Morgunblaðið - 20.11.1986, Qupperneq 56

Morgunblaðið - 20.11.1986, Qupperneq 56
56 MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 20. NÓVEMBER 1986 fcI k í fréttum Með vöðvabúnt o g heila í hlutfalli Ungur maður með hlutverk. Maður er nefndur ild Schwarzenegger. Hann vakti fyrst á sér athygli þegar hann var kjörinn Herra alheimur fýrir vöðvaþykkt sfna, en síðan þá hefur mikið vatn runnið til sjávar. Schwarzenegger hefur leikið í ótal kvikmyndum, sem hafa verið hver ann- arri vinsælli, kvænst inn í Kenendy-fjölskylduna og hefur auðgast mjög á ijárfestingum í Vestur- heimi, en hann er sviss- neskur að ætt. Þegar Schwarzen- egger hóf feril sinn var litið á hann sem enn eitt heimskt vöðvabúntið. En eftir að hafa fylgst með honum f nokkur ár hafa kvikmyndavezírar Hollywood skipt um skoðun, því Schwarzen- egger virðist vera af Mfdasi kominn ef marka má velgengni hans. Flestar myndir Schwarz- eneggers hafa að vísu verið fordæmdar af kvik- myndagagnrýnendum, en aðsóknin er í öfúgu hlutfalli. „Ég kann best við hraðar spennumyndir. Mér leiðist þegar tíma er eytt í endalausar við- ræður, þegar leikaramir setjast niður og fara að leggja út af heimspeki- legum málefnum. Það sakar hins vegar aldrei að hafa gamansemina ekki langt undan. Þannig á að fara að við að gera vinsælar myndir". Mynd Schwarzeneg- gers, Commando naut mikilla vinsælda og líklegt er að gerð verði framhaldsmynd hennar, þó svo að ekki hafi verið á um það kveðið í samn- ingi. Svo var heldur ekki um hina reginvinsælu mynd Terminator, en önnur mynd er þegar í vinnslu um það efni. Þá gerði Schwarzenegger samning um að leika í fimm kvikmyndum um Conan villimann. Segja má að Schwarz- enegger hafi fyrst slegið í gegn með myndinni um Conan, en hann er sið- laus villimaður, sem játar engum hollustu nema sjálfum sér. Hvemig kann hann vió slíkt stjómlaust heið- ingjasamfélag sem lýst er í Conan-myndinni'! „Ég skildi persónuna alveg. Hann mætir mik- illi andstöðu og mótlæti, en hann gefst aldrei upp og hefur gífurlegt vilja- þrek. Annars var það John [Milius leikstjóri], sem gaf Conan þá dýpt se raunin varð á. Að vfsu vildi hann stundum draga úr taumleysi villi- mannsins að ósk forráða- manna kvikmyndafyrir- tækisins, en ég benti honum á að þetta væri mynd um villimann, en ekki ævintýri á dag- heimili." Schwarzenegger efast aldrei um eigin velgengni og telur allt vera sér í hag. „Sumir héldu að hreimurinn yrði mér fjöt- ur um fót, Hah! Ef eitthvað var þá hjálpaði hann mér. í Conan- myndunum hjálpaði hann. Ég átti að leika barbara í öðmm heimi. Auðvitað hlaut ég að vera með hreim. f Term- inator var sama upp á teningunum. Ég átti að leika vélmenni og stund- um var ég jafnvel beðinn um að hægja á mér. — Svo má minna á Gretu Garbo; ekki spillti hreim- urinn fyrir henni. — Eða Marlon Brando, hann hefur drafað frá því vöggu. Framburðurinn er ekkert mál. Ég tala réttari ensku en Sylvést- er Stallone!" „Ég hef mjög gaman af því að leika og þess meir sem ég læri meira. Uppáhaldsleikarinn minn er Clint Eastwood og það er vegna þess hvemig hann er pottur- inn og pannan í öllu sem hann tekyur sér fyrir hendur. Hann fær hug- mynd, hann skrifar hana niður, selur einhveiju kvikmyndaveri hug- myndina, útvegar dreif- anda, útvegar fé, leikstýrir myndinni og leikur aðalhlutverki — hann fylgir myndinni eft- ir frá vöggu til grafar, ef svo má að orði kom- ast. Það er atvinnu- mennska." Tískusýning hjá Flónni Í[tískuversluninni Flónni em nú aldnar tískusýningar reglulega á fimmtudagskvöldum og hefur þangað verið boðið ýmsu fólki, starfshópum, félagasamtökum o.s.frv. Að sögn Gerðar í Flónni hefur þessi kynning mælst vel fyrir og sérstaklega á fatnaði, sem saum- aður er af Flónni hér á landi. Meðfylgjandi myndir vom teknar í húsakynnum verslunarinnar í síðustu viku. Hér er stúlkan á uppleið, e.t.v. klædd meira i samræmi við islenska veðráttu, því hún er komin í regnkápu, sem eins og flest á sýning- nnni var saumað hérlendis á saumastofu Flóarinnar. TIMOTHY HUTTON OG FRÚ: Afkomandi á næsta leiti vo sem grandvömm lesendum þessara síðna er kunnugt giftust leíkaramir Timothy Hutton og Debra Winger fyrir rúmu hálfu ári. Það var þó fyrst um daginn sem hjónakomin héldu upp á hjónavígsluna með pompi og pragt, en þá héldu þau hattapartý fyr- ir helstu samkvæmisljón Los Angeles-borgar. Sjálf vom þau ekki með hatta af verri endanum og notuðu tæki- færið til þess að segja frá væntanlegri hingaðkomu erfingja síns. Hér er hún hins vegar í flaueiisdragt, sem saum- uð er hér. Þetta eru gróf vetrarf öt og eru á bæði kynin. Stúlkan sem gengur nið- ur þrepin er i buxna- dragt smakvæmt nýju línunni frá hinu franska tískufyrirtæki Different- ial.
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.