Morgunblaðið - 13.12.1986, Side 47
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 13. DESEMBER 1986
47
Margt var um manninn á Strikinu er þessi mynd var tekin fyrir
skömmu.
Danmörk:
Kaupmenn óhressir
- lítið verslað fyrir jólm
MUN MINNA hefur verið verslað fyrir jólin í Danmörku það sem af
er þessum mánuði, en undanfarin ár, að því er kaupmenn þar í landi
segja. Eru þeir að vonum óhressir þar sem október og nóvember
voru einnig lélegir mánuðir fyrir verslunina.
Mörg undanfarin ár hefur versl-
un fyrir jólin verið með afbrigðum
góð og höfðu því flestir reiknað
með að svo yrði í ár. Ýmsar sér-
og stórverslanir hafa tekið forskot
á janúarútsölumar og bjóða nú vör-
ur sínar á niðursettu verði. Michael
Gaarmann, hjá dönsku kaupmanna-
samtökunum, segir þetta tilboðs-
verð verslananna vera til komið
vegna minni sölu undanfarið, á
þeim tíma sem venjulega er besti
sölutíminn. Einkum virðist sala á
dýrari heimilistækjum, sjónvörpum
og útvörpum hafa dregist saman
eftir, en þessi tæki seldust vel fyrstu
mánuði ársins. Vilja sumir kenna
um efnahagsaðgerðum þeim, er
stjórnvöld hafa gripið til undanfar-
ið.
Veður hefur verið milt í Dan-
mörku í vetur og skýrir það
væntanlega hve lítið hefur selst af
vetrarfatnaði og öðrum vetrarvör-
um s.s. skíðum og skautum.
Flestir kaupmenn eru sagðir vona
að kauptíð glæðist þá daga sem
eftir eru fram að jólum og Preben
Quist-Sorensen, forstjóri stórversl-
unarinnar, Daells Varehus, segir
að svo hafi verið í fýrra og hann
sé fullviss um að sagan endurtaki
sig í ár.
Suðurskautslandið:
Argentína stofn-
ar fyrsta bankann
Buenos Aires, Reuter.
ARGENTÍNUMENN hafa opn-
að banka á Suðurskautslandinu
og eru þannig fyrstir allra
þjóða í heimi til að ná þeim
áfanga. Er bankinn i Esper-
anza-herstöðinni á þeim hluta
Suðurskautslandins, sem Arg-
entínumenn hafa eignað sér.
„Opnun bankans verður til að
staðfesta réttindi okkar og gerir
það jafnframt kleift að fullnægja
þörfum argentínskra borgara á
Suðurskautslandinu,“ sagði Mario
Gimenez Leon banskastjóri við
opnunarathöfnina.
Argentínumenn gera kröfu til
stórs svæðis á Suðurskauts-
landinu og hafa þar mannaða
herstöð. í nýja bankanum verður
unnt að skipta gjaldeyri fyrir
ferðamenn, en jafnframt geta við-
skiptamenn haft þar ávísana-
reikning, sparisjóðsbækur og þar
verður krítarkortaþjónusta.
Sjónvarpsáhorf-
endurfokreiðir
New York, AP.
MIKIL spenna og margslungnar
flækjur hafa siglt í kjölfar vopna-
sölumálsins, en það jafnast þó alls
ekki á við sápuóperur, sem sýndar
eru í bandarísku sjónvarpi á hveij-
um eftirmiðdegi.
Sú er altént trú dyggra aðdáenda
framhaldsmyndaflokka, sem urðu fyr-
ir sárum vonbrigðum, þegar þeir
settust fyrir framan sjónvarpstæki sín
og komust að því að uppáhaldsþáttur-
inn þeirra hafði mátt víkja fyrir
yfirheyrslum í vopnasölumálinu.
Stmalínur sjónvarpsstöðvanna ABC
og NBC glóðu dag eftir dag og tals-
maður fréttastofu NBC sagði að ekki
hefðu færri en 1.100 manns kvartað
sáran yfir þessari „smekkleysu".
Sovétríkin:
Þrjár nýjar ratsjár
stöðvar í bygg’ingn
- brot á gildandi samningum
Washington, AP.
CASPAR WEINBERGER, varn-
armálaráðherra Bandaríkjanna,
sagði í gær að Sovétmenn hefðu
hafið byggingu þriggja ratsjár-
stöðva, sem unnt væri að nota
samhliða gagneldflaugakerfum.
Er þetta í andstöðu við samning
stórveldanna frá árinu 1972 um
bann við þess háttar vamarkerf-
um.
Háttsettur embættismaður í
vamarmálaráðuneytinu sagði að
ratsjárstöðvamar væm ætlaðar til
veija Sovétríkin fyrir árás frá Norð-
ursjó og Miðjarðarhafinu. Bygging
ratsjárstöðva á landamærum er
ekki brot á samningum en starfs-
menn vamarmálaráðuneytisins
sögðust í gær vera þess fullvissir
að þessum tilteknu stöðvum væri
ætlað að greina langdrægar kjam-
orkueldflaugar á flugi og féllu því
ekki innan ramma hefðbundinna
vamarkerfa.
Embættismennirnir fiillyrtu
einnig að Sovétstjómin hefði látið
byggja sex slíkar ratsjárstöðvar.
Bandaríkjastjóm hefur sagt að ein
þeirra nærri borginni Krasnoyarsk
sé skýlaust brot á samningnum frá
árinu 1972. Weinberger sagði í gær
að Sovétstjóminni hefði fyrir löngu
verið tjáð að brot á gildandi samn-
ingum myndi hafa alvarlegar afleið-
ingar í för með sér. Sagði
Weinberger að ákvörðun Reagans
forseta um að fara fram úr ákvæð-
um SALT II samningsins, sem
raunar var aldrei staðfestur á
Bandaríkjaþingi, væri með öllu rétt-
lætanleg. Þar með væri Sovét-
stjóminni gert ljóst að brot á
samningum yrðu ekki liðin.
„Bókaverslun Snæbjarnar í Hafnarstrætinu
Stórorð, en sönn. Við í bókaverslun Snæbjarnarerum til þjónustu reiðubúin.
Við vitum hvernig á að velja góða bók
- í næði og notalegu umhverfi - en erum ávallt nærri þegar á þarf að halda með
góðráðog upplýsingar.
Hjá okkur í Hafnarstrætinu er viðamikið úrval íslenskra bóka, auk þess sem
þær erlendu eru enn á sínum stað.
Félagsmönnum Máls og Menningar er boðinn afsláttur á félagsbókum.
Við erum þeirrar skoðunar að hlýlegt viðmót
og persónuleg þjónusta geri gæfumuninn í jólaamstrinu.
Hvað meira getur góð bókabúð boðið?
a
Bókaverslun Snæbjamar j
Hafnarstræti 4.Sími: 14281
8
sem góð bókabúð hefur:
Allar íslenskar jólabækur, notalegt umhverfi og
persónulega þjónustu."