Morgunblaðið - 20.11.1986, Page 43

Morgunblaðið - 20.11.1986, Page 43
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 20. NÓVEMBER 1986 43 Lottó — vinsæll leik- ur um víða veröld eftir Aðalstein Sigurðsson Talnaleikurinn lotto, sem íslend- ingum stendur til boða að vera þátttakendur í innan fárra daga, hefur náð ótrúlegum vinsældum og útbreiðslu um víða veröld á undan- fömum árum. Það sem einkum gerir þennan leik vinsælan meðal almennings er, hversu einfaldur hann er og að auki háar vinnings- upphæðir, sem að sjálfsögðu grundvallast á mikilli þátttöku, þar sem vinningamir verða stærri eftir því sem fleiri taka þátt. Erfítt er að gera sér grein fyrir þeim áhrifum sem lottó mun hafa hér á landi á önnur happdrætti eða talnaleiki, sem fyrir eru. Reynsla nágrannaþjóða okkar bendir þó til þess, að lottó verði viðbót við happ- drættamarkaðinn, en eitthvað muni draga úr vinsældum annarra talna- getrauna, svo sem knattspymuget- rauna. Annars staðar hefur raunin til dæmis orðið sú, að þeir þátttak- endur í knattspymugetraunum sem ekki hafa beinlínis áhuga eða þekk- ingu á knattspymu, snúi sér fljót- lega að lottói. í mörgum ríkjum Bandaríkjanna er lottó snar þáttur í þjóðlífinu. Þar fylgjast milljónir manna vikulega með drætti í beinni útsendingu í sjónvarpinu. Vestra eru dæmi þess að einn þátttakandi hafí unnið allt að 40 milljónum dollara í einum drætti. Til styrktar íþrótt- um, ungmennum og öryrkjum Lottóleikurinn sem hér hefur göngu sína nú í nóvember, ber heit- ið Lottó 5/32 og er rekið sameigin- iega af íþróttasambandi íslands, Öryrkjabandalagi íslands og Ung- mennafélagi íslands. Tekjur af lottóinu renna til þessara aðila, og verður varið m.a. til þess að efla íþróttir í landinu, stofnanir og starf- semi öryrkja. íþróttasamband íslands á 46,67% fyrirtækisins, Ör- yrkjabandalag íslands 40% og Ungmennafélag íslands 13,33%. Ágóðanum verður skipt í þessum hlutföllum. Samtökin hafa stofnað með sér sérstakt fyrirtæki, íslenska getspá, sem rekur Lottó 5/32. ís- lensk getspá er sett á laggimar á grundvelli lagasetningar frá Alþingi síðastliðið vor. Einfaldur leikur Lottó 5/32 er leikið þannig, að þátttakendur fá sérstaka lottómiða hjá umboðsmönnum, sem verða fjöl- margir, út um allt land. Á hverjum lottómiða em fímm leikraðir, merktar A, B, C, D og E og ráða þátttakendur því, hversu margar raðir þeir fylla út. Hver röð kostar 25 krónur. Þátttakendur velja sér síðan fímm tölur af 32, sem eru í hverri röð. Nafnið á leiknum, Lottó 5/32 skýrir þannig í hveiju leikur- inn felst. Strikað er lóðrétt yfír þær fímm tölur sem valdar eru og mið- anum því næst skilað til næsta umboðsmanns. Þar borgar þátttak- andi 25 krónur fyrir hveija röð sem hann hefur fyllt út. Umboðsmaður stingur seðlinum í þar til gerðan tölvustýrðan kassa. Kassinn sendir boð til móðurtölvu í húsi íslenskrar getspár í Laugardalnum í Reykjavík og prentar út sérstaka staðfesting- arkvittun, sem þátttakandi tekur við, ásamt seðlinum. Mikilvægt er að ganga úr skugga um að kvittun- in sé í samræmi við seðilinn, en það er kvittunin sem gildir, hljóti við- komandi