Morgunblaðið - 13.12.1986, Side 1
96 SÍÐUR
STOFNAÐ 1913
282. tbl. 72. árg.
LAUGARDAGUR 13. DESEMBER 1986
Prentsmiðja Morgunblaðsins
Reagan krefur North
og Poindexter sagna
London, Washington, AP. Reuter.
REAGAN Bandaríkjaforseti krafðizt þess af John Poindext-
er, fyrrum öryggisráðgjafa sínum, og Oliver North,
aðstoðarmanni hans, að þeir skýri frá öllu sem þeir viti
um vopnasöluna til íran og peningagreiðslur til Contra-
skæruiiða í Nicaragua og dragi ekkert undan. Gaf forsetinn
út yfirlýsingu þar að lútandi í gærkvöldi, en hann er nú
undir vaxandi þrýstingi um að hreinsa rækilega til í Hvita
húsinu vegna vopnasölumálsins, bæði frá flokksmönnum
sínum og demókrötum.
Richard Ben-Veniste, sem
stjómaði rannsóknamefnd vegna
Watergate-hneykslisins, sagði í
gær að allt að hálft ár kynni að
líða þar til menn kæmust til botns
í vopnasölumálinu og hvemig
tekjur af vopnasölunni komust inn
á svissneskan bankareikning
Contra.
Richard Lugar, formaður ut-
anríkisnefndar öldungadeildarinn-
ar, sem verið hefur einn dyggasti
stuðningsmaður Reagans,
krafðizt brottvikningar Williams
Casey, yfirmann leyniþjónustunn-
ar (CIA), og Donalds Regan,
starfsmannastjóra Hvíta hússins
í gær. Bob Dole, leiðtogi repúblik-
ana í öldungadeildinni, sagði að
tími væri kominn til að hefjast
handa við „hreingemingar". Reag-
an var óspart hvattur til að krefja
menn sína, þ. á m. Oliver North,
ofursta, og John Poindexter, fyrr-
um öryggismálaráðgjafa, sagna
og birta allar staðreyndir málsins
opinberlega.
Sá orðrómur fór um Washing-
ton í gær að nánir vinir forsetans
legðu að honum að víkja Regan
og að þeir nytu stuðnings forseta-
frúarinnar. Spáðu stjómmála-
fræðingar því að starfsmanna-
stjórinn myndi tæpast verða við
störf í Hvíta húsinu í byrjun næsta
árs.
Kanadísk yfírvöld lýstu áhyggj-
um sínum í gær vegna tregðu
bandarískra yfírvalda á að veita
upplýsingar um meinta aðild
kanadískra fjármálamanna að
vopnasölunni til íran. Casey
greindi frá aðild þeirra að vopna-
sölunni í yfírheyrslum hjá þing-
nefnd í fýrradag og olli það miklu
fjaðrafoki í Kanada. Bandarískir
embættismenn sögðu í gær að
líklega hefðu spákaupmenn og
milligöngumenn uin vopnasöluna
til íran haft af henni miklar tekj-
ur og er aðild þeirra talin eiga
eftir að flækja málið enn frekar.
Brezk fyrirtæki áttu einnig að-
ild að vopnasölu og Portúgal kom
við sögu, að sögn ísraelskra
vopnasala. Hann sagði að um
meira magn væri að ræða en þau
vopn, sem Bandaríkjamenn hefðu
selt íran. Útflutningsskýrslur
hefðu verið falsaðar og látið líta
út fyrir að verið væri að selja
vopnin til Bretlands. Vopnin hefðu
aldrei farið þangað, heldur verið
send til Portúgals með flugvélum
ísraelska flugfélagsins E1 A1 en
verið skipað jrfír í ómerktar leigu-
þotur á flugvellinum í Lissabon.
Frá Lissabon hefði verið flogið
beint til íran og hefði leið vélanna
legið meðfram tyrknesku landa-
mærunum.
Sjá ennfremur fréttir á bls.
44.
Símamynd/AP
Najibullah kominn til Kremlar
Najibullah, leiðtogi afganska kommúnistaflokksins, er nú staddur í
Moskvu þar sem hann mun eiga viðræður við Mikhail Gorbachev,
leiðtoga sovéska kommúnistaflokksins. Búist er við, að viðræðumar
muni snúast um stríðið í Afganistan en talið er, að frá því Rauði
herinn réðst inn í landið fyrir sjö árum hafí ein milljón Afgana fallið
og allt að fímm milljónir manna em landflótta. Er þetta fyrsta heim-
sókn Najibullah til Moskvu frá því Babrak Karmal var ýtt til hliðar
sem ráðamanni í Kabúl.
Tugir manna fórust er
þota hrapaði í A-Berlín
Austur-Berlín, AP. Reuter.
SOVÉZK farþegaþota með 82
menn innanborðs fórst i aðflugi
að Schönenfeld-flugvellinum i
Austur-Berlín í gærkvöldi. Aust-
ur-þýzk yfirvöld vörðust mjög
frétta af flugslysinu, en hermt
er að þotan hafi hrapað niður á
íbúðahverfi.
Að sögn austur-þýzku ríkis-
fréttastofunnar ADN fundust 12
manns á lífi í flaki þotunnar, sem
var frá sovézka .ríkisflugfélaginu
Aeroflot. Þeir vom flestir mjög
mikið slasaðir og sumum vart hug-
að líf. Þegar síðast fréttist var ekki
vitað hversu margir hefðu beðið
bana.
