Morgunblaðið - 28.09.1986, Page 53

Morgunblaðið - 28.09.1986, Page 53
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 28. SEPTEMBER 1986 53 A-þýskur flóttamaður sýnir málverk á íslandi: „Þarna býr þjóð sem svipt hefur verið sjálfræðiu og- fólkið deyfir hatrið og óttann með áfengisvímu Hugljómun á há- lendinu: Mál- verkið ísland eftir Wolfgang Preilowski. WOLFGANG Preilowski er ekki hár i loftinu, en hann hefur mátt þola margt. Hann lenti upp á kant við stjórnvöld i heimalandi sinu, Austur-Þýskalandi, og eftir margra ára baráttu var honum hleypt úr landi og skyndilega stóð hann slyppur og snauður á braut- arpallinum i Bahnhof-Zoo í Vestur-Berlin. Á íslandi ætlar Preilowski að halda sína fyrstu myndlistarsýningu og skyidi margan undra! „Eg kom hér síðasta sumar í boði Tolla [Þorláks Kristinssonar], sem ég kynntist í Vestur-Berlfn. Mig hafði alltaf langað til að sjá miðnætursólina og koma þar sem ekki bregður birtu sumarlangt. Smám saman fæddist hugmynd um að halda sýningu. Ég tók eftir því meðan ég var hér fyrir ári að hvar sem ég kom héngu mál- verk; í bönkum, sjúkrahúsum og á veggjum heimila. í Vestur-Þýska- landi verður maður vart var við slíkt og á veggjum hanga ef vel vill til eftirprentanir. Hér fann ég fyrst fyrir virðingu fyrir náttúrunni og þetta var mikil og sterk upplifun. I hinni malbikuðu eyðimörk Vestur-Evrópu er slíkt ekki að finna. Á sýningunni verður mál- verk tileinkað íslandi og nefndi ég það. eftir landinu." — Þú dásamar náttúruna. Á það sama við um þjóðina? „Að minni hyggju eru íslendingar blanda af Pólveijum og Kanada- mönnum. Drykkjuskapurinn minnir á Pólveija og sömuleiðis foðurlandsást- in. Það er líkt og samband íslendinga við náttúruna og stjómarfarið sé blanda af ást og hatri: þeir elska landið sitt en vilja burt." - Þú varst meðal fremstu dýfinga- manna Austur-Þýskalands þegar þú féllst í ónáð. Hver var aðdragandi þess? Gripnir við landamærin „Ég hafði verið valinn í ólympíu- liðið þegar fótunum var skyndiLega kippt undan mér. Mig grunar að ég hafi látið orð falla um að gaman væri að reyna lífið í vestri og ein- hver, sem hefur viljað koma í minn stað, hafi kjaftað frá. Eftir það átti ég erfítt uppdráttar og að lokum ákváðum ég og vinur minn að flýja. Við fórum til Ungveijalands, þaðan til Júgóslavíu og reyndum að fara þar yfir „grænu" landamærin, sem svo eru kölluð vegna þess að auð- veldara er að komast yfír þau en önnur landamæri austur-evrópskra ríkja að Vestur-Evrópu. En við vor- um gripnir. Mér var varpað í fangelsi og ég látinn dúsa þar í eitt og hálft ár. Sjö mánuði var ég í einangrun og fékk hvorki bækur né tóbak. í Austur-Þýskalandi ríkir sósíalfasismi. Erich Honecker komst til valda 1972 um sjö mánuð- um eftir að ég losnaði úr fangelsinu. Þá linaðist aðeins tak jámgreipar- innar og hann fyrirskipaði almenna náðun. Ég sótti um brottfararleyfí (sem í Austur-Þýskalandi heitir „Antrag auf Aberkennung" og þýða mætti „umsókn um afneitun" - innsk. höf.) og þurfti að bíða þijú ár. Á meðan á þeim tíma stendur ertu látinn vinna fyrir sultarhýru. Ég var múrari við kirkju í Leipzig og hafði 400 austur-þýsk mörk á mánuði (um 2.000 ísl. kr. - innsk.). Þar kynntist ég ýmsum lista- mönnum, sem einnig voru í ónáð. Málarar mega ekki mála í anda súrrealisma og dagskipunin er sósí- alískt raunsæi þar sem verkalýðs- hetjan er hafin til skýjanna. Þama er raunvemleikinn skítur." — Hvemig er farið með mann, sem valinn hefur verið í bamæsku til að vera afreksmaður í íþróttum? Pólitísk innræting' „Ég æfði fímm til sex klukku- stundir á sólarhring í sjö ár. Fólkið er ekki bara alið upp; það er „rækt- að“. Böm fara gegnum síu þegar í bamaskóla. Hinir útvöldu er send- ir á fund uppeldisfræðinga og allt beinist að einu marki: toppárangri. Þá hefst einnig pólitískt uppeldi þar sem áhersla er lögð á að óvinurinn sé heimsvaldasinni, sem einskis svífíst, og gœti á hverri stundu lýst yfír stríði og ráðist inn í landið með morðum, ránum og gripdeildum. Efnilegir íþróttamenn em einnig æfðir fyrir væntanlegar keppnis- ferðir til ríkja óvinarins. Þá er settur upp blaðamannafundur og við- staddur er maður, sem leikur vestrænan blaðamann. Sá spyr leið- andi spuminga og svörin verða að vera í anda fíokkslínunnar, annars . . . Þama býr þjóð, sem svipt hef- ur verið sjálfræði. Og fólkið deyfir, hatrið og óttann með áfengisvim- unni.“ — Var erfítt að aðlaga sig að vestrænni menningu og hvemig stóð á því að þú fórst að glíma við málverkið? Innblástur augna- bliksins „Ég kom til Vestur-Þýskalands með tíu mörk í vasanum og ferða- tösku í hendinni og settist að í Vestur-Berlín. Fýrstu árin vom vissulega erfíð því að ég þekkti engan og þurfti að laga mig að breyttum háttum. Siðustu ár hefur bæði Joseph Beuys og villta mál- verkið hjálpað mér mikið og ég hef sökkt mér niður í bókmenntir. Ég er sjálflærður málari og hef ekki mikið álit á skólum á borð við Hoch- schule der Kiinste í Vestur-Berlín: ég vil ekki vera oflærður þannig að tjáningarkrafturinn kafni vegna skójunar. Ég reyni að láta tilviljunina og innblástur augnabliksins setja svip á verk mín án þess þó að ánetjast þessum þáttum,“ segir Preilowski. sem bíða ekki! I I ■ K 1 T| Li V7. ■L 'MM.MM . w VI Kapnr i iii i r r< n II I I Ál U TÆM'I fcl I J I I ■ ■ iT I I ■ ’m t/ái i ■ n u ■i»i n i ii r*i ir i Nú er ekki eftir neinu að bíða, þú verslar í Rafbúð Sambandsins fyrir 100 þúsund og getur þá keypt öll heimilistækin í einu, valið sjálfur hvert tæki af ótal gerðum í pakkann, bætt sjónvarpi, videotæki eða hrærivél við og skipt greiðslum jafnt niður á 24 mánuði. Engin útborgun og fyrsta greiðsla eftir einn mánuð. Enginn íslenskur raftækjasali hefur boðið slík kjör — hvorki fyrr né síðar. Hafðu samband við Rafbúð Sambandsins strax — það er ekki eftir neinu að bíða. TAKMARKAÐI á þessum kjörum» ^ SAMBANDSINS ÁRMÚLA3 slml-687910 HOMSON • ZEROWATT • DSSöCgDQOOQÆlöd] • Frigor • Westinghouse • Bauknedit •

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.