vinning, ekki seðillinn. Dreg-ið í beinni útsendingn Á hveiju laugardagskvöldi verð- ur dregið í Lottói 5/32 í beinni útsendingu í Ríkissjónvarpinu undir eftirliti dómsmálaráðuneytisins. Dráttur fer þannig fram, að sérstök vél velur fimm númeraða bolta. Númer boltanna eru vinningsnúm- erin. Engu máli skiptir í hvaða röð boltamir veljast, sá sem er með allar fímm tölumar í einni og sömu leikröðinni fær hæsta vinning. Séu fleiri en einn með fímm tölur réttar skiptist vinningurinn á milli þeirra. Þeir sem hafa fjórar tölur réttar af fímm fá einnig vinning og hið sama gildir um þá sem hafa þijár tölur réttar af fímm. 40% af heildar- sölu er varið til vinninga. 50% af þeirri upphæð greiðist í fyrsta vinn- ing, 15% í annan vinning og 35% í þriðja vinning. Vinningslíkur eru þessar: Fimm tölur af fimm: 1 á móti 201.376, íjórar tölur af fímm: 1 á móti 1.492 og þijár tölur af fímm: 1 á móti 57. Þegar svo verk- ast að enginn fær fyrsta vinning, yfírfærist hann óskiptur og bætist við fyrsta vinning í næstu leikviku. Þannig getur safnast fyrir vemlegt fé sem getur gert leikinn mun meira spennandi en ella. Ljóst er, að hljóti lottó jafn góðar undirtektir hér á landi og það hefur hlotið alls staðar þar sem það er nú leikið, mun það hafa gífurlega þýðingu fyrir þau samtök, sem að leiknum standa, og gera þeim kleift að efla starfsemi og efla hag um- bjóðenda sinna svo um munar. Vinsældir erlendis Lottó er víðast hvar rekið af hinu opinbera, meira að segja í Banda- ríkjunum, þar sem lottófyrirtækin eru rekin í hveiju fylki fyrir sig af viðkomandi fylkisstjómum. ísland er eitt örfárra ríkja í heiminum þar sem lottó er rekið af einkaaðilum. Það er sammerkt lottóstarfseminni alls staðar, að ágóðinn af leiknum rennur til afmarkaðra þátta, svo sem skólabygginga, íþrótta- og ungmennastarfs og til styrktar ör- yrkjum. Lottó hófst í Vestur-Berlín árið 1953 með góðum árangri. Hinn mikli áhugi sem Vestur-Berlínarbú- ar sýndu leiknum varð til þess að flestar Austantjaldsþjóðimar settu lottó á fót árið eftir. Veltan í vest- ur-þýska lottóinu nemur nú um 100 milljónum marka á viku. Meira en helmingur allrar vestur-þýsku þjóð- arinnar tekur reglulega þátt í lottói og velta þess er fjórtán sinnum meiri en veltan í knattspymuget- raunum. Nýjustu tölur sem birtar hafa verið í Evrópu um hlutfall lottó- leikja af heildarveltu talnaleikja er sem hér segir: Vestur-Þýskaland 92%,. Búlgaría 90,2, Júgóslavía 62,3, Pólland 90, Finnland 86,2, Sviss 90,2, Ungveijaland 71,3, Holland 90, Belgía 96. Tölvutækni nýtt hérlendis Fyrirtækið íslensk getspá hófst þegar handa eftir að því var komið á laggimar fyrr á þessu ári. Eftir að framkvæmdastjóri þess, Vil- hjálmur B. Vilhjálmsson, og ráð- gjafar fyrirtækisins, höfðu kynnt sér rekstur stimpilkassakerfísins, sem notað er í Evrópu og beinlínu- tölvukerfís, sem notað er í Banda- ríkjunum og þykir mun fullkomn- ara, var leitað tilboða í bæði kerfin. Verð stimpilkassakerfísins reyndist um 65 milljónir, en beinlínutölvu- kerfísins um 80 milljónir króna. Vegna yfirburða beinlínukerfísins var tekin ákvörðun um