Morgunblaðið - 20.11.1986, Blaðsíða 32
32
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 20. NÓVEMBER 1986
ÚRVALS
VERKFÆRI
usnc
Stjörnulyklar
Topplyklasett
Tengur
Skrúflyklar
Þjalir
Borar
Sagir
Hallamál
Málbönd
Tommustokkar
Hamrar
Skaraxir
Kúbein
Þvingur
Verkfærakassar
VÍR- OG BOLTA-
KLIPPUR
Rafmagns-
smergel
Rafmagnsborvél-
ar
Rafmagnshand-
fræsarar
Rafmagnshand-
slípivélar
•
Franskar skrúfur
Borðaboltar
Stálboltar rúst-
frfir
Snitt-teinar
Skrúfur
•
Slökkvitæki
Eldvarnarteppi
Reykskynjarar
Pennabyssur
Áttavitar
Sjónaukar
Álpokar
OPIÐ LAUGARDAGA 9-12
Svíar hvattir til aðgerða
gegn stríðsglæpamönnum
Sök þeirra fyrnd segir stjórnin
Washington, AP.
FLOKKUR manna, sem eltir
uppi nasista, hefur hvatt
Bangladesh:
Mannrán
og morð
Dhaka, Bangladesh.AP.
UPPREISNARMENN er berjast
gegn stjórnvöldum í Bangla-
desh myrtu á þriðjudag 16
manns og halda 8 öðrum í
gíslingu i nágrenni Chittagong-
borgar, að því er ónafngreindar
heimildir herma.
27 manns er sóttu trúarathöfn
múhameðstrúarmanna var rænt,
en þremur sleppt skömmu síðar.
Líkin 16 fundust síðan á þriðju-
dag, en ekki er enn vitað hvaða
kröfur mannræningjamir setja
fram í sambandi við lausn gíslanna
átta.
Um 3000 uppreisnarmenn er
aðhyllast búddatrú hafa undanfar-
in ár barist gegn stjómvöldum í
Bangladesh.^ Eru þeir búnir her-
gögnum frá Sovétríkjunum og
öðrum Austur-Evrópulöndum og
taldir eiga bækistöðvar innan
landamæra Indlands.
sænsku rikisstjórnina til að láta
til skarar skríða gegn tólf
mönnum, sem grunaðir eru um
stríðsglæpi og talið er að búi í
Sviþjóð.
„Við geram okkur grein fyrir
sérstöðu Svía í heiminum sakir
hlutleysis þeirra. En við eram þess
fullvissir að í þessu lýðræðisríki
er vilji fyrir því að þeir, sem sekir
era um jafn guðlausan glæp og
helförina gegn gyðingum, komist
í hendur réttlætisins," segir í bréfi
„Simon Wiesenthal stofnunarinn-
ar“ til sænsku ríkisstjómarinnar.
Sænska stjómin hefur ákveðið
að ekkert verði gert í máli þessara
manna þar sem sök, er varðar
lífstíðarfangelsi, fymist á 25 áram
samkvæmt sænskum lögum.
í bréfínu era talin upp nöfn
mannanna tólf og gefnar upplýs-
ingar um þá. Þar kemur fram að
þessar upplýsingar séu fengnar úr
skjalasafni, sem tekið var saman
eftir heimsstyijöldina síðari.
Marvin Hier, rabbíi og yfirmað-
ur stofnunarinnar, og Abraham
Cooper, rabbíi og aðstoðarmaður
hans, afhentu Ulf Hjertonsson,
starfsmanni sænska sendiráðsins í
Washington, bréfíð. „Við treystum
því að stjóm yðar kanni hagi þess-
ara mánna til fulls og rannsaki
einnig hversu margir stríðsglæpa-
menn fóra til Svíþjóðar eftir síðari
heimsstyijöldina,“ sagði Marvin
Hier við afhendinguna.
Mennimir era granaðir um að
hafa tekið þátt í glæpum nasista
á hendur gyðingum í Eistlandi og
Lettlandi eftir að þýski herinn réð-
ist þar inn 1941.
