Morgunblaðið - 20.11.1986, Blaðsíða 50
50
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 20. NÓVEMBER 1986
t
Eiginmaöur minn, faðir okkar, tengdafaöir og afi,
GUÐMUNDUR KR. JÓNSSON,
Vatnsholti 4,
Reykjavfk,
lést að morgni 18. nóvember í Borgarspítalanum.
Ingibjörg Jóna Jónsdóttir,
Vigdfs Guðmundsdóttir,
Jón Ingi Guðmundsson,
Guðrún Elfsabet Guðmundsdóttir,
tengdabörn og barnabörn.
t
Útför eiginmanns mins,
ÁGÚSTAR ÞORVALDSSONAR
á Brúnastöðum,
verður gerð frá Hraungerðiskirkju föstudaginn 21. nóvember kl.
14.00.
Ingveldur Ástgeirsdóttir.
Eiginmaöur minn, t
EGILL BENEDIKTSSON
Volaseli,
Bæjarhreppi,
lést 18. nóvember.
Guðfinna Sigurmundsdóttir.
t
Útför eiginmanns míns, föður okkar og afa,
EINARS EIÐSSONAR,
Seljabraut 46,
sem lést 14. þessa mánaöar, fer fram í Bústaðakirkju laugardag-
inn 22. nóvember kl. 11.00. Jarösett verður í Skarðskirkjugarði.
Þeim sem vijdu minnast hins látna er vinsamlegast bent á Krabba-
meinsfélag íslands.
Laufey Kristinsdóttlr,
Sigrfður Einarsdóttir,
Birna Einarsdóttir,
Ellen Marfa Einarsdóttir,
Hildur Thorlacius.
t
Útför móður okkar,
EMMU JÓNSDÓTTUR,
Aðalgötu 3,
Ólafsfirði,
sem lést 12. þessa mánaðar, fer fram frá Ólafsfjarðarkirkju laugar-
daginn 22. nóvember kl. 13.30.
Blóm afþökkuð en þeim sem vildu minnast hinnar látnu er bent
á dvalarheimiliö Hornbrekku eða aðrar líknarstofnanir.
Fanney Jónsdóttir,
Þorsteinn Jónsson,
Sigurveig Jónsdóttir.
t
Eiginmaöur minn
PÁLL JÓHANN SIGURÐSSON
frá Búlandi,
verður jarðsunginn frá Fossvogskapellu föstudaginn 21. nóvember
kl. 13.30.
Jóhanna Kristjánsdóttir.
t
Faöir okkar,
HELGITRYGGVASON,
Þingvallastraeti 4, Akureyri,
lést í Fjórðungssjúkrahúsinu 14. nóvember. Jarðarförin fer fram
frá Akureyrarkirkju laugardaginn 22. nóvember kl. 13.30. Þeir sem
vilja minnast hans vinsamlega láti Sel njóta þess.
Fyrir hönd fjölskyldunnar,
Helga Helgadóttir,
Tryggvi Helgason,
Marfa Helgadóttir.
Lokað
í dag, frá kl. 12.00 á hádegi, vegna útfarar ÖRNÓLFS
NIKULÁSSONAR, sölustjóra.
H. Benediktsson hf.,
Suðurlandsbraut 4.
Minning:
HelgiB. Björnsson
yfirdeildarstjóri
Það hefur því miður dregist
óhæfílega lengi að fest væru á blað
fáein minningar- og kveðjuorð í til-
efni af fráfalli Helga Björgvins
Bjömssonar, fyrrum yfírdeildar-
stjóra bögglapóststofunnar í
Reykjavík, en hann lést á síðast-
liðnu sumri hátt á níræðisaldri.
Helgi Björgvin Bjömsson fæddist
á Akranesi 23. maí 1898, sonur
Bjöms Bjömssonar söðlasmiðs
(Akranesi) og Jónínu Jónsdóttur.
Árið 1924 kvæntist hann Sigrúnu
(f. 12. júlí 1888) Eiríksdóttur
Eiríkssonar frá Efri-Tungu, Örlygs-
höfn í Vestur-Barðastrandarsýslu.
Hún lést 16. mars 1956.
