Morgunblaðið - 13.10.1985, Page 21
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR13. OKTÓBER 1985
21
Mikill áhugi á
nýja gististaðnum
Benal Beach
MORGUNBLAÐINU hefur borizt
eftirfarandi fréttatilkynning frá Út-
sýn: Sl. sunnudag stóð Ferða-
skrifstofan Útsýn fyrir kynningu
á Hótel Sögu á nýjum gististað á
Costa del Sol, Benal Beach. Hús-
fyllir var í Átthagasal, og verður
kynningin endurtekin í dag,
sunnudag kl. 3 síðdegis.
Svo mikill áhugi kom í ljós á
fundinum og eftir hann með fjölda
fyrirspurna að ákveðin hefur verið
hópferð með leiguflugi til Costa
del Sol helgina 24. — 27. þ.m. Út-
sýn hefur gert samning við Benal
Beach til tveggja ára og hefur
einkaumboð á Islandi fyrir sölu og
leigu á íbúðunum, sem alls eru
rúmlega 1000 og flestar þegar
seldar.
Sala ferða hjá Útsýn til Costa
del Sol með gistingu á Benal
Beach næsta sumar er einnig haf-
in. Virðást margir ætla að not-
færa sér sérstakt kynningarverð,
sem nú er í gildi og er jafnvel
lægra en verð þessa árs á sam-
bærilegum stöðum.
Hafnarfjörður
— Trönuhraun
Til sölu eöa leigu um 630 fm gott húsnæöi á jaröhæð
v/T rönuhraun. Til skamms tíma hefur verið veitingarekst-
ur í húsnæðinu. Húsnæðið er vel fallið til margskonar
starfsemi s.s. veitingarekstrar, verslunar, iðnaðar o.fl.
Laust strax.
Möguleiki á forkaupsrétti á öllu húsnæðinu sem er sam-
talsum 1000 fm.
Árni Grétar Finnsson hrl.,
Strandgötu 25, Hafnarfiröi, sími
51500.
Logafold
Hús meö tveimur sérhæðum
Glæsilegt 312 fm hús, teiknaö af Kjartani Sveinssyni.
EFRI H/EÐ: Glæsileg 170 fm sérhæð með 42 fm bílskúr.
Mjög skemmtil. hönnuð íb. Verö 3,4 millj. Óverötryggt.
NEÐRI HÆÐ: 100 fm glæsileg íb. 2-3 svefnherb. Suður-
verönd. Verö 1,7 millj. Óverötryggt.
íbúöirnar skilast fokheldar að innan en frág. að utan,
lóö sléttuö. Afh. um áramót. Ath. Hægt er aö fá tvö
veödeildarlán út á húsið. Teikn. á skrifst.
Opið 1-5
29077
SKÓLAVÖRÐUSTlG 38A SlMI: 2 90 77
VIÐAR FRIÐRIKSSON SÖUJSTJÓRI, H.S.: 2 70 72
ELVAR ÓLASON SÖLUMAÐUR, H.S.: 2 29 92
EINAR S. SIGURJÓNSSON VIÐSKIPTAFR
fHttgmtÞIflifrft
Áskriftarsímmn er 83033
Listasafn Islands:
Sýning á öllum verkum
Kjarvals í eigu safnsins
LISTASAFN íslands opnar sýn-
ingu á myndum eftir Jóhannes S.
Kjarval laugardaginn 19. október
nk. f tilefni af því að þann 15.
október eru liðin 100 ár frá fæðingu
listamannsins.
Á sýningunni verða öll verk
Kjarvals sem eru í eigu Lista-
safns íslands, samtals 128. Flest
eru þetta olíumálverk, en einnig
nokkrar vatnslitamyndir og
rúmlega fimmtíu andlitsmyndir,
teikningar af alþýðufólki á Aust-
urlandi. Þetta er 1 fyrsta sinn
sem safnið sýnir allar myndir
Kjarvals sem eru í eigu þess
samtímis.
Margar þekktar myndir verða
á sýningunni svo sem „Sumar-
nótt á Þingvöllum" sem Kjarval
málaði 1931. Þá verða sýndar
þrjár myndir sem hann málaði á
sama stað á Þingvöllum, en á
mismunandi tímum sólarhrings-
ins. Safnið keypti fyrstu mynd-
ina í þessari röð á uppboði, aðra
fékk safnið gefins frá Kjarval
sjálfum og þá þriðju frá Gunnari
Stefánssyni. Myndirnar málaði
Kjarval árið 1932 og hafa þær
aldrei fyrr verið sýndar saman.
í tengslum við sýninguna
kemur út rit með ljósmyndum
af öllum myndunum á sýning-
unni. Þar af eru 12 litmyndir. í
ritinu eru einnig upplýsingar um
hvert verk, hvenær það er málað,
stærð þess o.fl. Þá er nákvæm
skrá yfir hvar hvert verk hefur
verið sýnt og þau rit sem mynd-
irnar hafa verið birtar í.
Ýmsar endurbætur hafa verið
gerðar á safninu í tilefni sýning-
arinnar. Sérstakar innréttingar
hafa t.d. verið smíðaðar til þess
að andlitsmyndirnar af alþýðu-
fólkinu á Áusturlandi fái að
njóta sín sem best.
Eins og áður segir opnar sýn-
ingin laugardaginn 19. septem-
ber nk. kl. 14.00. Fyrirhugað er
að sýningin standi fram á næsta
vor.
MorgunblaðiÓ/FriÓþjófur
Myndin var tekin í Listasafni fslands fyrir helgi, en verið var að undirbúa
sýningu i verkum Kjarval sem opnuð verður 19. október.
LOliAÐ
Gullni haninn
tekur sér frí í
fíóra daga
Á morgim,-þriðjudag, miðvikudag og fimmtudag verður heldur
betur tekið til hendinni tyá Gullna hananum.
Strákamir hjá smíðastofunni Beyki sf. hafa lofað því að stækka
vínstúkuna og innrétta hana upp á nýtt á fjórum sólarhringum!
Á meðan verður því miður lokað.
Við opnum síðan aftur á föstudaginn kemur og höldum þá upp á
tveggja ára afmæli hanans.
YFIRLÝSirtG
Undirritaðir talsmenn smíðastofunnar Beykis sf.
lýsa því hér með yfir, að stækkun og breytingar á vínstúku
Gullna hanans, Laugavegi 178, verður lokið í tæka tíð.
UÐBJORFÍ GUnnARSSOri
REYUIR SIGURÐSSOH
GULUÍI HATÍinn
LAUGAVEGI 178
- BISTRÓ Á BESTA STAÐ í BÆFiUM -