Hier sagði á blaðamannafundi á
þriðjudag að í áðumefndu skjala-
safni hefðu einnig verið upplýsing-
ar um 40 stríðsglæpamenn, sem
byggju í Ástralíu, 26 menn í
Kanada og 17 á Bretlandi.
„Þessar upplýsingar era ómet-
anlegar í leitinni að stríðsglæpa-
mönnum," sagði Hier. „Búast má
við því að flett verði ofan af mörg
þúsund manns á næsta ári.“
Trieste, AP.
JÚGÓSLAVNESKUR byssubát-
ur skaut í gær á ítalskt fiskiskip
á Trieste-flóa. Einn maður lét
lífið i árásinni.
Skipið var fært til hafnar í Capo-
distria í Júgóslavíu og staðfesti
ræðismaður Italíu í borginni að 24
ára gamall ítalskur sjómaður hefði
fallið í árásinni.
Júgóslavneskir embættismenn
Gengi gjaldmiðla
London, AP.
BANDARÍKJADOLLARI lækk-
aði gagnvart helstu gjaldmiðlum
heims í gær og verð á gulli hækk-
aði lítillega.
í Tókýó kostaði dollarinn 162,80
japönsk jen (162,65) þegar gjald-
eyrisviðskiptum lauk.
Síðdegis í gær kostaði breska
stgrlingspundið 1,4220 dollara
(1,4245) í London.
Gengi helstu gjaldmiðla var að
öðra leyti þannig háttað að dollar-
inn kostaði: 1,6683 svissneska
franka' (1,6760), 6,5625 franska
franka (6,5975), 2,2665 hollensk
gyllini (2,2760), 1.389,50 ítalskar
lírar (1.395,75) og 1,38295
kanadíska dollara (1,3830).
Gull hækkaði í London og kost-
aði trójuúnsa 392,50 dollara
(390,50) síðdegis í gær. Á þriðjudag
lækkaði verð á gulli um átján doll-
ara, en kaupmenn sögðu að í gær
hefði virst sem gullverð myndi ekki
lækka meira.
sögðu fiskiskipið hafa verið á veið-
um innan júgóslavneskrar land-
helgi og að skipstjórinn hefði reynt
að komast undan. Áhöfn byssu-
bátsins hefði því séð sig tilneydda
til að hefja skothríð.
Ræðismaður Ítalíu í Capodistria
sagði að yfírvöld þar hefðu fyrir-
skipað opinbera rannsókn á atburði
þessum.
Júgóslavía:
Skotið á ítalskt fiskiskip
Finnska forsetataflið:
Tveir áskorendur en
Koivisto vinsælastur
Frá Lars Lundsten, fréttaritara Morgunblaðsins í Helsinki.
FINNSKI Hægri flokkurinn, Kokoomus, ákvað formlega um helg-
ina hver verður forsetaframbjóðandi flokksins í forsetakosning-
unum 1988. Harri Holkeri, Seðlabankastjóri og fyrrum
flokksformaður, varð fyrir valinu, enda hlaut hann mestan stuðn-
ing í allsheijar atkvæðagreiðslu flokksins í haust. Nú hafa tveir
menn boðið sig fram gegn Mauno Koivisto forseta. Auk Holkeri
er Paavo Váyrynen, utanríkisráðherra, í kjöri. Síðustu skoðana-
kannanir gefa í skyn að Koivisto forseti sé langvinsælastur þeirra
manna, sem hugsanlega verða í framboði 1988.
Forsetataflið er merkur þáttur
í finnsku þjóðlífi vegna þess
hversu valdamikill forsetinn er.
Að vísu ríkir þingræði en forsetinn
skipar ríkisstjóm og ákveður einn-
ig þingrof. Mikilvægasti þátturinn
í störfum forsetans er þó umsjón
utanríkismála.
Það var mikið áfall fyrir borg-
araflokkana, að jafnaðarmaður-
inn Koivisto var kjörinn 1982.
