Morgunblaðið - 20.11.1986, Page 47
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 20. NÓVEMBER 1986
47
AF ERLENDUM
VETTVANGI
eftir PAUL NITZE
Gagneldflaugasamn-
íngurinn og ágrein-
ingurinn í Reykjavík
PAUL Nitze, höfundur eftirfarandi greinar, er sérstakur
ráðgjafi Ronalds Reagan, Bandaríkjaforseta, og George
Sliultz, utanríkisráðherra, í vígbúnaðarmálum. Hér fjaUar
hann um Gagneldflaugasamning stórveldanna (ABM),
geimvarnaáætlun Bandaríkjamanna og ágreininginn nwi
hana, sem varð til þess, að samningar tókust ekki á leið-
togafundinum í Reykjavík. Birtist greinin fyrst í banda-
riska stórblaðinu The Washington Post.
Aleiðtogafundinum í
Reykjavík kom fram mikill
ágreiningur milli Bandaríkja-
manna og Sovétmanna um þá
tillögu þeirra síðamefndu, að
geimvamarannsóknir skyldu
takmarkaðar miklu meira en
getið er um í gagneldflauga-
samningnum (ABM) frá 1972.
Varð þessi ágreiningur m.a. til
að koma í veg fyrir víðtæka
samninga um skynsamlegt
vígbún aðareftirlit.
Bandaríkjastjóm telur, að
báðar þjóðirnar eigi að standa
að öllu leyti við ABM-samning-
inn eins og hann er nú og því
er ástæðulaust fyrir hana að
fallast á aðrar takmarkanir við
rannsóknum og tilraunum en
þar er kveðið á um. Við hljótum
einnig að minna á þær áhyggj-
ur, sem við höfum af rannsókn-
um og tilraunum Sovétmanna
með gagneldflaugakerfí, en þær
benda til, að þeir ætli að koma
því upp um öll Sovétríkin. Við
krefjumst þess einnig, að Sovét-
menn taki niður Krasnoyarsk-
ratsjána, sem við teljum vera
beint brot á ABM-samningnum.
Þvert ofan í þessa skoðun
Bandaríkjastjómar lögðu Sov-
étmenn til á fundinum á íslandi,
að ABM-samningnum yrði
breytt og rannsóknir og tilraun-
ir með geimvamir einskorðaðar
við rannsóknastofuna. Það, sem
fyrir þeim vakti, var einfaldlega
að gera geimvamaáætlunina að
engu.
Bandaríkjastjóm er þeirrar
skoðunar, að það sé alveg ljóst
hvað ABM-samningurinn leyfir
og hvað hann bannar og þær
samningaviðræður, sem farið
hafa fram á grundvelli hans,
styðja þann skilning hennar.
Sovétmenn, sem hafa það að
yfirskini, að þeir vilji „treysta"
samninginn, stefndu hins vegar
að því breyta honum og banna
það, sem honum var ekki ætlað
að banna. Þetta vildi Reagan,
forseti, ekki samþykkja og lagði
til á móti, að báðar þjóðimar
fylgdu samningnum nákvæm-
lega.
Þegar um þessi mál er fjallað
verður að gera greinarmun á
rannsóknum og þróun. í ABM-
samningnum er ekkert tekið
fram um rannsóknir enda var
það svo í SALT I-viðræðunum,
að hvorki Bandaríkjamenn né
Sovétmenn trúðu því, að unnt
væri að koma við raunverulegu
eftirliti með þeim. Sannleikur-
inn er sá, að hvorug þjóðin vildi
takmarka rannsóknir og í AB-
M-samningnum er heldur engin
tilraun gerð til þess.
Bandaríkjamenn hafa alltaf
greint á milli „rannsókna" og
„þróunar" samkvæmt þeirri
skilgreiningu, sem Harold
Brown kom fram með árið 1971
í yfírlýsingu til sovésku sendi-
nefndarinnar í SALT I-viðræð-
unum. Rannsóknir felast m.a. í
fræðilegri hönnun og tilraunum
en þróun er undanfari fullkom-
inna tilrauna með kerfí og
einingar, sem ætlaðar eru til
raunverulegra nota. Þróun
vopnakerfís hefst með smíði og
Paul Nitze
tilraunum einnar eða fleiri eft-
irlíkinga kerfísins eða helstu
hluta þess.
Meginákvæði ABM-samn-
ingsins eru ölium kunn. I grein
I er bannað að koma upp gagn-
eldflaugakerfí til varnar öllu
landi aðildarþjóðarinnar. Þar er
átt við kerfíð sem heild, ekki
einstaka hluta þess, og kveðið
á um bann við að koma því upp
en ekki við rannsóknum. Grein
V bannar þróun, tilraunir og
smíði ABM-kerfa, sem komið
er fyrir á eða í sjó, í lofti, í
geimnum eða eru hreyfanleg á
landi og einnig kerfíshluta sam-
kvæmt þeim skilgreiningum,
sem notaðar voru árið 1972. Á
hinn bóginn leyfir ABM-samn^
ingurinn fems konar þróunar-
og tilraunastarfsemi.
