Morgunblaðið - 13.12.1986, Side 28
28
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 13. DESEMBER 1986
BARATTUKONAN
BJARNFRÍÐUR LEOSDÓTTIR
OG
ELÍSABET ÞORGEIRSDÓTTIR
árita bók sína
í SANNLEIKA SAGT
í bókabúðinni í dag milli kl. 2 og 4.
Sendum áritaðar bækur
í póstkröfii
Bókabúð
MÁLS & MENNINGAR.
FLISAR
UR AUGA
BRÓÐUR MÍNS
Sigurður Helgi Guðmundsson
Og nú stígur kennimaðurinn
niður úr stólnum og sendir
frá sér smásagnasafn,
Flísar úr auga bróður míns.
í bókinni eru
11 smásögur og þættir.
RAUDSKINNA
Jólaundirbúningurinn
Heimilishorn
Bergljót Ingólfsdóttir
Hvemig færum við að í svartasta
skammdeginu ef ekki væri verið að
undirbúa jólahátíðina? Það er ekki
nokkur vafí á því, að menn fyndu
meira fyrir myrkrinu ef hugurinn
væri ekki bundinn við jólaundirbún-
ing og tilhlökkun nkti ekki vegna
hátíðarinnar framundan. Þá sögu
hafa margir að segja, að minnsta
kosti þeir sem komnir eru til vits
og ára. Öll ljósin sem bætast við í
jólamánuðinum, ekki síst þau sem
prýða orðið glugga í nær hveiju
húsi, gera sannarlega sitt til að
bjartara er í kringum okkur.
Aðventan eða jólafastan er mik-
ill annatími, það er svo ótalmargt
sem ljúka þarf áður en jólahátíðin
gegnur í garð. Allt þarf að vera
hreint og fágað, hvergi má sjást
blettur né hrukka. En hreingeming-
amar og tilstand fyrir jól eru ekki
aðeins bundnar við okkur nútíma-
menn, slíkt hefur tíðkast um aldir
hérlendis sem annars staðar.
í bókinni í jólaskapi eftir þá Áma
Bjömsson og Hring Jóhannesson,
sem kom út hjá útgáfufélaginu
Bjallan árið 1983, segir svo: „Jólin
hafa auk alls annars verið mikil
hreinlætishátið hjá íslendingum.
Hreinlætisaðstaða var víða harla
bágborin og þrifnaði því mjög
ábótavant, einkum á 17., 18. og
19. öld þegar þjóðin þjakaðist mest.
Hvergi mun þó sóðaskapur hafa
verið svo mikill, að ekki væri reynt
að gera allt hreint fyrir jólin og
ljúka þvi á aðfangadagskvöld."
í bókinni segir ennfremur: „Byij-
að var á því að þvo klæði, nærföt
og rúmföt nokkrum dögum fyrir
jól. En sumir fátæklingar áttu ekki
rúmföt til skiptanna og stundum
ekki einu sinni nærföt heldur. Þá
varð að vera hægt að þvo þau og
þurrka samdægurs, svo að fólk
þyrfti ekki að liggja lengi klæðlaust
í fletinu. Það var mjög útbreidd trú
og vissa að einhvem síðustu dagana
fyrir jól, helst á Þorláksmessu eða
aðfangadag, kæmi þurrkur til að
hægt væri að þvo og þurrka föt
þeirra, sem ekki áttu til skiptanna.
Þetta var kallað fátækraþerrir."
Um hreingemingar
í fyrmefndri bók segir svo: „Á
aðfangadag var farið eldsnemma á
fætur, öll matarílát þvegin, askar,
diskar, trog, skjólur og byttur og
loks rúmstokkamir, hillur og stoðir
í baðstofunni og fjalagólfín þar sem
þau vora. Til era dæmi þess, að
hlutir úr tré hafí verið þvegnir upp
úr hangikjötssoði vegna skorts á
þvottaefni. Fitan kann reyndar að
hafa leyst upp einhver óhreinindi
en varla hefur verið auðvelt að ná
henni aftur af. Hins vegar hefur
hún getað mjmdað vissan gljáa um
stundarsakir."
Já, ólíkt höfumst við að, nútíma
allsnægtabömin og forverar okkar
í þessu landi. Aðferðimar við jóla-
undirbúning vora fyrram með öðra
sniði en nú er, en'tilgangurinn sá
sami, að prýða og fegra heimilin
fyrir jólahátíðina. Það er hollt stöku
sinnum að huga að fyrri tíð, að-
búnaði og erfíði genginna kynslóða,
halda þræðinum ef svo má að orði
komast. Jólafastan er góður tími
til þess ama.