Fram til þess höfðu allir forsetar
Finnlands verið fulltrúar borgara-
flokkanna eða ófloffsbundnir
hægri menn. Nú vilja tveir stærstu
borgaraflokkamir steypa Koi-
visto. Skoðanakönnun, sem birtist
á sunnudaginn, spáir Koivisto 52%
fygli, Holkeri 12% og Váyrynen
13%. Koivisto hefur ekki enn
formlega gefið kost á sér. Jafnað-
armenn og margir kommúnistar
vænta þess eindregið að hann
verði sameiginlegur frambjóðandi
vinstri manna.
Fylgi Koivistos stafar af því að
hann hefur gott orð á sér fyrir
hreinskilni og skynsemi. Margir
hægri sinnaðir kjósendur hafa
kosið Koivisto vegna þess að hann
naut álits sem efnahagssérfræð-
ingur og tók mjög lítinn þátt í
flokkspólitík.
Keppinautar Koivistos. Þeir
Holkeri og Váyrynen, era báðir
atvinnustjómmálamenn og era
þar að auki tiltölulega ungir. Hol-
keri er 49 ára en Váyrynen aðeins
fertugur. Holkeri var um skeið
formaður Hægri flokksins,
Kokoomus, en var svo skipaður
einn af bankastjóram Seðlabank-
ans. Váyrynen er formaður
Miðflokksins og utanríkisráð-
herra.
Holkeri og Váyrynen takast nú
á um það, hvort þeirra verði aðal-
keppinautur Koivistos. Skoðana-
kannanir sýna ótvírætt, að
borgaraflokkamir geta ekki sigr-
að í forsetakosningunum nema
þeir sameinist, og varla þá.
Lokaæfing forsetataflsins verð-
ur í mars, þegar Finnar ganga til
þingkosninga. Þrír helstu fylking-
amar; jafnaðarmenn, miðflokks-
menn og hægri menn, hafa í haust
rætt um breytingu á ríkisstjóm-
inni. Jafnaðarmenn og miðflokks-
menn eru saman í stjóm núna.
Hvor flokkurinn fyrir sig hefur
látið í ljós vilja til að mynida stjóm
með hægri mönnum að kosning-
um loknum.
Miðflokksmenn hyggjast kaupa
fylgi Holkeris í forsetakosningun-
Hari Holkeri
um með því að gefa hægri
mönnum nokkur ráðherrasæti.
Jafnaðarmenn vilja koma í veg
fyrir að Váyrynen, miðflokks-
formaður, verði forsætisráðherra.
Váyrynen stefnir ótrauður að því
marki. Hann hefur reynt að skapa
sér svipaða stöðu í stjómmáhinum
og Kekkonen, fyirum forseti,
hafði. Samkvæmt því er hagstætt
að forsetaframbjóðandi sé forsæt-
isráðherra. Koivisto, Kekkonen og
Paasikivi, fyrirrennari Kekkon-
ens, gegndu forsætisráðherra-
embætti þegar þeir voru kosnir
forsetar.
í fínnskum forsetakosningum
era flokksbönd léttvæg. Það kem-
ur m.a. í ljós þegar menn líta á
fylgi flokkanna í þingkosningum
Mauno Koivisto
og bera saman við forsetakosn-
ingar. Meirihluti þingmanna er
úr borgaraflokkunum en samt var
jafnaðarmaður kosinn forseti.
Mannkostir forsetaframbjóðenda
skipa fyrsta sæti og flokksbönd
annað.
Þrátt fyrir að forsetinn sé
valdamikill setja forsetaframbjóð-
endur sjaldan fram stefnuyfírlýs-
ingar. Aðalverkefni forsetans er
á sviði utanríkismála, en þar var
stefnan mörkuð strax eftir stríð.
í innanríkismálum er hlutverk
forsetans að greiða fyrir af-
greiðslu mála. Það gerir hann sem
einstaklingur en ekki sem fulltrúi
einhvers flokks. Koivisto forseti
er einstaklingur sem nýtur mikils
trausts. Um núverandi keppinaut
hans verður ekki sagt hið sama.