Morgunblaðið - 13.10.1985, Qupperneq 30
30
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR13. OKTÓBER1985
ROCK HUDSON
Rockog
EVízabctn
t»y'oT-
vennagullið sem kunni
ekki að meta konur
Rocfc og
JeanSifnmons.
Rockog
Doris Day.
Um áratuga skeið var Rock Hud-
son draumaprins milljóna kvenna um
heim allan, eða allt frá því hann kom
fram í fyrstu kvikmynd sinni, Orustu-
flugsveitinni, árið 1948. Alls lék hann
í rúmlega 60 kvikmyndum auk þess
sem hann kom fram í mörgum sjón-
varpsþáttum. Og oft fór hann með
hlutverk elskhugans í myndunum, og
lék þá á móti öðrum stórstjörnum eins
og Elizabeth Taylor, Janet Leigh,
Jane Wyman, Gina Lollobrigida,
Leslie Caron og Doris Day.
að kom því mörgum á
óvart þegar hann fyrir
tæpu ári lýsti því yfir
að sú ímynd sem hann
hefði skapað sér í myndunum
væri alröng. „Ég er kynhverfur
og vil fá að lifa lífi mínu í friði og
ró það sem eftir er,“ sagði Rock
Hudson í lok síðasta árs. „Það
hefur aðeins verið ein kona í lífi
mínu, og það var móðir mín, sem
nú er látin."
Á undanförnum 20—30 árum
hefur orðið gífurleg breyting á
viðhorfum manna til samkyn-
hneigðar. Hér áður fyrr hefði
ekki þýtt fyrir Rock Hudson að
ætlast til að fá að fara áfram
með elskhugahlutverkin í kvik-
myndum ef upp hefði komizt að
hann væri kynvilltur. Þótt nán-
ustu vinir hans hefðu vitað þetta,
þá var farið með málið eins og
algjört trúnaðarmál.
Til að koma i veg fyrir að það
spyrðist út að Rock Hudson væri
Rock meö
eiginkonu sinni,
Phyllis Gates.
kynhverfur, ráðlagði umboðs-
maður hans honum að kvænast.
Eftir miklar fortölur lét Rock til
leiðast árið 1955 og gekk þá að
eiga einkaritara umboðsmanns-
ins, Phyllis Gates. Um hjóna-
bandið sagði hann: „Phyllis og ég
bjuggum ekki saman, og við
skildum eftir tveggja ára hjóna-
band. Ég hefði aldrei átt að fall-
ast á þetta fyrirkomulag, en ég
hafði slæma ráðgjafa sem stóð á
sama um einkalíf mitt. Ég hef oft
verið bæði einmana og óham-
ingjusamur."
Rock Hudson fæddist 17. nóv-
ember 1925 í bænum Winnetka í
Illinois-ríki og var þvi tæplega
sextugur er hann lézt 2. október
sl. Faðir hans var George Scher-
er, en hann hafði yfirgefið eig-
inkonu sína Kay tveimur mánuð-
um áður en sonurinn fæddist.
Fæðingin var Kay erfið og var
sonurinn tekinn með keisara-
skurði, og reyndist vega rúmar