Þau hjón eignuðust eina dóttur,
Hönnu, sem gift er Ásmundi J.
Ásmundssyni hér í borg.
Helgi Björgvin verður minnis-
stæður öllum þeim, sem áttu því
láni að fagna að kynnast honum
og starfa með honum. Sama er að
segja um hina mörgu viðskiptavini
póstþjónustunnar, sem áttu við
hann skipti á löngum starfsferli.
Helgi Björgvin kom ungur í póst-
þjónustuna, sextán ára, og gat sér
fljótt orð fyrir dugnað og atorku í
starfí. Það ber ekki síst vott um
álit það og traust sem forráðamenn
póstþjónustunnar með Sigurð
Briem póstmálastjóra og Sigurð
Baldvinsson póstmeistara í farar-
broddi höfðu á honum að þeir
skyldu árið 1934 fela honum for-
stöðu nýrrar deildar, tollpóststof-
unnar, sem ákveðið hafði verið að
stofna til þess að auðvelda tollaf-
greiðslu aðfluttra póstsendinga.
Tollpóststofunni var fengið húsnæði
í Hafnarhúsinu, þar sem hún var
til húsa allt til 1984, að starfsemi
hennar fluttist í Póstmiðstöðina
níju.
Það kom f hlut Helga að móta
starfíð í hinni nýju deild þar sem
störfuðu hlið við hiið starfsmenn
tollgæslu og póstþjónustu. Ekki
reynir síst við slíkar aðstæður á lip-
urð manna og samstarfsvilja. Hve
vel tókst til um mótun starfseminn-
ar í byijun sannast best á því, að
enn í dag er hún í grundvallaratrið-
um óbreytt.
Eins og menn muna fóru um þær
mundir í hönd tímar innflutnings-
hafta, fyrst vegna kreppu, síðan
vegna heimsstyijaldar. Hvoru
tveggju, innflutningshöftin og sam-
gönguerfiðleikar gerðu það að
verkum að afgreiðsla öll hlaut að
verða þunglamalegri og stirðari.
Reyndi þá ekki síst á hæfíleika
þeirra sem í stafni stóðu til þess
að útskýra fyrir óþolinmóðum við-
skiptavinum hinar að því er sumum
fannst ómanneskjulegu reglur og
höft. Sama gilti um seljendur vam-
ings til íslands, en um tollpóststof-
una fara allir bögglar til landsins,
smáir og stórir, verslunarvara jafnt
sem jólagjafir til einstaklinga.
Helgi Björgvin veitti tollpóststof-
unni forstöðu til ársins 1956. Þá lét
forstöðumaður bögglapóststofunn-
ar, Einar Hróbjartsson, af störfum
vegna aldurs. Sæti Einars var að
allra dómi vandfyllt og mun mönn-
um því hafa létt nokkuð er Helgi
Björgvin lagði inn umsókn um
starfíð. Þama var ekki um stöðu-
hækkun, launahækkun né frama í
sjálfu sér að ræða fyrir Helga, held-
ur lýsir þetta máske manninum
sjálfum, vilja hans til að takast á
við ný verkefni, fínna kröftum
sínum frekara viðnám og líka því,
að þama taldi hann vera þörf fyrir
sig, enda hafði hann áður unnið á
bögglapóststofunni undir stjóm
Einars.
Svo mikið er víst að Magnús
Jochumsson, póstmeistari, mun
ekki hafa þurft mikinn umhugsun-
arfrest til að leggja til hvem
umsækjanda skyldi skipa og vom
þeir þó all margir og vel hæfir.
Bögglapóststofan var um þessar
mundir til húsa í kjallara pósthúss-
ins í Pósthússtræti 5. Húsnæðið var
fyrir löngu orðið ófullnægjandi, en
nú rættist úr. Árið 1957 fékk bög-
glapóststofan húsnæði á götuhæð
Hafnarhvols við Tryggvagötu. Kom
það nú í hlut Helga að skipuleggja
flutning og hið nýja húsnæði. Þama
starfaði hann uns hann lét af störf-
um, árið 1968, sjötugur að aldri.
