Morgunblaðið - 13.10.1985, Síða 58
58
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR13. OKTÓBER1985
-H
«3
Fjölbreytt og vandaö námskeið í notkun
IBM-PC. Kennd eru grundvallaratriði við
notkun tölvunnar og kynnt eru algeng not-
endaforrit.
Dagskrá:
* Uppbygging og notkunarmöguleikar
IBM-PC
* Stýrikerfið MS-DOS
* Ritvinnslukerfið WORD
* Töflureiknirinn MULTIPLAN
* Gagnasafnskerfið Dbase II
* Assistant forritin frá IBM
* Bókhaldskerfi á IBM-PC
Tími: 21.—24. okt. kl. 13—16.
Leiðbeinandi: Dr. Kristján Ingvarsson
sois'iFíaa®
Hnitmiðað og vandað námskeið í notkun
AMSTRAD-tölvunnar og kynntur er algeng-
ur notendahugbúnaður. Tilvalið námskeið
fyrir alla AMSTRAD-eigendur.
Dagskrá:
* Grundvallaratriði við notkun
AMSTRAD
* Helstu jaðartæki tölva og notkun þeirra
* AMSTRAD BASIC
*
Teikning og tónlist með AMSTRAD
Ritvinnsla
Töflureiknir
Gagnasafnskerfi
Ýmis forrit á AMSTRAD
Tími: 22., 24., 29. og31.okt.
Unglingar kl. 17—20.
Fullorðnir kl. 20—23.
Leiðbeinandi: Dr. Kjartan Magnússon.
Innritun í símum 687590 og 686790.
Tölvufræðslan
Ármúla 36, Reykjavík.
Breytt ríkisstjórn
- óbreytt vandamál
f ÞINGHLEI
eftir STEFÁN FRIÐBJARNARSON
Alþingi íslendinga, 108. löggjafar-
þing, kom saman til starfa síðastiió-
inn fimmtudag, eftir óvenju stutt
starfshlé.
Samtímis liggur það fyrir að þing-
flokkur sjálfstæðismanna hefur gert
umfangsmiklar breytingar á skipan
ráðherra sinna í ríkisstjórn:
• Þorsteinn Pálsson, formaður
flokksins, tekur sæti í ríkisstjórn-
inni og verður fjármálaráðherra.
• Albert Guðmundsson verður iðn-
aðarráðherra.
• Matthías Bjarnason viðskipta- og
samgöngu ráðherra.
• Sverrir Hermannsson mennta-
málaráðherra.
• Ragnhildur Helgadóttir heilbrigð-
is- og tryggingaráðherra.
• Matthías A. Mathiesen tekur við
embætti utanríkisráðherra af Geir
Hallgrímssyni í byrjun næsta árs, en
Geir hverfur þá úr ríkisstjórninni að
eigin ósk.
Fyrsti ríkisráðsfundur þannig
breyttrar ríkisstjórnar verður vænt-
anlega næstkomandi miðvikudag.
Stefnuræða forsætisráðherra verður
væntanlega flutt næstkomandi
fimmtudag.
Þungavigtarþríeykið:
• ríkisstjórnin
• alþingi
• hagsmunasamtökin
Sögulegir þing-
flokksfundir
Lengi hefur legið í loftinu að
einhverjar breytingar stæðu til á
ráðherraliði Sjálfstæðisflokksins.
Þeirri kröfu óx stöðugt fylgi, eink-
um í röðum sjálfstæðismanna, að
Þorsteinn Pálsson, formaður
Sjálfstæðisflokksins, tæki sæti í
ríkisstjórninni. Þetta var talið
nauðsynlegt, bæði til að styrkja
stjórnina og pólitíska stöðu
flokksformannsins. „Staða for-
manns Sjálfstæðisflokksins utan
ríkisstjórnar var orðin óviðun-
andi,“ sagði Morgunblaðið í for-
ystugrein fyrir fáum dögum.
Geir Hallgrímsson, fyrrverandi
formaður flokksins, sem gegnt
hefur embætti utanríkisráðherra
frá þvi ríkisstjórnin var myndui
1983, heggur síðan á hnútinn ;
fundi þingflokksins siðastliðin;
mánudag. Þar flytur hann tillögi
um að Þorsteinn Pálsson taki m
þegar sæti i rikisstjórninni. Jafn
framt óskaði hann eftir þvi að ai
sér yrði veitt lausn frá ráðherra
dómi um næstu áramót. Þessi til
laga var samþykkt samhljóða ;
fundinum. Nánar verður vikið ai
henni síðar í þessu bréfi.
Á þessum sama fundi fól þing
flokkurinn Þorsteini Pálssyni ai
gera tillögur um breytingar ;
skipan embætta sjálfstæðismann;
í ríkisstjórn. Daginn eftir leggu:
flokksformaðurinn tillögur sína:
fram. Þær vóru samþykktar, um
ræðulaust og samhljóða, á örstutt
um þingflokksfundi. Strax að hon
um loknum gerir Þorsteinn frétta
mönnum grein fyrir þessun
breytingum, sem tíundaðar eru
upphafi þessa pistils.
„Hlutverk stjórnmála-
manna að leysa vanda“
Eftir að Geir Hallgrímsson
utanríkisráðherra, hafði beðis
lausnar frá störfum utanríkis
Fer inn á lang
flest
heimili landsins!
JotÁyr
PARIS U
Námskeið fyrir snyrtifræðinga og sölufóik
Dagana 28. október — 1. nóvember verðum við með
snyrtifræðing frá hinu virta franska fyrirtæki Sothys,
mun hún kenna ýmsar nýjungar á sviði fegrunar.
Aromatique — ýmsarstofumeöferöar — föörun — lík-
ams- og grenningarmeöferöir — brjóstameöferðir —
hálsmeöferöir — og margtfleira.
Viðskiptavinir, vegna mikilla eftirspurna, hafið sam-
band við fyrirtæki okkar sem allra fyrst.
Dugguvogi 2,
104 Reykjavík.
Simi: 686334.
Það eru hjólbarðarnir, sem ráða mestu um
aksturshæfni bílsins í íslenskri vetrarfærð.
# Goodyear Ultra Grip snjóhjólbarðarnir hafa sjálf-
hreinsandi munstur og halda því spyrnu- og
hemlunareiginleikum sínum, hvernig sem færðin
er.
9 Með Ultra Grip snjómunstrinu hefur tekist að
hanna form, sem heldur veghljóði hjólbarðans í
algjöru lágmarki, þegar ekið er á auðum vegi.
9 Á Goodyear Ultra Grip snjóhjólbörðum mætir þú
öruggur ramm-íslenskri vetrarveðráttu.
0 Þetta eru kostir, sem krefjast verður af vetrarbíl
á nútíma snjóhjólbörðum.
9 Þessa kosti fær þinn bíll sjálfkrafa með Goodyear
Ultra Grip.
GOODfÝEAR
GEFUR rRETTA GRIPIÐ
HReklahf
Laugavegi 170-172 Si'mi 21240
4
i