Morgunblaðið - 13.12.1986, Qupperneq 40
40
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 13. DESEMBER 1986
• Bindi yŒÆ • Snyrtivörur
• Sokkar • Inniskór
• Hanzkar • Föt
• Peysur • Frakkar
• Náttföt • Hattar
• Sloppar • Húfur
• Skór • Treflar
Vandaðar og góðar
jólagjafir frá:
hcCttimÚAJcó
HERRADEILD
Vantar þig veislusal
fyrir árshátíðina, cocteilboðið, þorrablótið,
fundina og/eða afmælið.
Höfum til leigu einn best búna sal landsins.
H0LUW00D
AF ERLENDUM VETTVANGI
eftir MICHAEL NOVAK
Af mannréttindum:
Ný vinnubrögð Sovétmanna
einnkennast af ófyrirleitni
Vín, þessi yndislega borg, sem alið hefur Sigmund Freud,
málarana Oscar Kokoschka og Gustav Klimt, hagfræðinginn
Friedrich von Hayek og fleiri, var í deiglunni í upphafi tuttug-
ustu aldar. Undanfarið hafa aftur á móti vafasöm viðskipti átt
sér stað í borginni. John Walker afhenti hér útsendurum sovésku
leyniþjónustunnar KGB mikilvæg leyniskjöl bandaríska sjóhersins
um fælingarmátt kjarnorkuvopna. Fyrir nokkru hófst í Vín ráð-
stefna 35 Evrópuþjóða um Helsinki-sáttmálann.
Fjölmennt KGB-lið í Vín
IVín hefur KGB stóra bækistöð.
Um 900 menn vinna í sovéska
sendiráðinu (samanborið við um
30 í bandaríska sendiráðinu). Þeir
bíða þess að lokið verði við að
reisa rammgert hús fyrir þá.
Jámtjaldið er í aðeins 48 km fjar-
lægð. Sovéska starfsliðið í Vín er
fullt sjálfstrausts svo skammt frá
heimahögunum. Útsendaramir
eru þangað komnir með nýjar
áætianir og herbrögð í pússi
sínum og mega vestræn ríki vara
sig.
Fyrir ellefu ámm var undirrit-
aður í Helsinki sáttmáli í þremur
liðum. Hann fjallar um vopn,
milliríkjaviðskipti og mannréttindi
og mannúðarmál. I kjölfar sátt-
málans sigldu ráðstefnur, sem um
margt em einstakar. Þær sitja
samningamenn, sem hafa ekki
sérstakt hús til umráða undir
starfsemi sína og ráða hvorki yfir
fjármagni, né starfsliði. Næstum
árlega em einhvers staðar haldnir
fundir sérfræðinga og á fimm ára
fresti er haldin ráðstefna um alla
þrjá þætti Helsinki-sáttmálans.
Fyrsta ráðstefnan af þessu tagi
var haldin í Madrid. Sú ráðstefna
fór næstum út um þúfur vegna
innrásar Sovétmanna í Afganist-
an og stóð yfir í tæp þijú ár.
Ráðstefnan, sem var að heíjast í
Vín er af sama toga.
Augljóst er að Sovétmenn und-
irrituðu Helsinki-sáttmálann án
þess að hafa nokkm sinni í hyggju
að framfylgja ákvæðum í honum
um mannréttindi. Þeir hafa hand-
tekið, pyntað, dæmt í útlegð og
gengið svo langt að myrða félaga
mannréttindahópa, sem tóku
ákvæði Helsinki-sáttmálans al-
varlega og ætluðu að fylgjast með
því að farið yrði eftir þeim. Það
er fyrst og fremst þrautseigju
Max Kampelman, sendiherra og
samningamanns Bandaríkjanna, í
Madrid að þakka að Sovétmenn
hafa neyðst til að fjalla um mann-
réttindamál.
Sovétmenn kúvenda
En frá og með fundinum um
Helsinki-sáttmálann í Bem í vor
hafa Sovétmenn gert fjórar veiga-
miklar breytingar á stefnu sinni
undir forystu Mikhails Gorbac-
hevs og skipta þær sköpum í
starfsaðferðum þeirra í Vín.
1. Sovétmenn höfðu haldið
fram að umfjöllun um mannrétt-
indamál í Sovétríkjunum á al-
þjóðlegum vettvangi séu „afskipti
af innanríkismálum“. í Bem varð
stefnubreyting og Sovétmenn réð-
ust til gagnárásar. Ef þeir vom
sakaðir um brot á sáttmálanum,
svöruðu þeir með ásökunum, yfir-
leitt með því að vísa til atvinnu-
leysis, húsnæðisleysis eða þess að
réttur hafi verið brotinn á minni-
hlutahópum í landi þeirra sem
báru fram ásakanir í upphafi.
