Morgunblaðið - 20.11.1986, Blaðsíða 19
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 20. NÓVEMBER 1986
19
Arngrímur og Helgi
skipaðir sakadómarar
FORSETI íslands hefur skip-
að þá Arngrím ísberg, full-
trúa lönreglustjórans í
Reykjavík og Helga Ingólf
Jónsson, settan deildarstjóra
í dómsmálaráðuneytinu, í
embætti sakadómara frá 1.
desember nk. að telja.
Tvær stöður sakadómara voru
auglýstar lausar fyrir skömmu.
Umsóknarfrestur um aðra rann
út hinn 25. október, en um hina
15. nóvember. Beðið var með að
skipa í fyrri stöðuna sem losnaði
þar til umsóknir um þá síðari
hefðu borist, þar sem sú sérstaka
staða kom upp að tvær stöður
losnuðu með svo skömmu milli-
bili. Umsækjendur um stöðurnar
tvær, auk þeirra Amgríms og
Helga voru þeir Ágúst Jónsson,
aðalfulltrúi yfirsakadómarans í
Reykjavík, Guðjón St. Marteins-
son, fulltrúi sakadómarans í
ávana- og fíkniefnamálum, Hjört-
ur Ottó Aðalsteinsson, fulltrúi
yfirsakadómara í Reykjavík, Júlí-
us Kristinn Magnússon, fulltrúi
bæjarfógetans í Hafnarfírði,
Garðabæ og Seltjamamesi og
sýslumanns Kjósarsýslu og Karl
F. Jóhannsson, aðalfulltrúi sýslu-
mannsins í Amessýslu og bæjar-
fógetans á Selfossi. Einn til
viðbótar sótti um, en sá óskaði
nafnleyndar.
Amgrímur Isberg er fæddur
10. mæ 1952. Hann lauk prófí í
lögum frá Háskóla íslands árið
1977 og starfaði síðan sem full-
trúi sýslumannsins á Blönduósi
frá 1. júní 1977 til 30. júní 1980.
Síðan var Amgrímur fulltrúi
sýslumannsins á Patreksfírði frá
1. júlí 1980 til 30. apríl 1982. Frá
1. maí 1982 hefur hann starfað
sem fulltrúi lögreglustjórans í
Reykjavík. Hann stundaði fr'am-
haldsnám í sjórétti í Osló og í
réttarsögu í Miinchen á ámnum
1978-1979. Kona hans er Maij-
atta ísberg.
Helgi Ingólfur Jónsson er fædd-
ur 23. apríl 1955. Hann lauk
embættisprófí í lögfræði við Há-
skóla íslands 1980 og var fulltrúí
bæjarfógetans á Sauðárkróki og
sýslumannsins í Skagafírði frá
1980 til 1983. Þá gerðist hann
fulltrúi sakadómarans í Reykjavík
og gengdi því starfi til ágústmán-
aðar 1985 þegar hann var settur
sakadómari við embættið til árs-
loka 1985. 1. janúar 1986 var
Aragrímur ísberg
Helgi Ingólfur Jónsson
Helgi settur deildarstjóri í dóms-
og kirkjumálaráðuneytinu. Auk
þessara starfa var Helgi settur
sýslumaður í Dalasýslu hluta ár-
anna 1985 og 1986, og bæjarfóg-
eti á Neskaupsstað hluta ársins
1985. Sambýliskona Helga In-
gólfs er Helga Jörgensdóttir og
eiga þau eitt bam.
Árbók
Reykjavík-
nr komin út
ÁRBÓK Reykjavíkur er kom-
in út í fjórtánda sinn síðan
útgáfan var endurvakin árið
1973. í henni er að finna
ýmsar tölulegar upplýsingar
um íbúa borgarinnar og ná-
grannabyggðalaga, bygg-
ingastarfsemi, samgöngur,
atvinnumál, verðlagsmál,
gjaldskrármál, rekstur borg-
arsjóðs og borgarfyrirtækja
og félagsmál.
I formála segir að bókinni sé
fyrst og fremst ætlað að vera
handbók fyrir þá, sem láta sig
málefni borgarinnar varða í dags-
ins önn. „Höfuðáhersla er lögð á
að birta sem nýjastar upplýsingar
um það, sem talið er skipta mestu
máli í borgarrekstrinum, og tölur
eru að mestu leyti látnar tala sínu
máli án texta. Þetta takmarkar
að sjálfsögðu gildi þessarar út-
gáfu fyrir þá, sem unna söguleg-
um fróðleik en samanburður á
þeim upplýsingum, sem birst hafa
í árbókum frá upphafí myndi þó
væntanlega gefa ýmislegt til
kynna um þær breytingar, sem
átt hafa sér stað í Reykjavík,
einkum frá stríðslokum.“
Árbókin kemur út í 600 eintök-
um og hefur Hilmar Biering
deildarfulltrúi í Fjármála- og
hagsýsludeild séð um útgáfuna.
V estur-Islendingur
fylkisstjóri í Manitoba
Dr. Georg Johnson, fyrrver-
andi heilbrigðis- og mennta-
málaráðherra i Winnipeg,
hefur verið skipaður fylkis-
stjóri Manitoba í Kanada.
Það var forsætisráðherra
landsins, Brian Mulroney, sem
skipaði Johnson í embættið sl.
föstudag. Samkvæmt kanadísku
stjómarskránni er þetta æðsta
opinbera staðan í hveiju fylki. Dr.
Johnson, sem er 66 ára að aldri,
er íslenskur í báðar ættir, á með-
al annars ættir að rekja til Hóla
í Hjaltadal. Kona hans, Doris, er
dóttir dr. Ágústs Blöndal, læknis
í Winnipeg og Guðrúnar Blöndal.
íslendingur hefur ekki verið skip-
aður í svo háa stöðu í Kanada
áður, að því er segir í frétt sem
Morgunblaðinu hefur borizt.
TROMPIÐ ER
TRYGGING
<
o
z
5
a
Pað er góð trygging í TROMP reikningnum, hann
er verðtryggður, óbundinn og hefur auk þess
grunnvexti. Pú getur alltaf lagt inn, alltaf tekið
út. Vextir eru lagðir við höfuðstól 2var á ári.
Treystu TROMP reikningnum, hann er góð
trygging. TROMP reikningurinn er einungis
í Sparisjóðnum.
SPARISJÓÐIRNIR