Morgunblaðið - 13.12.1986, Side 6
6
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 13. DESEMBER 1986
I
ÚTVARP/SJÓNVARP
__ Ljósbrot
IBandaríkjum Norður-Ameríku er
sá háttur hafður á að skjóta aug-
lýsingum inní sjónvarpsþætti og
kvikmyndir í tíma og ótíma. Risasjón-
varpsstöðvarnar ABC, NBC og CBS
eru iðnar við kolann en öllu má nú
ofgera þannig skilst mér að nú sæki
kapalstöðvar og svokallað almenn-
ingssjónvarp mjög í sig veðrið á
sjónvarpsmarkaðinum en þessir aðil-
ar ijúfa ógjarnan dagskrána með
auglýsingum. íslenska ríkissjónvarp-
ið hefír fá upphafi vega haft þá stefnu
að rjúfa ekki dagskrá með auglýsing-
um. En nú eru breyttir tímar þannig
hafa ráðsmenn Stöðvar 2 tekið uppá
því að ijúfa hinn stórskemmtilega
spennuþátt: Bjargvættinn með aug-
lýsingaskotum. í fýrrakveld rufu þeir
þáttinn hvorki meira né minna en
tvisvar sinnum og voru auglýsinga-
innskotin í lengra lagi að mér fannst.
Auðvitað eru dagskrárstjórar
Stöðvar 2 fijálsir að því að ijúfa sína
dagskrá þegar verða vill enda
óbundnir af pólitísku varðhundaráði
slíku er glefsar í hæla dagskrárstjóra
ríkissjónvarpsins. En máski væri ekki
svo vitlaust að Alþingi skipaði hér
einskonar siðanefnd er hefði eftirlit
með því að ljósvakafjölmiðlamir villtu
ekki um fýrir áhorfendum til dæmis
með dulbúnum auglýsingum? Út-
varpsráð í núverandi mynd er hins
vegar að mínu mati sjálfdautt eða
ætlast menn til þess að starfsmenn
ríkisflölmiðlanna sæti pólitísku að-
haldi á sama tíma og starfsmenn
einkastöðvanna lúta í mesta lagi kröf-
um auglýsingamarkaðarins en svo
sannarlega er sá markaður harður
húsbóndi sem við skulum vona að
sveigi aldrei ljósvakafjölmiðlan alfar-
ið að sínum vilja.
Ljósbrot nefnist þáttur í umsjón
Valgerðar Matthíasdóttur er sér stað
í dagskrá Stöðvar 2 á fimmtudögum
klukkan 19:55. í þætti þessum
spígsporar Valgerður um bæinn kíkir
inní gallerí og matsölustaði þá er
dagskrá stöðvarinnar lítillega kynt.
Þáttur Valgerðar er frísklegur máski
full frísklegur þvi ekki sá ég betur
en að Valgerður viltist eitt sinn fram
hjá kvikmyndavélinni. Annars tel ég
að Valgerður ætti ekki að láta nægja
að kíkja inn og hæla því sem fyrir
augu og eyru ber. Mér fyndist ekki
úr vegi að hún setti upp svipuð gler-
augu og Jón Óttar sjónvarpsstjóri þá
hann rýnir bókamarkaðinn. Hvemig
væri Valgerður að slást í för með
saumakonu eða fatahönnuði niður
Laugaveginn er legði mat á gæði
fatnaðarins í tískubúðunum og þegar
komið væri að matsölustöðunum biði
þar við borð annálaður sælkeri eða
matarskríbent? Jón Óttar nælir kinn-
roðalaust stjömum á bækur jafnvel
bækur Nóbelsskáldsins og því ekki
að næla stiömum á verslanir oer
matsölustaði bæjarins? Að mínu mati
býr kaupmannastéttin hér nánast í
vemduðu fjölmiðlaumhverfí og veitir
ekki af meira aðhaldi af hálfu fjöl-
miðla. ’Eg skal bara nefna ykkur
dæmi. í fyrra keypti ég handónýt
jólaföt á bömin í ónefndri bamafata-
verslun hér í bæ. Þegar konan hringdi
í búðareigandann og kvartaði yfir því
að fötin hlupu og aflöguðust í fyrsta
þvotti var svarið: Hengdirðu þvottinn
á ofn?
