Morgunblaðið - 20.11.1986, Blaðsíða 14
14
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 20. NÓVEMBER 1986
VOKVA
D/EUUR
HAMWORTHY
SUNDSTRANDTUROLLA
SAUER
SUNFAB
Handstýrð og rafstýrð
tengsli fyrir vökvadælur.
T.R.W. og SAUER vökva-
mótorar.
(ZlK Viðgerðar- og
varahlutaþjónusta.
LAAfDWÉlAfíHF
SMIEUUÆGI66. KÓPAVOGI.S.9176600
Margt eldra fólk ó í erfiðleikum
með að ganga upp og nlður
stigana ó heimilum sínum.
Stigalyftur eru svarið við þessu
vandamóli.
Einfaldar og öruggar í notkun,
auðveldar í uppsetningu og
mjög fyrirferðarlitlar milli
notkunar.
Sjörið svo vel að hringja í
okkur eða fyllið út seðilinn hér
að neðan og sendið. Við
veitum fúslega allar nónari
upplýsingar.
K........................................
Vlnsamlegost sendið mér ón allro
skuldblndinga upplýsingar um stigalyttur
fró lyftudelld Héðlns.
Notn:
Helmlllsfang:
Sfoður:
Slml:
= HEÐINN =
lyftudeild
Seljavegi 2 121 Reykjavík
Box 512 Sími 24260
^ ■ __
Agúst Petersen
Myndlist
Valtýr Pétursson
Ágúst Petersen heldur nú sem
stendur sýningu á verkum sínum
í_ Listasafni ASÍ við Grensásveg.
Ágúst er löngu landsþekktur list-
málari og hefur verið afar iðinn
við starfíð, allt síðan hann tók
þátt í samsýningu í fýrsta sinn
1951, en einkasýningar hans eru
orðnar nokkuð margar á seinustu
árum. Hann var húsamálari fyrir
þann tíma, en seinustu 25 árin
hefur hann eingöngu snúið sér
að myndlistinni. Ágúst er einkum
og sér í lagi þekktur fyrir portrett-
myndir sínar, sem eru algerlega
í sérflokki hérlendis. Af þeim
myndum er gott sýnishom á þess-
ari sýningu Ágústs.
Það eru 64 verk á sýningunni
í Listasafni ASÍ, þar kennir
margra grasa, og viðfangsefnin
eru margvísleg. Landslag, port-
rett og ýmislegt annað verður
listamanninum að yrkisefni, og
að vanda er það endurminningin,
sem verður að kjama listaverksins
í höndum þessa sérstæða málara.
Hann lætur fyrirmyndir að port-
rettum sínum ekki sitja fyrir, eins
og sagt er, heldur málar fólkið
eftir minni og lætur öll smáatriði
lönd og leið. Það mætti segja
mér, að hann notaði sömu aðferð
við landslag og yfirleitt allt, er
hann leggur undir pensil sinn. Það
var haft eftir frægum málara upp
úr aldamótum, að hann hefði ekki
hugrekki til að standa við mótífíð,
hann yrði að mála það úr fjar-
lægð. Það er engu líkara en að
Ágúst Petersen hafí lifað eftir
þessari kenningu, en það er alveg
eins víst, að hann hafí aldrei heyrt
um þetta getið. Svo líkt slá hjörtu
málara í Vestmannaeyjum og
Suður-FrakklandL En hvað um
það — árangur Ágústs Petersen
sem málara blasir við okkur á
þessari sýningu, og hann er ein-
stæður í íslenzkri myndlist.
Litameðferð Ágústs er' mjúk og
blæbrigðarík og hefur mjög per-
sónulegan tón, sem hann beitir
af nákvæmni og tilfínningasemi.
Veðurfarið við ströndina er hon-
um mikið yrkisefni, að ég ekki
tali um fólkið, sem hann sér í
amstri dagsins, og hina fjölþættu
persónuleika þess. Allt þetta
skynjar Ágúst á myndrænan hátt
og skilar því með ágætum á
myndflötinn.
Það er alltaf dálítil veizla, þeg-
ar Ágúst Petersen sýnir. Hann
er einn okkar ágætustu málara,
og íslensk myndlist væri fátæk-
ari, ef hans nyti ekki við. Til
hamingju með fyrsta flokks sýn-
ingu.
Sýning- Sjafnar Hafliðadóttur
Myndlist
Valtýr Pétursson
Á austurganginum á Kjarvals-
stöðum er fyrsta sýning Sjafnar
Hafliðadóttur hér á landi. Hún er
Reykvíkingur, sem dvalið hefur
erlendis síðustu 37 árin. Sjöfn er
gift myndlistarmanni, og eru þau
búsett í Flórída. Sjöfn mun hafa
hafið myndlistamám sitt hér
heima áður en hún lagði land
undir fót, og hún mun hafa ferðazt
mikið og haldið margar sýningar
á verkum sínum, aðallega í
Kanada og Bandaríkjunum.
