Morgunblaðið - 20.11.1986, Blaðsíða 42
42
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 20. NÓVEMBER 1986
Stjörnu-
speki
Umsjón: Gunnlaugur
Guðmundsson
f dag ætla ég að fjalla al-
mennt um stjömuspeki, bæði
um það hvaða hugmyndir búa
að baki henni og svo það hvað
hún getur gefið okkur. Það
er svo að margir eiga erfitt
með að átta sig á stjömuspeki
og því hvað hún gangi út á.
Menn segja gjaman:
„Stjömuspeki, hvað er nú
það?“, verða jafnvel hálf vand-
ræðalegir eða fyllast andúð
án þess að gera sér grein fyr-
ir orsökum þess. Aðrir verða
spenntir, sjá fyrir sér dulúð,
' spádóma og uppljóstrun
mannlegra örlaga.
Einfaldar
grunnhugmyndir
Gmnnhugmyndir persónu-
leikastjömuspeki eru til þess
að gera einfaldar. f fyrsta
lagi er sagt að allt sem lifir
sé hluti af einni lífrænni heild.
Maðurinn er lífræn heild, jörð-
in er ein lífræn heild og
sömuleiðis sólkerfið. í stóm
heildinni, sólkerfinu, er hægt
að fylgjast með ákveðnum
hreyfilögmálum sem em þau
sömu og í minni heildum s.s.
jarðlífinu og í lífi einstaklinga.
, Minn skilningur á orðum
Biblí-
unnar, að Guð hafi skapað
manninn í sinni mynd, er t.a.
m. sá að Guð sé alheimurinn
og maðurinn þvf spegilmynd
heimsins.
Leit að GuÖi
Útfrá þessu má segja að áhugi
manna á stjömuspeki sé að
einhveiju leyti tengdur leit að
Guði eða stöðu mannsins í
heiminum útfrá náttúmlegum
lögmálum. Hver er ég með
tilliti til náttúmnnar og
lífsins? Hver er minn náttúm-
legi farvegur?
Náttúrulegur
lífstaktur
Mörgum manninum óar við
mengun, eyðingu náttúmnnar
og almennt þvi hversu langt
maðurinn er kominn frá upp-
mna sínum. Öll tækniundur
veraldar duga skammt ef
hjaitað er óhamingjusamt. Ég
vil því segja að stjömuspeki
sé tilraun til að færa manninn
nær uppmna sínum og auka
skilning okkar á náttúruleg-
um takti lífsins.
Daglega lífiÖ
Dags daglega hugsa sjálfsagt
fæstir sem hafa áhuga á
stjömuspeki um slík mál sem
að framan greinir. Það að í
gegnum stjömuspeki er hægt
að komast nær sjálfum sér,
sjá einhveija galla sína, finna
hæfileika og starf sem á betur
við en hið gamla er það sem
skiptir mestu. Ekki er síðan
verra ef hægt er að bera sam-
an kort tveggja einstaklinga
og nota stjömuspeki þannig
til hjálpar í samskiptum. At-
huga t.d. hvaða ólíka þætti í
fari hins aðilans við þurfum
að skilja og virða.
AÖ hagrœÖa
seglum
Niðurstaða þessa pistils er því
ef til vill sú að gagnsemi
stjömuspeki geti verið
tvíþætt. Annars vegar getum
við skilið náttúmna og lífstakt
hennar og útfrá því komið
fram af meiri virðingu við þá
sömu náttúm. í öðm lagi get-
um við öðlast sjálfsþekkingu
sem hjálpar okkur að lifa í
jafnvægi og samhljóm við
lífið. í stað þess að beijast
gegn straumum getum við
hagrætt seglum og notað
vinda okkur til hjálpar, fundið
hvenær er meðbyr og hvenær
mótbyr. Það sem þó virðist
mesta gagnsemi stjömuspeki
er að auk þess að öðlast aukna
sjálfsþekkingu skiljum við
annað fólk betur og við það
eykst umburðarlyndi okkar.
Það er ekki svo lítið í heimi
sem logar af ófriði.