Konan mín riflaði í þessu sam-
bandi upp viðskipti er hún átti við
verslunareiganda í Manchester fyrir
nokkrum árum. Hún hafði fest kaup
á forláta sjónvarpstæki en svo illa
vildi til að tækið rispaðist lítillega er
það var sett ofan í kassa. Verslunar-
eigandinn brá við skjótt og bauð
konunni fyrsta flokks útvarpstæki í
skaðabætur. Enn hljómar þetta tæki
í eldhúsinu mínu en rispan sést ekki.
Nei það er sko engum gagn gert með
því að lofa stöðugt það sem fyrir
augu og eyru ber á markaðinum.
Vörur hér einkum þó tískuvörur eru
óheyrilega dýrar í sumum búðum og
hvemig væri að fjölmiðlamenn upp-
lýstu almenning um gæði vörunnar?
Undirritaður er einlægur stuðnings-
maður hins fijálsa hagkerfís en þar
verður að ríkja raunveruleg sam-
keppni en ekki samtiygging verslun-
arstéttarinnar og fjölmiðlafólks.
Gegn slíku valdi stendur neytandinn
berskjaldaður. Ólafur M.
Jóhannesson
RÚV Sjónvarp:
Ileitað
Regnboganum
■■■■ Ný bresk heim-
OOOO ildamynd um
" “ “ bandarísku
blökkukonuna Josefínu
Baker verður sýnd í ríkis-
sjónvarpinu kl. 22.00 í
kvöld. Mynd þessi hlaut
Emmyverðlaun í ár.
Jósefína vakti heimsat-
hygli fyrir djarflegar
danssýningar á skemmti-
sögðum Parísarborgar á
Saga Jósefínu Baker
árunum 1925 til 1939. Á
stríðsámnum starfaði hún
fyrir andspymuhreyfingu
Frakka og síðan gaf hún
sig æ meir að baráttu fyrir
friði, jafnrétti og bræðra-
lagi allra kynþátta. Hún
sýndi viljann í verki með
því að taka að sér böm af
ólíkum kynþáttum og ala
upp saman.
I myndinni er rakin saga
Jósefínu Baker og ein-
göngu notað myndefni frá
æviskeiði hennar, 1906 til
1975.
Rás 2:
Listapopp
■■■ Listapopp verð-
1 Qoo ur á dagskrá
AO Rásar tvö í dag
klukkan eitt og er undir
stjóm Gunnars Salvarsson-
ar. í þættinum verða ekki
eingöngu leikin vinsælustu
lögin hveiju sinni, heldur
er einnig litast um öxl og
leikin vinsæl lög frá fyrri
ámm.
Oft setja gömul lög í
nýjum útsetningum svip á
vinsældalistana og er tæki-
færið þá notað og uppruna-
legu útgáfumar kynntar.
Þá er stiklað á stóm í
tónlistarferli söngvara og
Gunnar Salvarsson.
hljómsveita og fyrri afrek
þeirra við vinsældalistaspr-
ang reifuð.
UTVARP
LAUGARDAGUR
13. desember
6.45 Veöurfregnir. Bæn.
7.00 Fréttir.
7.03 „Góðan dag, góðir
hlustendur." Pétur Péturs-
son sér um þáttinn.
Fréttir eru sagðar kl. 8.00,
þá lesin dagskrá.og veður-
fregnir sagðar kl. 8.15. Að
þeim loknum er lesið úr for-
ustugreinum dagblaðanna.
9.00 Fréttir. Tilkynningar.
Tónleikar.
10.00 Fréttir.
10.10 Veðurfregnir
10.25 Morguntónleikar
Arthur Rubinstein leikur lög
eftir Frédéric Chopin á
píanó.
11.00 Vísindaþátturinn.
Umsjón: Stefán Jökulsson.
11.40 Næst á dagskrá
Stiklaö á stóru í dagskrá
útvarps og sjónvarps um
helgina og næstu viku.
Umsjón: Trausti Þór Sverris-
son.
12.00 Flér og nú
Fréttir og fréttaþáttur í viku-
lokin í umsjá fréttamanna
útvarps.
12.45 Veðurfregnir.
12.48 Hér og nú, framhald.
13.00 Tilkynningar. Dagskrá.
Tónleikar.
14.00 Sinna
Þáttur um listir og menning-
armál. Umsjón: Þorgeir
Ólafsson.
15.00 Tónspegill
Þáttur um tónlist og tón-
menntir á líðandi stund.
Umríón: Magnús Einarsson
og Ólafur Þórðarson.
16.00 Fréttir. Dagskrá.
16.15 Veðurfregnir.
SJÓNVARP
16.20 Barnaleikrit: „Júlíus
sterki'' eftir Stefán Jónsson.
Ellefti þáttur: Skólafélagið
Geisli. Leikstjóri: Klemenz
Jónsson. Leikendur: Borgar
Garðarsson, Jón Júliusson,
Sigurður Skúlason, Herdís
Þorvaldsdóttir, Róbert Arn-
finnsson, Þorsteinn Ö.
Stephensen, Jón Gunnars-
son og Anna Kristín Arn-
grímsdóttir. Sögumaður:
Gisli Halldórsson.
(Áður útvarpað 1968.)
17.00 Að hlusta á tónlist.
Ellefti þáttur: Hvað er
rondó? Umsjón: Atli Heimir
Sveinsson.
18.00 íslenskt mál
Gunnlaugur Ingólfsson flyt-
ur þáttin.
18.15 Tónleikar. Tilkynningar.
18.45 Veðurfregnir. Dagskrá
kvöldsins.
kv
jO.
TT
LAUGARDAGUR
13. desember
14.55 Enska knattspyrnan
Bein útsending.
Norwich — Arsenal.
16.45 Hildur
Lokaþáttur.
17.10 (þróttir
Umsjónarmaður Bjarni Fel-
ixson.
18.30 Ævintýri frá ýmsum
löndum
Þýðandi Jóhanna Jóhanns-
dóttir. Sögumaður Helga
Jónsdóttir.
18.65 Auglýsingarogdagskrá
19.00 Smellir
The Smiths.
19.25 Fréttaágrip á táknmáli
19.30 Gamla skranbúðin
(The Old Curiosity Shop).
2. þáttur.
Breskur framhaldsmynda-
flokkur í tíu þáttum, gerðum
eftir samnefndri sögu Charl-
es Dickens. Þýðandi Krist-
mann Eiðsson.
20.00 Fréttir og veður
20.45 Bubbi
Bubbi Morthens flytur lög
af nýrri hljómplötu ásamt
hljómsveitinni MX 21.
21.15 Klerkur í klipu
Lokaþáttur. Þýðandi Stefán
Jökutsson.
21.45 (lert að regnboganum
Saga Jósefínu Baker.
Ný bre$k heimildamynd
(Emmyverðlaun 1986).
Bandaríska blökkukonan
Josephine Baker vakti
heimsathygli fyrir djarfar
danssýningar á skemmti-
stöðum Parisarborgar á
árunum 1925 til 1939. Á
stríðsárunum starfaöi hún
fyrir andspyrnuhreyfingu
Frakka og siöan gaf hún sig
æ meir að baráttu fyrir friði,
jafnrétti og bræðralagi allra
kynþátta, Hún sýndi viljann
í verki með því að taka að
sér börn af ólíkum kynþátt-
um og ala upp saman. í
myndinni er rakin saga Jose-
phine Baker og eingöngu
notað myndefni frá ævi-
skeiði hennar, 1906 til
1975. Þýðandi Ólöf Péturs-
dóttir.
23.05 Flugvöllurinn
(Airport).
Bandarísk bíómynd frá
1969 gerð eftir samnefndri
skáldsögu eftir metsöluhöf-
undinn Arthur Hailey.
Leikstjóri George Seaton.
Aðalhlutverk: Burt Lancast-
er, Dean Martin, Jean
Seberg, Helen Hayes, Van
Heflin, Jacqueline Bisset og
George Kennedy.
Á millilandaflugvelli einum
er neyðarástand vegna veð-
urs og í flugvél, sem er á
leið þaðan til Rómar, er
geðveill farþegi með
sprengju i farangrinum. Við
þetta eiga flugvallarstarfs-
menn og áhöfn þotunnar
að glíma, auk þess sem
persónuleg vandamál koma
við sögu. Þýðandi Bogi Arn-
ar Finnbogason.
01.25 Dagskrárlok
STÖD7VÖ
16.00 Hitchcock. Bandarískur
sakamálaþáttur.
16.45 Matreiðslumeistarinn.
Meistarakokkurinn Ari Garð-
ar Georgsson kennir þjóð-
inni matreiöslu.
17.10 Allt er þegar þrennt er
(Tree’s Company). Banda-
rískur gamanþáttur.
17.35 Undrabörnin (Whiz
Kids). Bandarískur unglinga-
þáttur.
18.30 Allt i grænum sjó (Love
Boat). Bandarískur
skemmtiþáttur um líf og fjör
um borð i skemmtiferða-
skipi.
19.30 Fréttir.
19.55 Undirheimar Miami
(Miami Vice). Crockett og
Tubbs hefja rannsókn á
smámáli, að því er virðist,
sem reynist síðar vera mjög
stór smyglhringur á eiturlyfj-
um sem veltir milljónum
dollara.
20.40 Don Johnson.
Bandarískur viðtalsþáttur
við bandariska leikarann
Don Johnson, en hann er
annar aöalleikara Miami
Vice.
21.10 Útgáfa Nellies (Nellies
Version). Bresk sjónvarps-
kvikmynd með Eileen Atk-
ins, Anthony Bate, Nicholas
Ball og Brian Deacon í aðal-
hlutverkum. Stúlka nokkur
man ekkert fyrr en hún
stendur í móttöku á hóteli
og nafnið sem kemur upp í
huga hennar er Nelly Dean.
Inni í herbergi sinu opnar
hún ferðatösku sem reynist
vera full af peningum. Þetta
er aðeins upphafið að sál-
fræðilegri spennumynd.
22.45 Spéspegill (Spitting
Image). Breskur gamanþátt-
ur.
23.10 Fyrsti mánudagurinn í
október (First Monday in
October). Bandarísk kvik-
mynd frá 1981 með Walter
Matthau, Jill Clayburgh,
Bernard Huges, Jan Sterling
o_.fl. í aöalhlutverkum. Ruth
Loomis er fyrsta konan sem
valin er hæstaréttardómari
í Bandarikjunum, þrátt fyrir
töluverða gagnrýni frá Matt-
hau sem var ekki samþykk-
ur kjöri hennar.
00.46 Flækingurinn frá há-
sléttunum (High Plains
Drifter). Bandarísk kvikmynd
frá 1973 með Clint East-
wood og Verna Bloom í
aðalhlutverkum. Ókunnur
og undarlegur maður (Clint
Eastwood) kemur ríðandi á
hesti sínum inn í litinn bæ
og með komu sinni skelfir
hann íbúana. Á ýmsu geng-
ur þegar hópur útlaga herjar
á bæinn.
2.30 Myndrokk.
5.00 Dagskrárlok.
19.00 Fréttir
19.30 Tilkynningar
19.36 „Hundamúllinn", gam-
ansaga eftir Heinrich Spoerl
Guðmundur Ólafsson les
þýðingu Ingibjargar Berg-
þórsdóttur. (12).
20.00 Harmoníkuþáttur
Umsjón: Bjarni Marteins-
son.
20.30 „Bókaþing. Gunnar
Stefánsson stjórnar kynn-
ingarþætti um nýjar bækur.
21.00 íslensk einsöngslög
Margrét Eggertsdóttir syng-
ur lög eftir Sigfús Einarsson.
Guðrún Kristinsdóttir leikur
með á píanó.
21.20 Um náttúru Islands
Ari Trausti Guðmundsson ræð-
ir við Hákon Bjarnason,
fyrrverandi skógræktar-
stjóra.
22.00 Fréttir. Dagskrá morg-
undagsins. Orð kvöldsins.
22.15 Veðurfregnir
22.20 Mannamót
Leikið á grammófón og litiö
inn á samkomur. Kynnir:
Leifur Hauksson.
24.00 Fréttir
00.05 Miönæturtónleikar
Umsjón: Jón Örn Marinós-
son.
1.00 Dagskrárlok.
Næturútvarp á rás 2 til kl.
3.00.
LAUGARDAGUR
13. desember
9.00 Óskalög sjúklinga.
Helga Þ. Stephensen kynn-
ir.
10.00 Morgunþáttur í umsjá
Ástu R. Jóhannesdóttur.
12.00 Fréttir
12.03 Hádegisútvarp með
léttri tónlist í umsjá Margrét-
ar Blöndal.
13.00 Listapopp I umsjá
Gunnars Salvarssonar.
15.00 Við rásmarkið. Þáttur
um tónlist, íþróttir og sitt-
hvað fleira. Umsjón: Sigurð-
ur Sverrisson ásamt
íþróttafréttamönnunum Ing-
ólfi Hannessyni og Samúel
Erni Erlingssyni.
17.00 Tveir gítarar, bassi og
tromma. Svavar Gests rekur
sögu íslenskra popphljóm-
sveita í tali og tónum.
18.00 Fréttir á ensku.
18.10 Hlé.
20.00 Kvöldvaktin. Gunnlaug-
ur Sigfússon.
23.00 Á næturvakt með Ás-
geiri Tómassyni.
3.00 Dagskrárlok
SVÆÐISUTVARP
AKUREYRI
SVÆÐISÚTVARP VIRKA
DAGA VIKUNNAR
18.00—19.00 Svæðisútvarp
fyrir Akureyri og nágrenni —
FM 96,5.
Um að gera
Þáttur fyrir unglinga og
skólafólk um hvaöeina sem
ungt fólk hefur gaman af.
Umsjón: Finnur Magnús
Gunnlaugsson.
989
LAUGARDAGUR
13. desember
08.00—12.00 Valdís Gunnars-
dóttir. Valdís leikur tónlist
úr ýmsum áttum, lítur á það
sem framundan er hér og
þar um helgina og tekur á
móti gestum.
Fréttir kl. 08.00, 09.00 og
10.00.
12.00-15.00 Jón Axel á Ijúf-
um laugardegi. Jón Axel i
góðu stuði, enda með öll
uppáhaldslögin ykkar. Aldr-
ei dauður punktur.
Fréttir kl. 14.00.
15.00—17.00 Vinsældalisti
Bylgjunnar. Þorsteinn J. Vil-
hjálmsson kynnir 40 vinsæl-
ustu lög vikunnar.
Fréttir kl. 16.00.
17.00-18.30 Vilborg Hall-
dórsdóttir á laugardegi
Vilborg leikur notalega helg
artónlist og les kveðjur frá
hlustendum. Síminn hjá Vil
borgu er 611111.
Fréttir kl. 18.00.
18.30—19.00 I fréttum var
þetta ekki helst. Edda Björg
vinsdóttir og Randver
Þorláksson bregöa á leik
(Þessi dagskrá er endurtek-
in á sunnudegi.)
19.00-21.00 Rósa Guð
bjartsdóttir lítur á atburði
síðustu daga, leikur tónlist
og spjallar.við gesti.
21.00—23.00 Anna Þorláks
dóttir í laugardagsskapi
Anna trekkir upp fyrir kvöld-
ið með tónlist sem engan
ætti að svikja.
23.00—04.00 Þorsteinn Ás-
geirsson og Gunnar
Gunnarsson. Nátthrafnar
Bylgjunnar halda uppi
stanslausu fjöri.
04.00—08.00 Næturdagskrá
Bylgjunnar. Haraldur Gísla-
son leikur tónlist fyrir þá
sem fara seint i háttinn og
hina sem fara snemma á
fætur.