Morgunblaðið - 20.11.1986, Síða 51
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 20. NÓVEMBER 1986
51
lagni til þess að takast mætti að
koma pósti áfram.
Gamlir samstarfsmenn úti á land
minnast enn með hlýhug þegai
Helgi Björgvin hringdi og leitaði
frétta. Spurði þá í leiðinni almæltra
tíðinda og leitaðist með því við að
deila kjörum manna.
Helgi Björgvin mun ekki hafa
notið langrar skólagöngu fremur
en jafnaldrar hans af „gamla skól-
anum“. Mér kom hann samt alltaf
fyrir sjónir sem sannur menntamað-
ur, gagnmenntaður í besta skilningi
þess orðs. Hann hafði yndi af fögr-
um listum, en einnig útiveru og
ferðalögum. Víðlesinn var hann og
vel heima í bókmenntum.
í kvöldskólum og einkatímum
aflaði hann sér fræðslu í ýmsum
efnum, svo sem í tungumálum. Sú
menntun kom að hagnýtum notum
ekki síst á hans vinnustað. Menn
skyldu ekki gleyma, að á böggla-
póststofu og tollpóststofu er verið
í stöðugum, daglegum viðskiptum
við pósthús á erlendri grund. Fyrir
minnstu misfellum og truflunum
þarf að gera grein fyrir í samræmi
við alþjóðasamninga og dugir þá
íslenskan skammt.
Bréf hans og skýrslur, hvort
heldur var á íslensku eða erlendum
málum voru hnitmiðuð og skýr,
gjaman krydduð tilvitnunum, sem
hæfðu tilefninu, hittu naglann á
höfuðið.
Hann var gagnmenntaður í besta
skilningi þess orðs, höfðinglegur í
framgöngu, góður drengur, velvilj-
aður, skilningsríkur, óáreitinn,
„vammi firrður".
Þannig mun ég minnast Helga
Björgvins Bjömssonar og hygg að
svo muni um aðra þá, er honum
kynntust á löngum og farsælum
starfsferli.
Blessuð sé minning hans.
Rafn Júlíusson
Skáldsaga
eftir Gloriu
Naylor
KOMIN ER út í íslenskri þýðingu
bókin Konurnar á Brewster
Place, sem er eftir unga bandaríska
konu, Gloriu Naylor. Bókaútgáfan
Iðunn gefur út. Hjörtur Pálsson
þýddi. Þetta er fyrsta bók höfundar.
„Brewster Place er gata í fá-
tækrahverfí stórborgarinnar, blind-
gata i heimi fárra valkosta og
endalausra vonbrigða. í bókinni
segir frá sjö konum sem borist hafa
inn í þessa blindgötu, hver með
sínum hætti. Uppruni þeirra er ólík-
ur, hver og ein á sína sögu, þær
eru ungar og gamlar, harðar og
viðkvæmar, en allar eiga þær sér
drauma, og þær standa saman gegn
•fjandsamlegu umhverfí og gegn
þeirri grimmd sem örbirgð og von-
leysi ala af sér.
Gloria Naylor hefur hér náð að
skapa ljóðræna og um leið afar trú-
verðuga og ógnvekjandi lýsingu á
niðurlægingu, ofbeldi, hugrekki og
þolgæði."
Melsölublaó á hverjwn degi!
Holl og næringarrík fæða - það
ferskasta sem þú getur fengið í
hádeginu.
Á Hrafninum getur þú líka fengið
ljúffenga fiskmáltíð eða valið kjöt
á steikarabarnum.
HDAFNINN
~ ^ SKIPMOLTI 37
SÍMI 685670
OGSAIATBÁR
ÞEGAR TVEIR
STERKIR STANDA
AD ÞJÓNUSTUNNI...
Van Leeuwen erstærsta lagerfyrirtæki röra og fylgihluta þeirra
í Evrópu. Sindra Stál rekur stærstu birgðastöð fyriríslenskan
málmiðnað.
Öflugtsamstarfvið V. Leeuwengerirokkurkleiftaðbjóðafjölbreytt
úrvalafsvörtum og galvaniseruðum pípum, prófílpípum,
heildregnum pípum og suðutengjum.
Skjót og öflug þjónusta vegna sérverkefna!
VAN LEEUWEN PM
SINDRA
STALHF
Pósthólf 880, Borgartúni 31, 105 Reykjavík, sími: 27222.