Morgunblaðið - 23.09.1986, Side 64
KRON
kaupir
Verslun-
ina Víði
KAUPFÉLAG Reykjavíkur og
nágrennis (KRON) hefur fest
kaup á Versluninni Víði í Mjódd-
inni. Eigendur Víðis hafa að
undanförnu átt viðræður við
ýmsa aðila, að minnsta kosti
KRON og Hagkaup, um sölu
verslunarinnar og leiddu viðræð-
umar til samkomulags við
forráðamenn KRON, samkvæmt
heimildum Morgunblaðsins.
Samkomulagið mun þó vera háð
VBtb3amþykki stjómar KRON.
Ólafur Stefán Sveinsson við-
takandi kaupfélagsstjóri KRON
sagði þegar hann var spurður um
málið í gærkvöldi: „Það eina sem
ég get sagt um þetta mál er að það
hafa átt sér stað viðræður við Versl-
unina Víði og að niðurstöður þeirra
viðræðna verða lagðar fyrir stjórn-
arfund hjá KRON á þriðjudag."
KRON mun kaupa verslunarhús
/^J%Víðis í Mjóddinni og rétt til að
byggja tvær hæðir ofan á það, auk
innbús og vörubirgða.
Skall til jarðar
í vélflugu
HORÐIJR Hjálmarsson, flugmaður, komst í hann krappan á
Sandskeiði á laugardag.
Hörður var rétt kominn á loft
í heimasmíðaðri vélflugu þegar
lúga yfír flugmannssæti opnað-
ist og vélin steyptist til jarðar.
Félagi Harðar, Arnar B. Vignis-
son, festi atburðinn á filmu.
Myndin hér til vinstri er tekin
þegar lúgan hefur opnast og
örfáum sekúndum síðar skall
vélin til jarðar. Myndina að ofan
tók Arnar þegar sjúkrabifreið
var komin á staðinn, en Hörður
ökklabrotnaði á hægri fæti í
slysinu.
Sjá bls. 4 „Skelfilegt að sjá
vélina...“
Flensa á
leiðinni?
FLENSUFARALDUR, svonefnd
„Singapore- flensa“ hefur stung-
ið sér niður í Bretlandi að
. undanfömu.
Að sögn Ólafs Ólafssonar land-
læknis varð flensunnar fyrst vart í
Asíu, á Nýja-Sjálandi og einstaka
tilfelli hafa komið upp í Banda-
ríkjunum. Þegar hafa verið gerðar
ráðstafanir til að fá bóluefni gegn
flensunni hingað til lands og sagði
Ólafur að því miður væri þess ekki
að vænta fyrr en í nóvember.
Þingflokkur og miðstjóm Sjálfstæðisflokksins:
Kosningar eigi síðar en
23. apríl á næsta ári
- „Undrandi á þessari ályktun“, segir Halldór Ásgrímsson.
ÞINGFLOKKUR og miðstjóra
Sjálfstæðisflokksins ályktuðu á
fundi í Hveragerði um helgina
að stefnt skuli að alþingiskosn-
ingum eigi síðar en 23. aprU á
næsta ári. Að sögn Ólafs G. Ein-
arssonar , formanns þingflokks
Sjálfstæðisflokksins, lýkur
kjörtimabili núverandi ríkis-
stjómar þann dag og að áliti
sjálfstæðismanna því óþarfi að
draga kosningar fram i júní.
Ólafur G. Einarsson sagði í sam-
tali við Morgunblaðið að samkvæmt
40 listaverk eftir Edvard Munch sýnd í Norræna húsinu:
Verkin tryggð fyrir 1,1
mílljarð íslenzkra króna
20 VERK eftir hinn heimsþekkta norska listamann Edvard Munch
vora í gærkvöldi væntanleg tíl landsins, en sýning á 40 verkum
listamannsins hefst í Norræna húsinu á laugardag. Ráðgert var
að verkin 20 kæmu með flugvél frá Osló um miðnætti i nótt, en
hin 20 verkin verða flutt til landsins á miðvikudag. Verkin era
alls tryggð fyrir tæpar 204 milljónir norskra króna eða sem nem-
ur rösklega 1,1 miUjarði íslenzkra króna. Sérstakur vörður fylgir
verkunum frá Osló til íshmds og verður listaverkanna gætt dag
og nótt allan tímann sem þau era á landinu.
Þetta er fyrsta stóra Munch staðið í hálft annað ár, að sögn
sýningin sem haldin er hérlendis Kristínar Bjamadóttur, ritara hjá
og hefur undirbúningur hennar Norræna húsinu. Upphaflega stóð
til að halda sýninguna í sumar,
en þá reyndist ekki unnt að fá
öll verkin, sem forráðamenn Nor-
ræna hússins höfðu hug á að sýna
og því var sýningunni frestað þar
til nú. Verkin sem hingað koma
eru 38 málverk og tvær teikning-
ar eftir Munch og eru þau öll í
eigu Munch-safnsins í Osló.
Kristín sagði að þrír menn
hefðu aðallega staðið fyrir því að
sýningin kæmi hingað til lands,
þeir Knut 0degárd, forstjóri Nor-
ræna hússins, Ame Eggum,
forstöðumaður Munch-safnsins í
Osló, og Ólafur Kvaran, listráðu-
nautur, en þeir þrír skipa sýning-
arnefnd. Norska ríkið gekk í
ábyrgð fyrir sýningarmunina, en
án ábyrgðarinnar hefði ekki verið
mögulegt að halda sýninguna,
vegna hárra tryggingagjalda, að
sögn Kristínar.
þessari ályktun yrði líklegur kosn-
ingadagur 11. apríl, þar sem
páskadag bæri upp á 19. apríl.
Hann sagði ennfremur að ef álykt-
un sjálfstæðismanna næði fram að
ganga væri ekki ólíklegt að þing
yrði rofíð í mars, þar sem þingmenn
myndu væntanlega vilja fá nokkrar
vikur í kosningaundirbúning heima
í héraði. Þó væri ekki útilokað að
þing gæti staðið fram að kjördegi.
„Með þessari ályktun viljum við
leggja áherslu á að ekki sé verið
að fara í kringum stjómarskrána,
þar sem segir að kjörtímabilið sé
Ijögur ár, en samkvæmt því lýkur
kjörtímabili þessarar ríkisstjómar
23. apríl", sagði Ólafur G. Einars-
son.
Halldór Ásgrímsson, ráðherra og
varaformaður Framsóknarflokks-
ins, sagði í samtali við Morgun-
blaðið að hann væri undrandi á
þessari ályktun þingflokks og mið-
stjómar Sjálfstæðisflokksins. „Við
framsóknarmenn höfum ekki talið
við hæfi að setja fram neina
ákveðna ályktun um dagsetningu á
þingkosningum, þótt málið hafí ve-
rið rætt innan flokksins", sagði
Halldór. „Við teljum að það eigi að
ræða þetta innan stjómarflokkanna
áður en menn fara að gefa út ein-
hverjar yfirlýsingar. Eg er því
undrandi á að Sjálfstæðisflokkurinn
skuli vera að álykta um þetta
núna“, sagði Halldór Ásgrímsson.