munu tvær þeirra vera
fáanlegar í bókaverslunum í
Reykjavík. Það eru bækurnar
Schooner Integrity, en hún fjall-
ar um örlög frægrar skútu sem
yfirgefin var af áhöfn sinni og
flæktist víða eftir það ýmist sem
draugaskúta eða i togi. Hin bók-
in er skáldsaga; byggir á reynslu
skútusjómannsins, sem siglir
einn síns liðs um heimsins höf,
einverunni, baráttunni við hafið,
veður og vinda, og ekki síður við
sinn eigin huga.
Skútan Iskra og áhöfn hennar,
Frank og Wendy Mulville, munu
halda austur fyrir land og til
Akureyrar á fimmtudaginn.
Þaðan liggur leiðin fyrir Vest-
firði og loks til Englands að nýju
um Færeyjar. Þegar heim kemur
kveðst Mulville munu halda
fyrirlestra í skútuklúbbum og
víðar um ísland og ferð sína
hingað. Segir hann mikinn ís-
landsáhuga vera meðal Breta, og
hafi flestir samúð með Islend-
ingum þegar þorskastríðin og yf-
irgangur Breta á miðunum hér
komi til tals.
AA haga seglum eftir vindi
Witold Sedziwy, skipstjóri á
Aterias, var að elda hádegismat
og nokkrir pólskir sægarpar
stóðu álengdar. Þeir lögðu upp
frá Szczecin (Stettin), Póllandi,
16. maí og fengu góðan byr.
Vindur var langoftast beint í
bakið svo að þeir gátu sleppt
krókaleiðum að mestu. Eftir
nokkurra daga siglingu komu
þeir að Hjaltlandi, þá var haldið
til Færeyja og þaðan til Jan
Mayen. Þá var haldið vestur og
stefnan sett á Grænland. „Við
sigldum meðfram nokkrum
borgarísjökum. Þar var fallegt
og sérstætt um að litast. Þessi
skúta er í eigu siglingaklúbbs
tækniskólans í Gliwice. Við er-
um 7 í áhöfn, 3 eru úr röðum
nema en 4 eru brautskráðir,"
sagði Witold.
Farkosturinn er ekki af verri
endanum, ríflega 40 fet á lengd
tvímastra og allur hinn renni-
legasti. Skútan var smíðuð fyrir
10 árum og hefur verið í stöðugri
notkun síðan. Hún fór kringum
hnöttinn 1976—77, um Karíba-
haf 1980 og Kanaríeyjar í fyrra.
í siglingafræðum felst hluti
námsins í að sigla yfir heim-
skautsbaug og gefur það ákveðin
réttindi. Witold sagði að ísland
væri ekki oft í fréttum þar
eystra en þó myndi hann eftir
viðureign IBV og pólsku bikar-
meistaranna í knattspyrnu 1984.
„Þessi ferð er kostuð af skól-
anum og okkur sjálfum. Við er-
um á undan áætlun svo að við
getum stoppað aðeins í Reykja-
vík. Að því búnu verður stefnan
tekin á Vestmannaeyjar og það-
an haldið um Péttlandsfjörð sem
er milli Skotlands og Orkneyja.
Ferðinni lýkur 13. júlí. Þá tekur
ný áhöfn við svo að tímasetning
verður að vera í lagi. Við gerum
ráð fyrir að leggja 110 mílur að
baki á sólarhring. Stundum
tekst það, stundum ekki. Maður
verður að læra að treysta á
máttarvöldin og haga seglum
eftir vindi.“
Blonduósi 10. júní.
ÞAÐ VAR heldur óvenjuleg sjón
sem blasti við laxveiðimönnum þeg-
ar þeir komu til veiða í Blöndu lostu-
dagsmorguninn 7. júní sl. Á aðal-
veiðisva-ðinu, svokallaðri Breið,
synti selur um í mestu makindum.
Kafaði hann annað slagið og brosti
til lands i gegnum yfirskeggið.
Veiðimönnum varð ekki um sel
þegar kobbi karlinn svamlaði
svona áhyggjulaus um bestu veiði-
hylina í upphafi veiðidags og
veiðileyfalaus, og töldu að þar með
væri öll veiði úr sögunni þann
daginn. Svo var þó ekki því tveir
átta punda laxar komu á land og
voru þeir jafnframt fyrstu laxarn-
ir úr ánni.
Gamalreyndir veiðimenn sem
stundað hafa laxveiðar í Blöndu í
marga áratugi, segja að aldrei
hafi orðið vart við seli svo ofar-
AÐALFUNDUR Slysavarnafélags
íslands var haldinn á Egilsstöðum
um síðustu helgi, en aðalfundur er
haldinn annað hvert ár. Um 180
manns sóttu fundinn frá hinum 95
björgunarsveitum og um 200 slysa-
varnadeildum um land allt.
