Morgunblaðið - 20.11.1986, Síða 63
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 20. NÓVEMBER 1986
63
Bréfritara finnst freklega að sjómannastéttinni vegið nú í seinni
tíð, þeir séu hýrudregnir og alltof mikið gert úr launum þeirra.
Sjómenn borga olí-
una á fiskiskipin
Kæri Veivakandi.
Mér er farið að blöskra þessi
skrif og umtal sumra manna um
tekjur sjómanna. Eru þeir ávallt að
láta í það skína að sjómenn hafi
góð laun. Það er bara ekki satt,
laun sjómanna eiga að vera mun
betri. Sjómenn vinna beint við und-
irstöðu atvinnuveg landsins.
Velmegun okkar íslendinga er al-
gjörlega í beinu samhengi við góðan
og mikinn afla ásamt því verði sem
fyrir hann fæst. Við þurfum að eiga
góða sjómenn.
Morgunblaðið er að predika í al-
menning um tekjur sjómanna og
það með áróðurslegum fyrirsögnum
að mér finnst. Samanber fyrirsögn
þann 26. okt. á baksiðu. Já, þeir
byrja í tæka tíð að gera mikið úr
launum okkar. Tilgangurinn er auð-
vitað sá að fá almenning og e.t.v.
ráðamenn til að trúa því að sjómenn
hafí góð laun. Greinilegur þrýsting-
ur er nú að myndast hjá ráðamönn-
um o.fl. hagsmunaaðilum að halda
launum sjómanna niðri. Allskyns
áróður um að sjómenn hafí svo og
svo góðar tekjur miðað við aðra.
Eins og Halldór Ásgrímsson sjávar-
útvegsráðherra sagði: „Samkvæmt
þeim upplýsingum sem þegar liggja
fyrir virðast tekjur sjómanna í hlut-
falli við tekjur annarra stétta vera
óvenju góðar.“ Samkvæmt hvaða
upplýsingum sem fyrir liggja? Eru
þær upplýsingar sem fyrir liggja
sanngjamar til samanburðar við
aðrar launastéttir? Ég leyfí mér að
efa það. í grein í Morgunblaðsins
þann 26. okt. segir að meðaltekjur
sjómanna í fullu starfí séu á þessu
ári áætlaðar um 1,2 millj. kr. Hvað
er átt við með fullu starfí? Er hugs-
anlegt að fullt starf merki það sama
hjá þeim og maður sem tekur ekk-
ert frí á öllu árinu? Er það þá
mannsæmandi að taka ekki fri frá
sjónum allt árið? Þessar spumingar
og margar fleiri um laun og kjör
sjómanna væri gaman að ræða op-
inberlega. Nefna má í því sambandi
sterkan orðróm um mikla peninga
er fara undir borðið til útgerðar-
manns í formi yfirborgana á físk-
verð. Sjómenn fá einungis
landsambandsverð en yfirborgun
rennur til útgerðar óskipt. Fjöldi
tilvika um svik og ósanngimi er
hægt að nefna. Svívirðilega var að
málum staðið þegar rikisstjómin á
árinu 1983 setti bráðabirgðalög um
að 29% skyldi tekið framhjá skipt-
um án þess að ákvæði væri um að
þessar auknu prósentur kæmu sjálf-
krafa til baka með einhveijum hætti
þegar olíukostnaður útgerðar
minnkaði. Má leiða að því rök nú
að sjómenn borgi allan oliukostnað
fyrir útgerð en útgerðin noti síðan
þessa peninga sem hún heldur eftir
til að braska og velta þessum pen-
ingum í þarfa og óþarfa hluti innan
sinnar útgerðar. Við sjómenn eigum
þessa peninga, það hiýtur að vera
augljóst. Opnum augun fyrir þessu
óréttlæti sem sjómenn hafa verið
beittir.
Við sjómenn verðum að beijast
hatrammlega fyrir hverri krónu
sem við fáum í vasann það vitum
við þó sumir aðrir geri lítið úr. Að
okkur er vegið úr öllum áttum. Eina
leiðin til bættra kjara er samstaða
okkar.
Sjómaður
Þessir hringdu . . .
Ekki truf la
„Þrumufleyginn“
Steinn hringdi og vildi koma
þeim óskum til forráðamanna
Stöðvar 2 að þeir hættu að trufla
„Þrumufleyginn".
Ekki meira
hringl
Útvarpshlustandi hringdi:
Ég ætla bara að vona að út-
varpsráð láti nú hvorki einn né
neinn hringla meira með sig eða í
sér varðandi kvöldfréttatíma sjón-
varps. Breytingin á útsending-
artíma fréttanna var ekkert annað
en aulalegt asnaspark útí loftið sem
enginn grundvöllur var nokkru sinni
fyrir eins og sýnt hefur verið fram
á. Þjóðin vill fyrir víst hafa sinn
Er hægt að
fá allar nið-
urstöðurn-
ar birtar?
