Morgunblaðið - 20.11.1986, Page 17
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 20. NÓVEMBER 1986
17
Beckett
Erlendar bækur
Siglaugur Brynleifsson
Samuel Beckett: The Complete
Dramatic Works.
Faber and Faber 1986.
Beckett varð áttræður á þessu
ári. Heildarútgáfa leikrita hans er
hér gefin út. Leikrit fyrir leiksvið,
útvarp og sjónvarp. „Ég hef einung-
is áhuga á þeim misheppnuðu,“
sagði hann einhvem tíma skömmu
eftir síðustu heimsstyijöld.
Og þegar hann stóð á fertugu,
1946, mátti segja að fram að því
hefði honum mistekist allt sem hann
tók sér fyrir hendur. Honum var
allt ósjálfrátt vel gefið, hann var
gáfaður, skáld, ágætur íþróttamað-
ur og góður námsmaður. Hann
afneitaði skylduliði sínu í Dyflinni,
hvarf frá háskólanámi og settist að
í París, þar sem hann skrifaði furðu-
legar smásögur, skáldsögur og
kvæði og þýðingar. Hann var náinn
vinur James Joyce og umgekkst
„avant gard-ista" í París áranna
fyrir stríð. Fyrsta skáldsaga hans
„Murphy" var endursend frá 42
útgefendum þar til hún fékkst loks
útgefin 1938. „Watt“ kom út 1953,
eftir að hafa verið hafnað af fjölda
útgefenda.
Árbók Suðurnesja
Bókmenntir
Erlendur Jónsson
ÁRBÓK SUÐURNESJA
1984-1985. 2.-3. árg. 170 bls.
Ritstj. Jón Böðvarsson og Ragnar
Karlsson. Söguf. Suðumesja.
Njarðvík, 1986.
Þetta er í annað skiptið sem
Sögufélag Suðumesja sendir frá sér
Árbók. Efnið er allt tengt heima-
högum og sumir höfundanna þar
búsettir. Aðrir hafa starfað þar.
Ritið hefst á þætti Jóns Böðvars-
sonar, Rúnasteinar á Suðumesj-
um. Rúnir tengjum við gjaman við
fomeskju gráa. Rúnir fyrirfínnast
víða á Norðurlöndum, höggnar í
stein. Einnig vom þær ristar á tré.
Ekki gekk alltaf jafn vel að ráða.
íslenskur fræðimaður á 19. öld hljóp
á sig með því að lesa rúnir út úr
bergi sem orðið hafði fyrir vatns-
rofi. Fram undir þetta hafa fræði-
menn deilt um rúnir, aldur þeirra
og útbreiðslu. Jón Böðvarsson rifjar
það upp og hnýtir skemmtilega við
athuganir á rúnum sem fyrirfinnast
á Suðumesjum, höggnar í stein.
Annan þátt á Jón þama og nefn-
ist Sálmaskáldið á Kálfatjöra.
Segir þar frá Stefáni Thorarensen
sem prestur var á Kálfatjöm fyrir
aldamótin síðustu. Merkisprestur
hefur séra Stefán verið. Og sálma-
skáld allgott þó nú sé tekið að
fymast yfir nafn hans og kveðskap.
Þá eru tveir þættir eftir Ólaf
Ásgeirsson. Nefnist hinn fyrri: „og
hér til gef ég þér jörðina er
Hvalsnes heitir . ..“ Um jarðeig-
endur á Suðumesjum á miðöld-
um. Þáttur þessi segir kannski
meira en í látlausri fyrirsögn felst.
Svo mótsagnakennt sem það nú
virðist vera hlutu Suðumes löngum
að gjalda auðsældar sinnar og
hlunninda. Allt slíkt ásældust bisk-
upsstólar og klaustur og á því fengu
Suðumesjamenn gróflega að kenna.
Ekki hafði nálægðin við Bessa-
staðavaldið heldur heillavænleg
áhrif á framtak heimamanna, síður
en svo. Þetta rekur Ólafur Ásgeirs-
son skýrt og skilmerkilega í fróðleg-
um þætti. I öðrum þætti rifjar hann
svo upp máldaga Staðarkirkju í
Grindavík.
Þá kemur samantekt Ragnars
Karlssonar: „Skammtal og ævi-
skuggsjá" Guðna sýslumanns
Sigurðssonar. Sérkennilegur er sá
kveðskapur. Og ekki mikill skáld-
skapur. En merkilegt er eigi að
síður þetta gamla ævikvæði ýmissa
hluta vegna. Ragnar hefur valið
þann kostinn að birta það stafrétt
eftir handriti. Stafsetningin er
rannsóknarefni út af fyrir sig.
Þarf lesandinn að átta sig vel á
henni ef hann ætlar sér að lesa
þetta reiprennandi. Til er fjöldi
óprentaðra kvæða frá fyrri öldum.
Þó margt af því teljist ekki mikils
háttar skáldskapur getur þetta gef-
ið talsverða hugmynd um mannlíf
fyrri tíma. Ragnar hefur vel gert
að birta kvæði þetta og fylgja því
úr hlaði með glöggum formálsorð-
um þar sem hann segic frá mönnum
og málefnum er við sögu koma.