Ýmis slysavarna- og björgun-
armál voru rædd á fundinum, að
sögn Haraldar Henryssonar, for-
seta SVFÍ. Öryggismál sjómanna
voru ofarlega á baugi og í ályktun
fundarins er lögð á það áhersla að
haldið verði áfram að byggja upp
meðal sjómanna stöðugt fræðslu-
starf um öryggismál. Telur fund-
urinn nauðsynlegt að komið verði
á fót námskeiðum um öryggismál
sem allir sjómenn, bæði yfir- og
undirmenn, sæki. Felur fundurinn
stjórn SVFÍ að vinna að því að
þoka þessu máli áfram, í sam-
vinnu við aðra þá aðila sem þar
eiga hlut að máli.
Á fundinum lágu fyrir drög að
samkomulagi milli SVFÍ, og
Landssambanda Flugbjörgunar-
sveita og hjálparsveita skáta, um
sameiginlegar aðgerðarstjórnir í
leitar- og björgunaraðgerðum á
landi. Stjórn SVFÍ hafði frum-
kvæðið að þessum samkomulags-
drögum og lýsti aðalfundurinn
stuðningi sínum við þau. Sam-
þykkti hann jafnframt ítarlega
ályktun um samskiptamál þessara
björgunaraðila þar sem lögð er
áhersla á að það sé óþarft og
óhagkvæmt að byggja upp marg-
falt kerfi á sviði björgunar- og
leitarmála, um allt land, enda
lega í Blöndu, og efuðust þeir því
fyrst um sannleiksgildi sögunnar.
Svæði það sem selurinn sást á, er
um það bil þrjá kílómetra frá sjó
og þurfti selurinn að fara undir
fjölfarna Blöndubrúna og upp
straummikið brot áður en hann
kom að besta laxveiðisvæðinu í
Blöndu.
Selurinn var sem vonlegt er,
hrakinn á brott af veiðisvæðinu,
þar sem eingöngu eru leyfðar fjór-
ar stangir í ánni, og hefur ekkert
spurst til hans síðan.
Mikið er um sel í ósi Blöndu, að
sögn flugáhugamanna sem fljúga
frá morgni til kvölds yfir Blöndu-
ós. Velta laxveiðimenn því nú fyrir
sér hvort sé heppilegra að hafa
með sér í veiðitúrinn byssuna eða
stöngina.
dreifi það óhjákvæmilega
starfskröftum.
Þá telur fundurinn hvorki þörf
né grundvöll fyrir stofnun sér-
stakra sveita atvinnumanna til
leitar- og björgunarstarfa, svo
sem hugmyndir hafi komið fram
um. Segir í ályktun hans að far-
sælast sé að byggja á starfi sjálf-
boðaliða innan frjálsra félaga-
samtaka, svo sem verið hafi. Þá
varar SVFÍ við óeðlilegri sam-
keppni á milli félagasamtaka á
sviði slysavarna og björguna í
fjáröflunum og fjárfestingum.
Þá áréttar aðalfundurinn fyrri
ályktanir landsþinga og aðalfunda,
félagsins, um gildi öflugs fræðslu-
og áróðursstarfs í umferðarmál-
um. Telur fundurinn að þeim mál-
um sé engan veginn nægilega
sinnt og þurfi að móta til fram-
búðar ákveðnari og markvissari
heildarstefnu í umferðarslysa-
vörnum.
Fundurinn fagnar þeirri ákvör-
ðun stjórnvalda á síðasta ári að
kaupa nýja þyrlu til Landhelgis-
gæslunnar, er geti sinnt leitar- og
björgunarstörfum. Segir í ályktun
fundarins að koma hinnar nýju
þyrlu, með þeim fullkomna tækja-
búnaði er hún verði búin, marki
tímamót í leitar- og björgunar-
málum. Nauðsynlegt sé að mark-
visst verði unnið að því að skapa
. þessum þætti góð rekstrarskilyrði
að öllu leyti og jafnframt að stefnt
verði að því að keypt verði a.m.k.
ein þyrla til viðbótar til að tryggja
öryggi í þessu starfi. -.
Frank og Wendy Mulville um borð f Iskra.
f Ji Ki V
Iskra við festar í Reykjavíkurhöfn.
m
Pólski hásetinn um borð í Asterias hafði nóg að gera. Hann gaf sér þó tíma
til að líta upp til að láta smella af sér mynd.
J
Aðalfundur SVFI ályktar:
Haldinn verði nám-
skeið um öryggis-
mál fyrir sjómenn