Það skiptir miklu við skil-
greiningu eins þáttar þeirra
athafna, sem ABM-samningur-
inn leyfír, að huga að viðauka,
sem kallast „samþykkt yfírlýs-
ing D“. Fjallar hann um þann
möguleika, að í framtíðinni
verði smíðuð önnur ABM-kerfí
og kerfíshlutar, sem byggist á
öðrum skilgreiningum og lög-
málum en þá þekktust. Um
háþróuð kerfí af þessu tagi fer
samningurinn öðmm höndum
en þau, sem skilgreind eru í
grein II og byggjast á tækni-
þekkingu ársins 1972. I
„samþykktri yfírlýsingu D“
segir, að smíði og notkun háþró-
aðra kerfa skuli vera háð
viðræðum og samþykki aðila
en ekki hins vegar þróun eða
tilraunir með þau. Takmarkan-
imar í grein V eiga því ekki við.
Þessi skilningur á „sam-
þykktri yfírlýsingu D“, „rúma“
túlkunin eins og hann kallast,
styðst fyllilega við texta ABM-
samningsins og þær samninga-
viðræður, sem frá upphafí hafa
farið fram á grundvelli hans.
Þrátt fyrir það hefur Banda-
ríkjaforseti ákveðið, að svo
lengi sem við teljum okkur geta
náð markmiðum okkar með
geimvamarannsóknunum,
muni Bandaríkjastjóm ekki
breyta upphaflegum áætlunum
í þessu efni. Það þýðir, að við
þurfum ekki einu sinni að not-
ast við rúmu túlkunina til að
halda rannsóknunum áfram.
ABM-samningurinn leyfír
þrenns konar þróunar: og til-
raunastarfsemi aðra. í honum
em t.d. engar hömlur settar við
þróun og tilraunum tækja, sem
em hvorki hluti ABM-kerfís
eins og það er skilgreint í samn-
ingnum né geta komið í hans
stað. Auk þess leyfír samning-
urinn tilraunir á tækjum, sem
em ekki ABM-tengd, hafa ekki
þá eiginleika, sem ABM-kerfíð
krefst. Tilraunir með gagneld-
flaug em taldar ABM-tengdar
ef reynt er að láta hana hitta
langdræga kjarnorkueldflaug á
flugbraut en það á hins vegar
ekki við þegar reynt er að hitta
skotmörk á sporbaug um jörðu.
Leyfð er þróun og tilraunir með
ákveðnar ABM-ratsjár á landi
og skotpalla með tiltekið til-
raunasvið og loks má þróa og
reyna ABM-gagnflaug eða
gagnvöm, sem skotið er af
ABM-skotpalli og reynd í
geimnum.
Sovétmenn verða að skilja,
að Bandaríkjamenn em andvíg-
ir meiri takmörkunum á þróun
og tilraunum en samið hefur
verið um og skjalfestar em með
ABM-samningnum. Með þann
skilning að bakhjarli getum við
unnið áfram að víðtæku sam-
komulagi um vígbúnaðareftirlit,
sem leyfír rannsóknir og til-
raunir, fækkað langdrægum
kjamorkuvopnum og breytt
vígstöðu beggja þjóðanna þann-
ig, að þær treysti meira á vamir
en árásarmátt.
ELDAVÉL EK 1734 MEÐ
GLERHITAPLÖTU
Tvöfaldur ofn. Yfir- og undirhiti,
blástur, grill. Sjálfhreinsandi. 4
hitaplötur. Glerhurð með barna-
öryggi, loftræst. Geymsluskúffa,
stillanlegir fætur. Færanleg topp-
plata.
Litir: hvitur og brúnn.
2 ÁRA ÁBYRGÐ
Blomberg
Nóvemberkjör:
Verð 39.890 stgr.
útborgun 5.000,-
EINAR FARESTVEIT & CO. HF. x
BERGSTADASTRÆTI I0A - SlMI I6995
símar 681722 og 38125
ílllllÓt
SÉRVERSLUN MEÐ ELDHÚS- 0G B0RÐBÚNAÐ
í TILEFNI 2 ÁRA AFMÆLIS
VERSLUNARINNAR BÚBÓT
BJÓÐUM VIÐ 10% AFSLÁTT
Á VÖRUM VERSLUNARINNAR
ÚT NÓVEMBER
• POTTAR • GLERVÖRUR
• PÖNNUR • BÖKUNARVÖRUR
• HNÍFAPÖR • FONDUE
• MATARSTELL • BORÐDÚKAR
• KAFFISTELL • BÚSÁHÖLD
• GLÖS • RAFTÆKI
fO % aýitdtttei
NÝBÝLAVEGI24 - SÍMI41400