Hin nýju rök Sovétmanna em
allajafna bamaleg og einkennast
af tilraunum til að afvegaleiða
menn með hártogunum. Sovét-
menn hafa nú látið ásakanir um
„afskipti" niður falla og þess í
stað komið því til leiðar að gagn-
kvæmar ásakanir em orðnar
viðteknar.
2. I Bem tók sendinefnd
Bandaríkjamanna þráfaldlega eft-
ir því að Gorbaehev fór fram á
hreinskilni og breytta afstöðu til
mannréttindamála. Með því að
hamra á þessum orðum í svömm
sínum tókst sovésku sendinefdinni
að festa þau í sessi.
Evrópskt gildismat
3, Bandaríska sendinefndin í
Bem krafðist þess að evrópskar
hugmjmdir og gildi væm í heiðri
höfð hvað varðar persónufrelsi,
félagafrelsi hvort sem um væri
að ræða samtök ríkis eða ekki,
raunvemlega óháð stéttarfélög og
þvíumlíkt. Sovéska sendinefndin
svaraði með því að reyna að tala
einnig máli „Evrópu". í Vín hafa
Sovétmenn ítrekað haldið því á
lofti að bæði Bandaríkin og
Kanada séu „víðs fjarri“ Evrópu.
Hinn óbugandi sendiherra
Kanada, William Bauer, svaraði
því til að fjöldi Kanadamanna,
sem látið hefðu lífið fyi-ir Evrópu,
lægju þar grafnir. Aukinheldur
væri hlutfall Evrópumanna af
kanadísku þjóðinni sýnu hærra
en af íbúum Sovétríkjanna.
„Evrópa" er tákn fyrir gildis-
mat, ekki landafræði. Staðreyndin
er sú að evrópskt gildismat höfðar
til flestra aðildarríkja Varsjár-
bandalagsins, en ekki til Sovét-
manna. Fyrst þeir reyna að
tileinka sér þetta evrópska gildis-
mat neyðast þeir smátt og smátt
til að breyta hugarfari sínu.
4. Jafnt í Vín sem í Bem hafa
Sovétmenn ákveðið að hlejrpa
nokkmm mönnum og konum, sem
hafa búið við aðskilnað frá mökum
sínum, og borgumm, sem vilja
flytjast brott, úr landi.
Ríkisstjómir víða um heim hafa
lagt fram lista með nöfnum
manna, sem leitað hafa ásjár
þeirra, og farið fram á að þetta
fólk fái notið réttar síns. 270 millj-
ón manna þjóð hlýtur að vera
þess umkomin að tryggja að slíka
lista þurfi ekki að setja saman.
Og hvaða máli skiptir, þótt 400
þúsund manns eða ein milljón
manna vilji flytja úr landi? Það
er ekki nema lítið brot af þjóðinni
ailri. Ef íbúar Sovétríkjanna nytu
sömu réttinda og borgarar ann-
arra ríkja, sem ekki er stjómað í
nafni kommúnisma, þá mjmdi
íbúafjöldi án nokkurs vafa haldast
stöðugur.
Fyrir tveimur vikum greindi
sovéska sendinefndin í Vín frá því
að fulltrúar æðsta ráðsins ætluðu
bráðlega að fara til Banda-
ríkjanna til að mótmæla lífsskil-
yrðum heimilislausra, snauðra og
atvinnulausra. Forystumaður sov-
ésku sendinefndarinnar sagði að
héðan í frá yrði barátta fyrir
mannréttindum ekki háð af öðrum
tveggja.
Reynslan hefur sýnt að Sovét-
menn safna úrklippum úr blöðum
um ásakanir Bandaríkjamanna
um brot í Bandaríkjunum. Þegar
krafist er réttlætis fyrir hönd
Andreis Sakharov, þá félaga Hels-
inki-hópsins, sem eftir eru, og
þeirra milljóna kristinna manna,
gyðinga og múhameðstrúar-
manna, sem þyrstir í frelsi, nota
Sovétmenn þessi gögn sem mót-
spil og hlakkar í þeim.
Höfundur sat í sendinefnd
Bandaríkjanna í Bern og Vín
og er dálkahöfundur.