Flugvélin var að koma frá Minsk
í Sovétríkjunum. Hún var rétt ólent
á Schönenfeld-flugvellinum er hún
skall til jarðar í Bohnsdorf, sem er
Utanríkisráðherrar NATO-ríkja:
Fagna niðurstöðu Reykjavíkurfundarms
um langdrægar og meðaldrægar flaugar
Brusset frá Önnu Bjarnadóttur, fréttaritara Morgunblaðsins.
TAKMÖRKUN hefðbundins vigbúnaðar og umræður um stöðuna
í afvopnunarmálum eftir fund leiðtoga stórveldanna í Reykjavík
voru helstu umræðuefni utanrikisráðherra Norður-Atlantshafs-
bandalagsríkjanna á árlegum fundi þeirra í Brussel i gær og
fyrradag. Matthias Á. Mathiesen, utanríkisráðherra íslands, sat
fundinn fyrir íslands hönd ásamt Einari Benediktssyni, sendi-
herra og fastafulltrúa íslands hjá NATO og Hjálmari W.
Hannessyni, sendifulltrúa i utanrikisráðuneytinu. Næsti utanrikis-
ráðherrafundur bandalagsins verður haldinn í Reykjavik i júní.
Utanríkisráðherramir lýstu yfir
stuðningi við samningaviðræður
Bandaríkjanna og Sovétrílganna
í Genf um afvopnunarmál. Hug-
myndir Ronalds Reagan, forseta
Bandarílcjanna, og Mikhails
Gorbachev, leiðtoga Sovétríkj-
anna, um algjöran niðurskurð
langdrægra kjamorkuvopna á tíu
árum eru ekki nefndar í loka-
skjali fundarins. En ráðherramir
lýsa yfir ánægju með þann árang-
ur sem náðist í Reykjavík og
miðar í átt að 50% niðurskurði
langdrægra kjamorkuvopna
Bandaríkjanna og Sovétríkjanna.
Þá fögnuðu þeir samkomulagi um
meðaldrægar kjamaflaugar, sem
miðar að því, að þær verði fjar-
lægðar frá Evrópu.
Carrington lávarður, fram-
kvæmdastjóri NATO, sagði á
blaðamannafundi að ráðherra-
fundinum loknum, að ráðherrar
bandalagsins hefðu lagt áherslu á
að stefnt yrði að raunsæjum
markmiðum í afvopnunarmálum.
„Áhrif tillagna leiðtoganna í
Reykjavík eru til athugunar innan
NATO og við viljum sjá niðurstöð-
ur þeirra áður en við lýsum yfír
endanlegum stuðningi við hug-
myndir Bandaríkjamanna."
Ráðherramir lögðu áherslu á
að ekki ætti að láta samninga um
meðaldræg kjamorkuvopn ráðast
af samkomulagi á öðrum sviðum
afvopnunarmála.
„Mikilvægi takmörkunar á
hefðbundnum vígbúnaði hefur
komið betur í ljós eftir Reykjavík-
urfund leiðtoganna," sagði
Matthías Á. Mathiesen í samtali
við Morgunblaðið að fundinum
loknum. „Samningaviðræður stór-
veldanna í í Genf um niðurskurð
kjamorkuvopna hafa varpað nýju
ljósi á ójafnvægi milli austurs og
vesturs í hefðbundnum vígbúnaði.
Afvopnunarviðræður eiga að auka
öryggi og mega ekki draga úr
vömum Vestur-Evrópu. Það er
mikilvægt að viðhalda trúverðug-
um fælingarmætti Atlantshafs-
bandalagsins og því samþykkti
fundurinn yfírlýsingu þar sem
Austur-Evrópuríkjum er boðið til
víðtækra viðræðna um hefðbundin
vopn.“
útborg Austur-Berlínar. Ekki fylgdi
fregnum hverrar þjóðar farþegar
þotunnar vom.
Vestur-þýzkar sjónvarpsstöðvar
náðu að taka myndir af svæðinu,
þar sem þotan skall niður. Reykur
liðaðist upp af illa fomu braki þot-
unnar og sáust slökkviliðsmenn
beijast við logana. Mikill fjöldi her-
og sjúkrabifreiða sáust með blikk-
andi ljósum á slysstaðnum.
Þotan var af gerðinni Tupolev
TU-134, eða sömu gerðar og flug-
vél Samora Machel, fyrrum forseta
Mósambík, sem fórst 19. október
sl. rétt innan landamæra Suður-
Afríku. Um borð í flugvélinni vom
73 farþegar og 9 manna áhöfn, að
sögn ADN. Hún getur flutt 84
menn samtímis.
OPEC semur
um samdrátt
Genf, Reuter.
OLÍURÁÐHERRA Ecuador
sagði í gærkvöldi að OPEC-ríkin
hefðu náð samkomulagi um
5—10% samdrátt í oliufram-
leiðslu i byrjun næsta árs.
Ráðherrann sagði að enn ætti
eftir að semja um hversu mikið ein-
stök ríki drægju framleiðslu sína
saman. Tilgangur samdráttúrins er
að knýja fram verðhækkun á olíu,
úr 14 dollumm fatið í 18 dollara.