Eins og nafn bögglapóststofunn-
ar gefur til kynna, fer þar fram
afgreiðsla á bögglum, afhending og
viðtaka. Áður en póstútibú komust
á fót í Reykjavík urðu því allir Reyk-
víkingar, sem senda þurftu böggla
eða fengu böggla senda utan af
iandi, að snúa sér til bögglapóst-
stofunnar. Og um bögglapóststof-
una fóm líka allir bögglar til
útlanda hvort heldur þeir áttu að
fara með flugvél eða skipi og einn-
ig í ríkum mæli bögglar milli staða
innanlands, sem vegna samgöngu-
kerfísins urðu að fara um
Reykjavík. Þama vom því mikil
umsvif, eins og nærri má geta. Sem
fyrr var Helgi Björgvin þama réttur
maður á réttum stað. Hann ávann
sér traust og vinsældir ekki aðeins
viðskiptavina, heldur póstflutnings-
aðila og samstarfsmanna um land
allt. Ekki síst þegar samgönguerfíð-
leikar vom þurfti mikla lipurð og
Ornólfur Nikulás-
son — Minningarorð
Fæddur 16. aprfl 1929
Dáinn 13. nóvember 1986
Hann Döddi frændi er dáinn.
Hann var yngsti sonur þeirra
hjóna Nikulásar Kr. Jónssonar skip-
stjóra og Gróu Pétursdóttur sem
bæði vom kunn, hann sem happa-
og fengsæll skipstjóri og hún sem
landskunn baráttukona í hverskon-
ar félagsmálum og þá sérstaklega
fyrir Slysavamafélag íslands og
fyrir störf í borgarstjóm Reykjavík-
ur.
Á Öldugötunni ólst hann upp
ásamt systkinum sínum Pétri, Jóni
og Þóra að ógleymdri móðursystur
sinni, Laugu frænku, sem alla tíð
bjó á heimilinu og var honum sem
önnur móðir.
Döddi var við nám í Verzlunar-
skóla Islands í tvo vetur og eftir
það lá leið hans til Englands í Pit-
t
Útför móöur, stjúpmóður, tengdamóöur og ömmu okkar,
GUÐFINNU JÓNSDÓTTUR
frá Ólafsfiröi,
Reykjavíkurvegi 10,
Hafnarfirði,
fer fram frá Fríkirkjunni í Hafnarfiröi föstudaginn 21. nóvember
kl. 15.00. Þeir sem vildu minnast hinnar látnu láti krabbameins-
félagiö njóta þess.
Ragna Helgadóttir Ástráður Sigurðsson,
Margrét Helgadóttir, Hjörtur Ingólfsson,
Sigurbjörn Helgason, Ingibjörg Jónsdóttir,
stjúpbörn, barnabörn og barnabarnabörn.
Lokað
í dag,
vegna jarðarfarar ÖRNÓLFS NIKULÁSSONAR
fimmtudaginn 20. nóvember, frá kl. 12.00.
PON Pétur O. Nikulásson sf.
mans-verslunarskólann í London.
Að loknu námi réð hann sig til
starfa hjá H. Benediktsson & Co.,
og starfaði þar til æviloka.
Döddi var þannig af guði gerður
að allir sem fengu tækifæri til að
kynnast honum, fundu hans hlýja
heiðarlega innræti. Þar sem foreldr-
ar mínir hófu sinn búskap hjá afa
Nikk og ömmu Gróu á Öldugötu
24, þá varð ég þeirrar ánægju að-
njótandi að kynnast Dödda frænda.
Seinna myndaðist með okkur traust
og góð vinátta, sem entist ævilangt.
Döddi var mikið snyrtimenni og
hafði unun af lestri góðra bóka, og
einnig áttu ferðalög innanlands sem
utan hug hans. Nýlega hafði systur-
sonur hans, Þórhallur, sem búsettur
er í Bandaríkjunum, boðið honum
að koma og heimsækja sig næsta
sumar og ráðgerði hann að fara og
hlakkaði mikið til.
Síðustu árin bjó hann á Holts-
götu 19 ásamt Laugu móðursystur
sinni og var ailtaf jafn notalegt að
heimsækja þau og fastur punktur
í tilvemnni fyrir fjölskylduna.
Elsku Lauga, Tóta og Pétur,
mínar innilegustu samúðarkveðjur.
Agga