Morgunblaðið - 11.06.1985, Síða 49
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 11. JÚNÍ 1985
49
Fangar mánað-
arins — júní 1985
Mannréttindasamtökin Amn-
esty International vilja vekja at-
hygli almennings á máli eftirtal-
inna samviskufanga í júní. Jafn-
framt vonast samtökin til að
fólk sjái sér fært að skrifa bréf
til hjálpar þessum föngum og
sýna þannig í verki andstöðu við
að slík mannréttindabrot eru
framin.
PERÚ. Próspero Gaspar Cabezas
er smábóndi í Perú, sem hefur í
mörg ár gegnt ýmsum trúnað-
arstörfum í mörgum bændasam-
tökum í sínu heimahéraði. Hann
var handtekinn 28. október 1983
af ríkislögreglunni, yfirheyrður
og pyntaður hvað eftir annað.
Hann var handtekinn ásamt 17
öðrum forystumönnum bænda,
samkvæmt fyrirmælum frá yfir-
völdum í Pampas. Handtökurnar
áttu sér stað í kjölfar deilna um
landyfirráð, milli smábænd og
landeigenda í héraðinu. Bænd-
urnir eru í haldi samkvæmt lög-
um um hryðjuverkastarfsemi, þó
að sumir þeirra séu þekktir fyrir
að hafa fordæmt skæruliða-
starfsemi (Shining Path). Rétt-
arhöldum yfir þeim er stöðugt
frestað, og einn bændanna hefur
látið lífið vegna illrar meðferðar
við yfirheyrslur og lélegs aðbún-
aðar í fangelsinu.
KONGÓ. Claude-Ernest Ndalla er
48 ára gamall ríkisstarfsmaður,
sem var framarlega í þarlendum
stjórnmálum á sjöunda áratugn-
um, og gegndi ýmsum trúnað-
arstörfum í þágu stjórnarinnar.
Hann var handtekinn í mars
1984 í höfuðborginni Brazzaville
og hefur verið í haldi hjá örygg-
islögreglunni síðan, sakaður um
að hafa ógnað öryggi ríkisins.
Hann hefur verið í einangrun
mikið af tímanum. Um það leyti
sem Claude-Ernest Ndalla var
handtekinn, var hann meðal
þeirra sem höfðu uppi friðsam-
leg mótmæli gegn stjórninni.
Hann er talinn hafa játað aðild
að sprengjutilræðum sem áttu
sér stað í Barzzaville árið 1982,
undir áhrifum lyfja. í játning-
unni virðist annar ríkisstarfs-
maður hafa verið bendlaður við
sprengjutilræðin, og hefur hann
verið handtekinn síðar. Claude-
Ernest Ndalla hefur ekki verið
ákærður og er varðhald hans
fyrir utan ramma laganna,
þannig að hann getur ekki varið
mál sitt fyrir dómstólum.
LAOS. Khamtan Kanhalikham er
53 ára gamall veðurfræðingur og
fyrrum ríkisstarfsmaður. Hann
er kvæntur og sjö barna faðir.
Hann var handtekinn árið 1975 í
kjölfar stjórnarskipta og sendur
í „endurmenntunarbúðir", þar
sem hann hefur dvalið síðan.
Hann hefur aldrei verið ákærður
og stjórnvöld hafa ekki gefið
skýringu á varðhaldi hans. A ár-
unum 1975—76 voru margir
embættismenn fyrri stjórnar í
Laos handteknir og sendir í slík-
ar „endurmenntunarbúðir" án
dóms og laga. Margt af þessu
fólki hefur nú verið í haldi í tíu
ár. Amnesty-samtökin telja að
6—7000 manns séu enn í haldi í
u.þ.b. 20 „endurmenntunarbúð-
um“ eða í nauðungarvinnu.
Þeir sem vilja leggja málum
þessara fanga lið, og þá um leið
mannréttindabaráttu almennt,
eru vinsamlegast beðnir að hafa
samband við skrifstofu íslands-
deildar Amnesty, Hafnarstræti
15, Reykjavík.
Stæröir: 20—40 “
Litir: bleikt — svart.
Verö frá kr. 1.595.-
Sportval
\f Laugavegi 116 við Hlemm.
Símar 26690 — 14390.
Bómull í hæsta gæöaflokki.
Sendum í póstkröfu.
Bikarinn
Skolavoróvsiig 14 simi 24520
Bómullar-
gallar
^ f
frá Henson
nýjar geröir
ÖDÝRT!
Seljum ódýrt næstu daga
matar- og kaffisett
staka hluti eöa í settum.
Einnig smágallaö keramik.
Tilvaliö fyrir þá sem eru aö spara,
í sumarbústaöinn og fl.
OPIÐ
9—12 og 1—6 e.h.
ÁÖUBÖRNIN
Aldrei meira úrvaL
laugavegi 32.sími 27620