Uppskriftir frá Mj ólkursamsíjlunni
Eftirfarandi uppskriftir era nýjar
og leggur Mjólkursamsalan þær
fram til að auðvelda mönnum mat-
artilbúning jrfír hátíðina.
Rækjur og egg í
karrírjóma
(fyrir 4)
2 egg
250 g rækjur
1 dós sýrður ijómi
1 tsk. karrí (milt)
2 msk. tómatsósa
V« tsk. salt
1 salathöfuð
Harðsjóðið eggin. Búið til sósu
úr sýrðum ijóma, karríi, tómatsósu
og salati. Þvoið salatblöðin og rífíð
þau niður í skálar (1 fyrir hvem
mann). Setjið rækjur og eggjabáta
ofan á salatið. Hellið sósunni yfír
og skrejrtið með dillkvistum. Berið
fram kalt með volgu brauði.
Svinakjöt m/sósu
úr sýrðum rjóma
4-6 kótilettur, stórar
ATHYGLISVERÐ BÓK
UM DULRÆN MÁLEFNI
Eina bókin um dulrœn efni
nú fyrir jól.
DRAUMAR
OG ÆÐRI
HANDLEIÐSLA
Ingvar Agnarsson skráir í þessa bók af hógvœrð t
og vandvirkni frásagnir Aðalheiðar Tómasdóttur,
eiginkonu sinnar.
Helgi Vigfússon skrifar formála.
Aðaiheíöur Tómasdóliir
UPPLAG A ÞROTUM
DRACIMAR
OG ÆÐRI HANDLEIÐSLA
SkrásoH a! Ingvan Agnarssyni
Dyngja bókaútgáfa, Borgartúni 23 105 Reykjavík, S 91-36638, 91-28177 og 91-30913.
2 msk. smjör
1 tsk. salt
*/s pipar
Sósa:
2 msk. smjör
1 dós sveppir (400 g)
1 tsk. salt
V< tsk. pipar
1 dós sýrður ijómi
1 msk. söxuð steinselja (má sleppa)
Þerrið kótilettumar og brúnið á
báðum hliðum í smjöri. Kryddið
með salti og pipar. Látið kótilett-
umar krauma í ofni eða á pönnu,
þar til þær era meyrar. Sveppimir
era brúnaðir í smjöri og 2 msk. af
hveiti stráð jrfír og jafnað með
sveppasoðinu. Bætið kiyddi og
sýrðum ijóma út í og látið sjóða í
5 mín. við vægan hita. Steinseljan
er sett út í að síðustu. Hellið jafn-
ingnum yfír kótelettumar og berið
fram með soðnum kartöflum og
grænmetissalati.
Jólabúðingur
6 bl. matarlím
4 dl ijómi
2 egg
1 dl sykur
IV* dl sherrý
3 msk. saxaðar möndlur
3 msk. söxuð coctailber
3 msk. saxað súkkulaði
Leggið matarlímið í bleyti í kalt
vatn. Þeytið ijómann. Þeytið egg
og sykur og blandið möndlunum,
coctailbeijunum, súkkulaðinu og
sherrýinu út í, gejrmið svolítið til
skreytingar. Hellið vatninu af mat-
arlfminu og bræðið það í vatnsbaði.
Hrærið matarlími saman við
eggjablönduna og að síðustu þejrtt-
um ijómanum. Skrejdt með þejdt-
um ijóma og söxuðum möndlum,
cocktailbeijum og súkkulaði.
Jólabrauð
10 g brætt smjör eða smjörlíki
1 dl velgd mjólk
15 g pressuger eða IV2 tsk. þurrger
V2 tsk. sykur
V2 tsk. salt
200-250 g hveiti
1 tsk. vanillusykur
50 g hakkaðar hnetur
150 g sultaðir ávextir
1 dl skjir
1 egg
V2 sítróna eða appelsína rifíð hýði
1 msk. koníak (má sleppa)
25 g lint smjör
4 msk. púðursykur
1. Seijið mjólkina og brædda
smjörlíkið í skál og blandið gerinu
vel saman við.
2. Hrærið skyri, salti og V« af hveit-
inu saman við mjólkurblönduna
ásamt skyrinu, egginu og sítrónu-
hýðinu.
3. Bætið síðan því sem eftir er af
hveitinu með vaniilusykri, hnetum
og sultuðum ávöxtum út í.
4. Gætið þess að deigið verði ekki
of stíft.
5. Hnoðið deigið og látið það hef-
ast í 25 mín.
6. Mótið brauð, setjið það á bökun-
arplötu og látið það hefast í 15 mín.
7. Bakið brauðið við 200° C í 35
mín.
8. Penslið brauðið með smjör- og
púðursykursblöndu og bakið brauð-
ið áfram í 5-10 mín.
Þú svalar lestrarþörf dagsins
á^um Moggans!