X-9
lent á' sjónu/n, /aogtfró/and/\. e/aoc/f a ó'//a/n ÁrjjyVAn.
&cJf/ aó$ /w?. JJ/á/'i/ ÁyvcAsiá/pa&f y
'Je/A/ VWJMl/JJ/M
i&y/M mp //kcpa
C Klng FmIurn Syndicat*. Inc. WorId rights rescrved. j
GRETTIR
és ÆTLA A&> þRÍFA HÚS(Ð I PAQ,
6RETTII?, SVO ÞÚ S.<ALT HEMPA
ÖLLU 6n^ta DCASlINO PIku?
12-17
TOMMI OG JENNI
L..JI ÍC> METR0-G0I nUYN-HAYf R INf í J - 1 1 Ol/ A
7 : 1 — —\ LJOSKA —- - ■
HIPRI-- faíz&u oggádu
At> pvi.TyRA'.
/ Y rz-v * * 1 rCDHIM AMn
? — rtnUINAIMU ^ \ ^ \ \ jt r
SMAFOLK
THAT'5 EA5V..JU5T
DON'T 6ET OFF
TUC RIICI
Hvar erum við? Þetta eru Eru hvað?
björgunarbúðir.
Ég held að þeir ætli að Það er enginn vandi...
kenna okkur að bjarga við förum bara ekkert úr
sjálfum ... vagninum!
Umsjón: Guðm. Páll
Arnarson
Suður verður sagnhafí í 4
hjörtum eftir að hafa opnað á
16—18 punkta grandi og sýnt
íjórlit í hjarta við Stayman-sögn
norðurs.
Vestur Norður ♦ 543 ♦ K432 ♦ 872 ♦ Á109 Aiistur
♦ G9872 ♦ Á6
VÁ87 111 ¥ 109
♦ 6 ♦ DG9543
♦ G542 ♦ D86
Suður
♦ KD10
VDG65
♦ ÁK10
♦ K73
Vestur spilar út einspilinu í
tígli og sagnhafi drepur gosa
austurs með ás. Og spilar hjarta-
gosanum, sem fær að eiga
slaginn. Hjartadrottningin kem-
ur næst og vestur drepur á
ásinn.
Við sem sjáum öll spilin eigum
auðvelt með að finna réttu vöm-
ina. Vestur þarf aðeins að koma
makker sínum inn á spaðaás og
fá svo stungu í næsta slag. Ein-
hvem tíma hlýtur vömin svo að
fá fyjrða slaginn á lauf.
En vestur sér aðeins sín spil
og blinds, og frá hans bæjardyr-
um kemur alveg eins til greina
að spila laufi þegar hann er inni
á trompás.
Nema hann hafi við eitthvað
að styðjast. Og það hefur hann
auðvitað eða hvemig fylgdi aust-
ur lit í trompinu? Hann setti
fyrst tíuna og svo níuna. Sem
vísar ótvírætt á spaðann. Hátt
spil vísar á hærri litinn af þeim
sem til greina koma. Með því
að setja fyrst lægsta trompið
hefði austur verið að benda á
styrk í laufi, eða amk. neitað
snöggri innkomu á spaða.
Þetta er dæmi um spil þar sem
nota verður tromphundana til
að kalla í hliðarlit. Önnur leið
til að hjálpa makker er ekki fyr-
ir hendi.
SKÁK
Umsjón Margeir
Pétursson
í Evrópukeppni skákfélaga í
haust kom þessi staða upp í skák
Svíans Ekström og sovézka stór-
meistarans Beljavsky, sem hafði
svart og átti leik.
34. — Rxf4I, 35. gxf4 (eða 35.
Hd2+ - Rd3+) Dxf4+, 36. Kel
- Hcl, 37. Ke2 - De5+ og
Ekström gafst upp. Beljavsky
vann báðar skákimar á fyrsta
borði og lið hans Tmd sigraði
Rockaden, Stokkhólmi 9-3.
Beljavsky er í frábæm formi um
þessar mundir, nýlega sigraði
hann á stórmótinu í Tilburg og
lagði þar m.a. Karpov að velli.