Jón Böðvarsson
Þá skal nefna þættina Sfjóm-
sýsla á Suðurnesjum eftir Eyþór
Þórðarson, Sitthvað frá upphafs-
ámm vélbátaútgerðar i Garði
eftir Kristin Ámason og Her og
þjóð eftir Pál Vilhjálmsson. Síðast
taldi þátturinn er nokkuð ungæðis-
legur og ætti kannski heima annars
staðar en í söguriti.
Að lokum er svo samantektin:
Myndlistasýningar i Keflavik eft-
ir Skúla Magnússon. Það er fyrri
hluti. Er það hið fróðlegasta jrfirlit.
Meðal listamanna, sem þar koma
við sögu, eru Kristinn Reyr og
Helgi S. Jónsson. Hinn síðamefndi
er látinn fyrir nokkrum ámm. Krist-
inn Reyr er nú þekktari sem rithöf-
undur. Helgi S. Jónsson var mikil
driffjöður á sviði félagsmála á Suð-
umesjum og lagði gjörva hönd á
margt. Slíkir menn eiga, oft og
tíðum, drýgri þátt í að móta og
auðga mannlíf á sínum stað en í
fljótu bragði virðist.
Nokkrar myndir em i árbók þess-
ari, einnig kort. Hafa ritstjórar og
Sögufélag Suðumesja sýnilega gert
sér far um að láta rit þetta rísa
undir nafni.
SIEMENS
SIEMENS uppþvottavél
LADY SN 4510 með Aqua-
Stop vatnsöryggi. Vandvirk
oq hijóðlát.
Smith og Norland,
Nóatúni4,
s. 28300.
Samuel Beckett
„Beðið eftir Godot" 1954 varð á
allra vömm og þar með varð Beck-
ett eitt umtalaðasta skáld sjötta
áratugarins. Beckett skrifar mörg
verka sinna á frönsku og þýddi þau
síðan á ensku. Hann hafði verið hið
einmana skáld, sem aldrei sló af
kröfum sínum, hélt sínu striki, hvað
sem hver sagði. Þótt hann yrði
frægur með Godot, þá breyttist
hann ekki né verk hans frá því sem
áður var. Það sem hafði breyst var
viðhorf lesenda og hlustenda, svo
að hann var talinn tjá tíðarandann
á sjötta áratugnum og áfram. Hann
hefur aldrei verið vinsælt skáld, og
það var meira talað um hann og
verk hans en hvað þau vom lesin.
Hann lýsir hinum allslausu, nöktu
og algjörlega þýðingarlausu mann-
vemm í fullkomnu tilgangsleysi.
Absurdisminn er fullkomnaður, ein-
staklingurinn fmmkvæðalaus
lífvera, soðbollar, sem skoppa til
og frá i mannlífsstraumnum, tómir
og þess vegna utan alls samfélags
og sjálfsvemleika, bíða eftir ein-
hveiju og tala og hlusta og vita þar
með, að eitthvað sem heitir líf hrær-
ist með þeim, sem er þó ekkert líf,
í besta falli úttroðin túba full af
tómleika.
Beckett var talinn til „absurdist-
anna“ og þótt flokkun bókmennta-
verka í skóla eða flokka, geti oft
orkað tvímælis þá er absurdismi
Becketts frá vissu sjónarhomi
hreinn realismi. Sum leikrita Beck-
etts em skopstælingar á sígildum
bókmenntaverkum eða háð um
skynsemdarfulla rökhyggju. Eina
frelsi persónanna býr í eigin meðvit-
und, þær gera sér hugmyndir um
persónur, sem verða þeim sönnun
eigin tilvem, sem þær verða að tjá,
án þess að nokkuð sé að tjá og þá
aðeins á holu táknmáli, sem er
dautt. Nauðsyn tjáningarinnar er
eina lífshvötin í heimi, sem er í
upplausn. Þessi spegilmynd Beck-
etts sjálfs gengur aftur í öllum
persónum hans.
VIÐGERÐAR
NÚNUSIA
Á VÖKVADÆLUM
OG BÚNAÐI
Sérhæft verkstæði - Allar
dælur álagsprófaðar í
nákvæmum prófunarbekk.
Áratuga reynsla starfs-
manna og fullkomnasta
vökvadæluverkstæði
ryj. landsins tryggir þér
{O/ góða þjónustu.
lÁNDVÉÍAfíHF
SMIOIIAÆGI66. KCm/OGI. S 91-76600
KOMDU
KRÖKKUNUM Á ÓVART!
Farðu til þeirra um jólin
Mömmur, pabbar, systur, bræður, afar, ömmur, frændur,
frænkur, synir, dætur og vinir geta nú brugðið undir sig betri
fætinum og farið sjálf með jólapakkana og hangikjötið til
útlanda.
Ástæðan er auðvitað hin hagstæðu jólafargjöld sem Flugleiðir
bjóða.
Fargjöld báðar leiðir eru sem hér segir:
Kaupmannahöfn
Qautaborg
Stokkhólmur
Osló
London
Glasgow
Luxemborg
kr. 14.110
kr. 13.990
kr. 16.150
kr. 13.890
kr. 12.080
kr. 10.460
kr. 13.350
Bamaafsláttur er 50%.
Fargjöldin taka gildi l. des.
(Jpplýsingar um skilmála og ferðamöguleika veita söluskrif-
stofur Flugleiða, umboðsmenn og ferðaskrifstofurnar.
FLUGLEIÐIR