Morgunblaðið - 20.11.1986, Blaðsíða 13
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 20. NÓVEMBER 1986
13
einkalíf, að nálgast hnýsni. Að sögn
þeirra sem best vita var góð vinátta
með þeim Nordal og Theodoru og
í vinahópi þeirra beggja voru frænk-
ur Theodoru, skáldkonumar og
tvíburasystumar Herdís og Ólína
Andrésdætur sem líka eru innan
spjalda Mannlýsinga. Meðal annars
víkur NordaPað Skúlamálinu sem
furðu margir hafa gert sér mat úr
að undanfömu.
Þriðja bindi Mannlýsinga hefur
fengið heitið Svipir og skiptist í
kaflana Örlagaþættir, Svipir, ís-
landsvinir og Samferðamenn. Sumt
af því sem hér er skrifað er í tæki-
færis- og minningarskyni, en allt
með fádæmum vandað eins og Nor-
dals var von og vísa.
Eggjun Sigurðar Nordals
Bókmenntir
Jóhann Hjálmarsson
Sigurður Nordal:
Ritverk.
Mannlýsingar I-III.
Jóhannes Nordal hafði umsjón
með útgáfunni.
í ritnefnd með honum voru Eirík-
ur Hreinn Finnbogason, Kristján
Karlsson og Ólafur Pálmason.
Útlit: Hafsteinn Guðmundsson.
Almenna bókafélagið 1986.
Fagnaðarefni er það að fyrstu
þijú bindin í ritsafni Sigurðar Nor-
dals eru komin út og tilhlökkunar-
efni að von er á fleiri bindum í
ritsafninu. Fyrstu þrjú bindin em
réttnefnd Mannlýsingar. Verk Nor-
dals í heild má kalla mannlýsingar
því að hann lagði mikla rækt við
að lýsa öðm fólki, lifandi og látnu.
Um leið lýsti hann eftirminnilega
sjálfum sér.
Jóhannes Nordal skrifar m.a. í
Formála um Mannlýsingar I—III:
„Flestar veigamestu ritgerðimar í
þessum flokki fja.Ua um höfuðskáld
og ritsnillinga íslendinga fyrr og
síðar, en auk þess er hér saman
kominn fjöldi annarra greina, eink-
um um samtíðarmenn Sigurðar.
Rauði þráðurinn í þeim öllum er
lýsing á þeim einstaklingum, sem
um er ritað, örlögum þeirra,
lífsskoðun og þroska."
Fyrsta bindið nefnist Frá Snorra
til Hallgríms, annað bindi Skáldaöld
og þriðja bindi Svipir. Mannlýsingar
hefjast á bók Nordals um Snorra
Sturluson og þeim lýkur á grein
um Svein Framtíðarskáld. Þetta
gefur nokkra hugmynd um fjöl-
breytni Mannlýsinga, enda talar
Jóhannes Nordal um það réttilega
í fyrrgreindum Formála að verk
föður hans séu „íjölþætt að efni“.
Um Snorra Sturluson skrifar Sig-
urður Nordal að hann skari fram
úr í „hinni rólyndari list sundur-
lauss máls, í andlægri frásögn, þar
sem hann lýsir persónum og at-
burðum". Að mati Nordais varð
Snorri ekki meira skáld vegna þess
að hann „yrkir eftir reglum listar,
sem fyrir löngu hafði lifað sitt feg-
ursta". Það sem Sigurður telur að
hafi dugað Snorra vel er marglynd-
ið þvi að það er „ágætur jarðvegur
fyrir fjölbreyttar gáfur, víðsýni,
skilning og dómgreind".
í bókinni um Snorra Sturluson
og hugleiðingunum um Snorra á
700. ártíð hans eins og í öðrum rit-
gerðum fyrsta bindis hefur Sigurð-
ur Nordal valið þann kost að hafa
rúmt til veggja, gefa lesandanum
tækifæri til að draga sínar eigin
ályktanir. Enda skrifar Sigurður í
eftirmála Hallgríms Péturssonar og
Passíusálmanna, Að viðskilnaði, að
svo sé um „þessi hugleiðingabrot
eins og allt, sem ég hef borið við
að skrifa um bókmenntir, að þeim
er fremur ætlað að verða eggjun
til sjálfstæðs lestrar og umhugsun-
ar en að mig langi til að troða
mínum eigin skilningi upp á lesend-
ur“.
En þótt skynsemin sé leiðarsteinn
í ritgerðum Sigurðar Nordals er
hann ekki alltaf hógvær og lítillát-
ur. í inngangi ritgerðarinnar
Átrúnaður Egils Skallagrímssonar
fullyrðir hann til dæmis að „bæði
höfundi Egilssögu og nútíma-skýr-
endum virðist hafa sézt yfir aðalat-
riðið í efni“ Sonatorreks. En það
er hann, Nordal, fær um að benda á.