Þetta er ekki mikil sýning að
vöxtum, aðeins 16 olíumálverk,
sem eru öll gerð í afar líkum stíl.
Því er óhætt að fullyrða, að sú
myndgerð, er hún sýnir að sinni,
sé henni mjög hugfelld, og jafnvel
álykta, að Sjöfn sé ftillmótuð í
myndgerð sinni innan þess
Spiladósin
ramma, sem þarna getur að líta.
Myndefnið er nokkuð dregið úr
ballettinum, og dansandi meyjar
í mjúkum og léttum litatónum
einkenna þessi verk. Hvergi er
liturinn þvingaður til mikilla
átaka, og manni detta jafnvel í
hug pastellitir í mörgum af þess-
um olíumyndum Sjafnar. Það
væri ef til vill réttast að kalla
þessi verk femínín (kvenleg), svo
mild eru þau í lit. Teikningin er
lipur og fínleg. Það er ekkert stór-
brotið við þessi málverk, en þau
eru þægileg og meinlaus. Um
þessi verk er ekki mikið að segja,
en þau eru nokkuð ólík því, sem
við eigum að venjast hér á sýning-
um.
Það má með sanni segja, að
Kjarvalsstaðir séu þétt setnir eins
og stendur. Sýningar í báðum
sölum og á báðum göngum. Segi
svo hver sem vill, að ekki hafí
verið þörf fyrir þetta hús, sem
allt frá upphafi hefur verið mið-
depill sýninga í borginni.
Tryggvi
Myndlist
Valtýr Pétursson
Enn einu sinni er Tryggvi Ól-
afsson á ferðinni í heimalandi sínu
með sýningu í farteskinu. Hann
hefur verið búsettur í kóngsins
Kaupmannahöfn síðastliðinn ald-
arfyórðung, en ætíð komið við og
við hingað til lands til að sýna
nýjustu verk sín, og munu einka-
sýningar hans hér í borg vera að
minnsta kosti átta talsins, og þátt
hefur hann tekið í ijölda samsýn-
inga. Hann er gamall Súmmari
og var mjög virkur þar á þeim
slóðum sællar minningar. Af
þessu má glöggt sjá, að Tryggvi
Ólafsson er enginn nýgræðingur
í listinni, enda sést það fljótt á
verkum hans, að þar er fullmótað-
ur listamaður á ferð.
Tryggi Ólafsson hefur nokkra
sérstöðu innan íslenzkrar nútíma-
listar. Hann hefur stundað nám í
Kaupmannahöfn og verið þar bú-
settur og unnið að list sinni um
langan tíma. Okkur hér heima
fínnst hann svolítið danskur í lita-
meðferð, en þeim í Danmörku
þykir hann rammíslenzkur í
myndlistinni. Myndlist er vissu-
lega alheimsmál, en samt verður
því ekki neitað, að umhverfí allt
og aðstæður hafa sitt að segja
Ólafsson
fyrir alla listamenn, hvað sem
hver segir. Tryggvi hefur þróað
með sér vissan stíl, bæði í teikn-
ingu og málverki, sem væri
óhugsandi hefði hann unnið hér-
lendis. Einkum og sér í lagi er
þetta greinilegt í litameðferð
Tryggva, sem er hrein og hvell
og lógísk, eins og Frakkar mundu
segja, en afar norræn í eðli sínu.
Engan íslenzkan listamann þekki
ég, sem vinnur á sömu nótum og
Tryggvi, og því víkkar hann
breidd íslenzkrar myndlistar að
mun, og er það sannarlega vel.
Það hefur orðið nokkur breyting
í myndbyggingu Tiyggva síðan
hann var hér síðast á ferð. Hlut-
imir hafa einfaldazt og mynd-
byggingin hefur styrkzt að mun
við þróttmeira samspil forms og
flatar. Þetta gerir þessi nýju verk
frumlegri og fjarlægir smámuni,
sem ef til vill skiptu litlu sem
engu máli. Það má með sanni
segja, að líflegt sé á sýningu
Tryggva í Gallerí Borg, en þar
stendur sýning Tryggva Ólafsson-
ar.
Já, þetta er lífleg og skemmti-
leg sýning. Að vísu eru sum
verkanna nokkuð hástemmd í lit
og heldur hrá. En hvað um það
— hressileg sýning, sem skemmti-
legt var að sjá.