Ágæti Velvakandi!
Mikið þótti mér gaman að lesa
um skoðanakönnun sem Talna-
könnun gerði meðal erlendu
blaðamannanna sem heimsóttu
okkur á dögunum. Upplýsingar af
þessu tagi eru okkur ekki aðeins
til skemmtunar og ánægju heldur
eigum við að hagnýta þær til þess
að koma betra skipulagi á okkar
mál. íslendingar hafa gert alltof
lítið af því að hugsa fram í tímann
og vinna saman að stórum málum,
og ég tel að meginástæðan fyrir
slökum lífskjörum í þessu landi sé
sú, að hér er hver höndin upp á
móti annarri. Okkar ferðamál og
útflutningsmál og margt annað eru
ekki byggð á nægilegri framsýni,
heldur á frumkvæði einstakra
manna sem byggja meira á „til-
fínningu" en þekkingu. Því fagna
ég þessu frumkvæði og vona að
haldið verði áfram á sömu braut.
Ef ég hef skilið rétt þá var sú
könnun sem birtist í Morgunblað-
inu aðeins lítill hluti af rannsókn-
inni og nú spyr ég: Er hægt að fá
alla könnunina? Ég spyr vegna
þess að um nokkurt skeið hef ég
velt fyrir mér þeim möguleika að
starfa að útflutningsmálum, því
ég hef mikla trú á að í þeim sé
mikil framtíð, ef unnið er af skyn-
semi. Ég las í Helgarpóstinum að
svipuð skýrsla hafí verið gerð fyrir
mörgum árum en komið fáum að
gagni vegna þess að svo fáir hafí
lesið hana. Vonandi verða það ekki
örlög þessarar skýrslu.
Ný kynslóð er nú að komast til
vits og ára í landinu. Það er mennt-
uð kynslóð og vona ég sannarlega
að hún fari betur að ráði sínu en
kynslóð forfeðranna sem steypti
okkur öllum í risavaxnar skuldir
með fyrirhyggjuleysi og slæmu
skipulagi atvinnumála. Vísindin
efla vissulega alla dáð og vil ég
því undirstrika þakklæti mitt til
þeirra manna sem svo skjótt
brugðust við þegar einstakt tæki-
færi gafst til að afla greinargóðra
upplýsinga um stöðu og möguleika
okkar í hinum stóra heimi. Þökk
Talnakönnun!
kvöldfréttatíma kl. 20 og geta í
friði m.a. hlustað á í hljóðvarpi
þætti eins og Um daginn og veg-
inn, íslenskt mál og fleira áhuga-
vert sem er þar á dagskránni á
milli 19.30 og 20.00.
Rugluðu fallbyss
urnar hvalina í
rýminu?
Gamall sjómaður hafði samband
við Velvakanda og var að velta fyr-
ir sér hugsanlegri skýringu á villu
hvalanna er syntu á land nú fyrir
skömmu í Skötubót við Þorláks-
höfn.
Hinn þekkti blaða- og fræðimað-
ur Árni Óla skrifaði heilmikla grein
í Morgunblaðið í febrúar 1953 um
herskip er fórst á Hraunsskeiði um
haustið 1718. Herskip þetta, Giöt-
he-
borg, var vel búið fallbyssum og
tókst ekki að bjarga neinni þeirra
og grófust þær í sandinn við ósa
Ölfusár. Það er ágiskun sjómanns-
ins að ef til vill hafí allur koparinn,
sem þama hefur legið { bráðum
þijár aldir, náð að trufla innbyggt
stýrikerfi dýranna og þau því hrein-
lega týnt áttunum.
Sacco
sæti unga fólksins bólstraðir
með Pollon. Margir litir.
4.940
Þú
finnur
fjársjód
HIGH REOL
Stærðir: B66xH160xD29 Kr. 4.610,-
Stærðir: B66xH104xD29 Kr. 2.990,-
Hvítar — svartar — og margir aðrir hillumöguleikar.
af fallegum
hlutum hjá
okkur. . .
SPEGLASULUR
20x20x50 kr. 1.380,-
20x20x70 kr. 1.670,-
45x45x45 kr. 2.510,-
Maxi speglar
4 stk. í pakka 39,6 x 60 cm.
með öllum festingum.
Rally stóll
Kr. 750,-
Svartir — hvítir.
Kollar
Svartir — hvítir — rauðir.
Verð
stykkið.
1.120,-
[3 húsgagna-höllín
BÍLDSHÖFÐA 20-112 REYKJAVÍK - 91 -681199 og 681410
Púðar
fallegum
litum
Dinty 30x30 200 kr. stk.
Dinty 40x40 300 kr. stk.
Tuft 30x30 350 kr. stk.
Tuft 40x40 650 kr. stk.
Silki 30x30 350 kr. stk.
Silki 40x40 650 kr. stk.
-r