í öðru bindi er á ferðinni „hinn
mikli skáldaskóli 19. aldar" ogskáld
tengd þeirri öld. Sumar þessara
löngu ritgerða hafa komið út í sjálf-
stæðum bókum: Stephan G. Steph-
ansson, Einar Benediktsson. Aðrar
eru mjög kunnar: Bjarni Thoraren-
sen, Grímur Thomsen, Matthías við
Dettifoss, Þorsteinn Erlingsson.
Tvær greinar birtast á prenti í
fyrsta sinn og fjalla þær um Vatns-
enda-Rósu, Sigurð Breiðfjörð og
Bólu-Hjálmar.
Ritgerð Nordals um Theodoru
Thoroddsen í öðru bindi er dæmi-
gerð fyrir hann. Hún er svo ítarleg,
einkum um persónu Theodoru og
Ég vil aðeins geta tveggja rit-
gerða, en lofa lesendum þessarar
umsagnar að mikil auðlegð bíður
þeirra á blöðum Mannlýsinga, ekki
síst þriðja bindis. Ungt fólk sem
ekki einu sinni hefur handleikið
Áfanga Nordals þarf sem fyrst að
kynnast meistaranum og sökkva sér
niður í það sem hann hefur hugsað
og skrifað. En þær ritgerðir sem
mér eru sérstaklega minnisstæðar
eru um Davíð Stefánsson og Engel
Lund.
í minningarorðum um Davíð
Stefánsson sér Sigurður Nordal
ástæðu til að nefna Skógarhind,
eitt af síðustu kvæðum skáldsins.
Og hann nefnir einmitt þetta kvæði
vegna þess að það minnir hann á
Sigurður Nordal prófessor.
fyrstu kvæði Davíðs „einfalt eins
og þau þjóðkvæði, sem hann unni
frá æsku, — engin ádeila, enginn
boðskapur, engin mælska, ekkert
nema tær ljóðræn fegurð". Með því
að benda á þennan skyldleika og
ekki síst minna á þann mann ein-
verunnar sem Davíð var, kemst
Nordal að kjama máls eins og svo
oft áður.
í ritgerðinni um Litlu stúlkuna í
Apótekinu, Engel Lund, er hægt
að vera ósammála Nordal vegna
þess að hann heldur því fram að
hin stóra og þroskaða kona sé enn
bam. En þetta skilur maður betur
þegar vikið er að gleði hennar yfír
öllu skemmtilegu og alvöm sem
lýsir sér í því að bera „djúpa lotn-
ingu fyrir undram tilverannar og
mannlífsins".
Eins og koma mun fram í rit-
safni Sigurðar Nordals sem reyndar
kallast ritverk var hann skáld og
ekki af lakara tagi. En hann er líka
skáld í ritgerðum, list sundurlauss
máls, þar sem marglyndið nýtur sín
fyllilega og ræður oft ferðinni.
Mimi
ÁNANAUSTUM 15
ALLAR NÁNARI UPPLÝSINGAR í SÍMA 10004 OG 21655
Stúdentspróf — eöa sambærileg menntun
Próf frá Ritaraskólanum
Aukin menntun getur ekki aðeins
merkt fleiri og betri taskifeeri á vinnu-
markaðinum, lika hærri laun, meiri
ábyrgö og þegar best lætur: betra lif.
Menntun er besta fjárfestingin.
jMímir hefur lengi verið í fararbroddi í
sérmenntun skrifstofufólks hér á
landi. Nú kynnir skólinn tvær nýjar
námsbrautir fyrir þá sem vilja ná
lengra í starfi. Með öðrum orðum: nýtt
og spennandi framhaldsnám fyrir vel
menntað skrifstofufólk. Tvær frama-
brautir: fjármálabraut og sölubraut.
Báðar námsbrautimar henta vel fólki
með stúdentspróf eða sambærilega
menntun og nemendum Ritaraskól-
ans sem öðlast hafa einhverja starfs-
reynsiu. Kerrnt er virka daga vikunnar
þrjár klukkustundir á dag í sjö mán-
uði.
Pátttaka er takmörkuð við tólf á hvorri
braut og námið hefst 19. janúar 1987.
Híkaðu ekki við að hringja og leita
nánari upplýsinga um þessa nýju
möguleika til menntunar. Vertu með á
framabraut.
Fjármálabraut: Sölubraut:
• Verslunarreikningur. • Verslunarreikningur
• Rekstrarhagfræði. • Mannleg samskipti.
• Reikningshald. • Starfsmannastjómun.
• Bókfærsla II. • Sölutækni I og II.
• Bókfærsla III. • Verslunarenska.
• Skattur og bókhald. • Telex.
• Verðbréfamarkaður • Skjalavarsla.
• Starfsmannastjómun. jjl| • Vélritun.
• Tölvur. • Tölvur.
Sérmenntun fyrir skrifstofufólk: