Morgunblaðið - 13.12.1986, Page 20
20
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 13. DESEMBER 1986
Rafmagnsveita Reykjavíkur:
Gj aldskr árbr eytinga að vænta
til góða fyrir stærri notendur
- segir Aðalsteinn Guðjohnsen, rafmagnsstjóri
„VIÐ höfum verið að vinna að
breytingum á gjaldskránni okkar
til þess meðal annars að koma
til móts við hótel og stærri not-
endur,“ sagði Aðalsteinn Guð-
johnsen, rafmagnsstjóri
Reykjavíkur, í samtali við Morg-
unblaðið, þegar blaðamaður innti
hann eftir því hvort í bígerð
væri að setja á stofn sérstaka
gasdeild á vegum veitunnar, en
í Morgunblaðinu sl. sunnudag var
frá því greint að gasið sparaði
veitingahúsum hundruðir þús-
unda króna.
„Það eru tiltölulega fáir sem
myndu nota gasið ef það væri til
staðar, en við viljum hleypa þessum
aðilurn inn á svonefndan afltaxta,
sem fram að þessu hefur verið
bundinn við vélanotkun eingöngu.
Að minnsta kosti hótelin, sjúkra-
húsin, skólar og aðrir stórir aðilar,
sem nota mikla raforku og hafa
góðan nýtingartíma hafa mikinn
hag af því að flytja sig yfir afltax-
tann. Ég hef hinsvegar ekki trú á
að afltaxtinn myndi nýtast meðal-
stórum og minni veitingahúsum því
þau myndu ekki hafa hag af að
kaupa 100 kW afltopp á ári,“ sagði
Aðalsteinn.
Útsölustaðir Holland Electro. 3
Reykjavík: Domus, Laugavegi 91. Jón Loftsson hf., Hringbraut 121. Rafha hf., Háaleitisbraut 68. Rafbraut sf., Suöuriandsbraut 6. BV-búsáhöld, Lóuhólum 2-6. Gos hf., Nethyl 3. |
Kf. Borgfiröinga, Borgarnesi. Trésm. Akur, Akranesi. Verzl. Vík, Ólafsvík. Verzl. HúsiÖ, Stykkishólmi. Kf. Hvammsfjarðar, Buöardal. Kf. V-Barðstrendinga, Patreksflrði. Kf. Dýrfiröinga, Þingeyri. Einar Guðfinnsson hf., §
Bolungarvík. Verzl. Vinnuver, ísafirðl. Kf. Steingrímsfjaröar, Hólmavík. Kf. V-Húnvetninga, Hvammstanga. Kf. Húnvetninga, Blönduósi. Kf. Skagfiröinga, Sauðárkróki. Kf. Eyfirðinga, Akureyri. Verzl. Valberg, |
Ólafsflrði. Raftækni, Akureyri. Kf. Þingeyinga, Húsavík. Kf. N-Þingeyinga, Kópaskeri. Kf. N-Þingeyinga, Raufarhöfn. Kf. Langnesinga, Þórshöfn. Kf. VopnfirÖinga, Vopnafirðl. Kf. HóraÖsbúa, Egilsstöðum. Kf. |
HéraÖsbúa, Seyðisfirði. Kf. Héraösbúa, Reyðarfirði. Kf. Fram, Neskaupsstað. Pöntunarfólag EskfirÖinga, Eskifirði. Kf. Fáskrúösf., Fáskrúðsfirði. Kf. Skaftfellinga, Höfn, Hornafirðl. Kf. V-Skaftfellinga, Vík, Mýrdal. Kf. |
Rangæinga, Hvolsvelli. Kf. Rangæinga, Rauðalæk. Kf. Þór, Hellu. Verzl.Grund, Flúðum, Hmnam.hr. Kf. Ámesinga, Selfossl. Byggingav.verzl HveragerÖis, Hveragerði. Raft.verzl. Kjami sf., Vestmannaeyjum. Kf. |
Suðumesja, Keflavík. Verzl. Stapafell hf., Kef lavík. Kf. Hafnfiröinga Hafnarfirði. g
----------------------------------------------------------------------------------------------------------------------------------------------------------------------------------------------------------------------------
í fyrsta sæti vinsældalistans:
Holland Electro er í efsta sæti íslenska ryksuguvinsældalistans - og hún hefur
verið þar í meira en áratug.
Það ætti ekki að koma neinum á óvart því Holland Electro er engin venjuleg
ryksuga.
• Kraftmeiri gerast ryksugur ekki.
Holland Electro hefur allt aö 1200 watta mótor sem tryggir aukinn sogkraft og einstakan
' árangur.
• Breytilegur sogkraftur.
Með sjálfstýringu er sogkraftinum stjómað eftir þörfum - Þykkustu teppin sleppa ekki.
• Lág bilanatíðni.
Bilanatíðni Holland Electro er lægri en hjá öörum tegundum.
• Góðþjónusta.
Viðgeröa- og varahlutaþjónusta er eins og hún gerist best.
• Teppabankari.
Holland Electro býður sérstaka teppabankara til að friska teppin upp.
Þaö erengin tilviljun að Holland Electro hafi setið svo lengi í fyrsta sæti ryksuguvinsældalist-
ans, þetta er nefnilega engin dægursuga heldur ryksuga sem kann tökin á teppunum.
Hann sagði að tillögurnar væru
hjá borgaryfirvöldum og voru þær
ræddar í stjóm veitustofnanna og
borgarráði um helgina og taldi hann
allar líkur á að þær yrðu sam-
þykktar enda ríkti mikil óánægja
með þessa mismunun.
Aðalsteinn sagði að í deiglunni
væri einnig rýmkun á svonefndum
rofnum taxta til hitunnar, en meðal
þeirra sem hag hefðu að þessari
rýmkun má nefna bakarameistara.
„Mönnum verður gefinn kostur á
að hafa órofið rafmagnið í sex, átta
eða tíu mánuði. Auk bakara gætu
fleiri notendur, t.d. málmiðnaðar-
fyrirtæki haft hag af þessari
breytingu," sagði Aðalsteinn.
Þá er í tillögunum gert ráð fyrir
að svokallaður vinnuljósataxti
lækki. í stað þess að hann feli nú
í sér 50% álag á almennan taxta,
gerir tillögumar ráð fyrir að álagið
verði 30%.
Jólasöfnun
Hjálpræðis-
hersins hafin
ÞAÐ ER orðinn fastur siður í
jólaundirbúningi margra ís-
lendinga að láta skerf í jóla-
potta Hjálpræðishersins. Um
allan heim er Hjálpræðisherinn
með söfnun fyrir jól.
Á jólapottunum stendur „Hjálp-
ið okkur að gleðja aðra“, og hafa
þessi einkunnarorð verið undir-
staða söfnunar Hjálpræðishersins.
Vegna þess að Islendingar hafa
verið duglegir við „að láta sjóða
í pottunum“ á undanfömum árum
hafa margir einmanna og heimilis-
lausir getað notið matar og
ánægjulegra stunda í herkastal-
anum. Margir hafa einnig fengið
jólaglaðning eða föt fyrir jólin.
Einnig hafa margir leitað til
Hjálpræðishersins á öðrum tímum
ársins og hefur verið reynt af
fremsta megni að veita einhveija
aðstoð.
Hjálpræðisherinn treystir á að
íslendingar muni einnig í ár
„hjálpa til að gleðja aðra“.
Jólaheróp Hjálpræðishersins er
nú komið út og er hægt að kaupa
það hjá Jóiapottunum.
(Fréttatílkynning).
Sauðárkrókur;
Kirkjan
fær gjafir
^ Saudárkróki.
Á FYRSTA sunnudegi í aðventu
var hátíðamessa í Sauðárkróks-
kirkju. Við það tækifæri voru
kirkjunni færðar góðar gjafir.
Altarisklæði, blá að lit, gefin
af minningarsjóði um Helga
Rafn Traustason, fyrrv. kaup-
félagsstjóra og formann
sóknarnefndar á Sauðárkróki.
Altarisklæðið er unnið af Ásdísi
Jakobsdóttur. Er það samsvarandi
við messuhökul er Ottó A. Michel-
sen færði kirkjunni fyrir nokkram
árum og ofið var af Unni Ólafs-
dóttur. Hin gjöfín var einnig
minningargjöf. Færðu foreldrar
og systkini Rúnars Inga Bjöms-
sonar kirkjunni 10 kristalsstjaka
er hafðir skulu í kirkjugluggunum
við sérstök tækifæri.
Kvenfélag Sauðárkróks færði
kirkjunni, Safnaðarheimilinu,
dúka til nota við hátíðleg tæki-
færi.
KÁRI.