að taka til- boði bandaríska fyrirtækisins GTECH í Boston. Með því að nota tölvubúnað verður öll starfsemi Lottós 5/32 mun fljótvirkari og skilvirkari auk þess sem það hleyp- ir auknu lífí í leikinn, þar sem þátttakendur geta tekið þátt í leikn- um alveg fram undir að dráttur hefst í sjónvarpinu. Samningur íslenskrar getspár við GTECH felur í sér, að hið banda- ríska fyrirtæki lætur í té tölvur og hugbúnað til starfseminnar, 150 sölukassa, tækniþekkingu við upp- setningu og rekstur o.fl. Fyrstu sex mánuðina greiðir ís- lensk getspá ekki neitt upp í samning, en síðan miðast afborg- anir við vikulega veltu. 10% af fyrstu 50 þúsund dollurunum, 5% af næstu 150 þúsund og 2,5% eftir það. Ef miðað er við 200 milljón \ króna veltu á ári í 50 vikur, eða fjórar milljónir króna á viku, nema greiðslur til GTECH 15 milljónum króna, eða 7,5% af heildarveltu Lottós 5/32. 40% fara í vinninga, eða 80 milljónir, kostnaður og þókn- un til umboðsmanna nema 27,5%, eða 55 milljónum. Hagnaður nemur því 25%, eða 50 milljónum króna, miðað við áðumefndar forsendur. Þá koma 30 milljónir króna í hlut íþrótta- og ungmennahreyfíngar- innar og 20 milljónir í hlut öryrkja. Innlendur stofnkostnaður er áætlaður milli 10 og 12 milljónir króna. Samningur Islenskrar get- spár við hið bandaríska fyrirtæki er þess eðlis, að eina áhættan sem Islensk getspá tekur, er innlendi stofnkostnaðurinn. Einn maður fékk 1,6 milljarða í einum drætti 28 ára gamall Chicagobúi, Mic- hael E. Wittkowski, vann í septem- ber árið 1984 stærsta lottóvinning sem um getur, eða 40 milljónir dollara, sem jafngilda um það bil eitt þúsund og sex hundruð milljón- um íslenskra króna. Faðir vinnings- hafans hafði keypt miða fyrir 35 dollara í Ilinois-lottóinu og skrifað nöfn fjölskyldumanna sinna á seðlana. Michael varð hinn heppni. Vinningspotturinn í lottóinu hafði ekki gengið út í þijár vikur og var orðinn æði hár. Þetta jók enn á söluna og þegar dregið var fjórðu vikuna, hafði potturinn náð 40 millj- ónum dollara. Höfundur starfar við fjölmiðlun. Fallþungi dilka hálfu kiloi mein Kirkjubæjarklaustri. SLÁTRUN sauðfjár hjá Sláturfé- lagi Suðurlands á Kirkjubæjar- klaustri stóð yfir frá 16. september til 31. október. Slátr- að var alls 26.970 fjár, þar af 2204 fullorðið fé. Við slátrunina unnu um 60 manns. Meðalfall- þungi dilka var 13,53 kg en var 13,08 kg sl. ár. Seint á sláturtíð var haldinn fundur á Klaustri af hálfu fram- leiðnisjóðs stéttarsambands og fjármálaráðuneytis um kaup eða leigu á fullvirðisrétti. en í fyrra Þessi fundur var fámennur enda sveitafólkið í önnum við slátrun og < smalamennsku, en fundarboðendur töldu sig ekki geta haft fundar- tímann að kveldi. Hvað sem um þessar ráðstafanir eða tillögur má segja, þá eru þær of seint fram komnar. Þær hefðu þurft að vera kynntar snemma vors, áður en menn lögðu t áburðarkaup og annan kostnað vegna sumarsins. Sumarið í V-Skaftafellssýslu var gott, heyfengur mikill og góður og grasvöxtur á útjörð með besta móti. - Fréttaritari. IÐANDI I VEROLD TÆKNIÞROUNNAR HJOLBARÐA

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.