Morgunblaðið - 13.12.1986, Blaðsíða 48
48
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 13. DESEMBER 1986
Útgefandi
Framkvæmdastjóri
Ritstjórar
Aöstoöarritstjóri
Fulltrúar ritstjóra
Fréttastjórar
Auglýsingastjóri
Árvakur, Reykjavík
Haraldur Sveinsson.
Matthías Johannessen,
Styrmir Gunnarsson.
Björn Bjarnason.
Þorbjörn Guömundsson,
Björn Jóhannsson,
Árni Jörgensen.
Freysteinn Jóhannsson,
Magnús Finnsson,
Sigtryggur Sigtryggsson,
Ágúst Ingi Jónsson.
Baldvin Jónsson.
Ritstjórn og skrifstofur: Aðalstræti 6, sími 691100. Auglýsingar:
Aöalstræti 6, sími 22480. Afgreiösla: Kringlan 1, sími 83033.
Áskriftargjald 500 kr. á mánuði innanlands. í lausasölu 50 kr. eintakiö.
Mannréttindi
forsenda friðar
Siávarútvegsí
Alþingi ályktar að fordæma
brot á mannréttinda-
ákvæðum Helsinki-sáttmálans
og felur ríkisstjóminni að vinna
að því að mannréttindamál fái
aukið vægi á framhaldsfundi
ráðsteftiu um öryggi og sam-
vinnu í Evrópu, sem nú er
haldin í Vín, enda er virðing
fyrir mannréttindum almennt
forsenda varanlegs friðar í ver-
öldinni.
Þetta eru kjamaatriði úr til-
lögu til þingsályktunar, sem
átján þingmenn úr Sjálfstæðis-
flokki hafa lagt fram í Samein-
uðu þingi. Um svipað leyti og
tillaga þessi var lögð fram á
Alþingi Islendinga fór sú frétt
um heimsbyggðina að sovézki
rithöfundurinn og andófsmað-
urinn Anatoly Marchenko væri
látinn í Chistopol-fangelsi, 48
ára að aldri.
Hann var félagi í Helsinki-
nefndinni svokölluðu, sem
reyndi að fylgjast með því
hvemig Sovétstjómin stæði við
mannréttindaákvæði Helsinki-
sáttmálans. Þeir, sem að
nefndinni stóðu, eru nú flestir
í fangabúðum í Sovétríkjunum.
Hann er höfundur bókar, sem
margir telja átakanlegustu lýs-
ingu á lífínu í sovézkum
nauðungarvinnubúðum, en
hann var í „útlegð innanlands"
eða í fangabúðum í tvo áratugi.
Annar andófsmaður, Natan
Shcharansky, sem var sam-
vizkufangi í Sovétríkjunum
1978-1986, er hann fékk að
flytjast til ísrael, segir m.a. í
grein, sem birtist upphaflega í
The Wall Street-Joumal en var
birt í Morgunblaðinu 10. des-
ember sl.:
„Til þess að ná raunveruleg-
um samningum um afvopnun-
armál er nauðsynlegt að draga
úr tortryggni milli stórveld-
anna, en vegna hennar hafa
Vesturlönd séð sig tilneydd til
að vígbúast . .
í þessari sömu grein segir og:
„Um helmingur gyðinga í
fangelsum Sovétríkjanna, þeir,
sem eru í haldi fyrir það eitt
að vera gyðingar og vilja sam-
einast fólki sínu í ísrael, var
handtekinn eða dæmdur eftir
að Gorbachev komst til valda á
síðasta ári . . . Hefur í raun
nokkuð breytzt í Sovétríkjunum
með tilkomu Gorbachevs?"
Matthías Á Mathiesen, ut-
anríkisráðherra, sagði m.a. á
Vínarráðstefnunni 6. nóvember
sl.:
„Andófsmenn þurfa að þola
harðræði í þrælkunarbúðum
eða á geðsjúkrahúsum, sem
notuð eru í þágu pólitískra
markmiða ... I augum ís-
lendinga eru þetta dæmi um
mannréttindabrot og mannrétt-
indi eiga sér engin landamæri.
Orð fá ekki brúað þetta hyl-
dýpi, þar megna verkin ein að
skapa aukið traust . . . í þess-
um efnum kristallast munurinn
á opnum samfélögum Vestur-
landa og lokuðum samfélögum
A-Evrópu.“
Fagna ber frumkvæði þeirra
þingmanna, sem leggja nú til,
að Alþingi álykti um brot á
mannréttindaákvæðum Hels-
inki-sáttmálans og árétti, að
virðing fyrir mannréttindum
almennt sé forsenda varanlegs
friðar í heiminum.
Börnin
deyja!
Hin hljóða neyð,“ sem
spannar fyrst og fremst
hungur [næringarskort] og al-
genga smitsjúkdóma, deyðir
280.000 böm í viku hverri, seg-
ir í nýrri skýrslu Bamahjálpar
Sameinuðu þjóðanna (UNIC-
EF). Skýrslan telur að íjórum
milljónum bamslífa hafí verið
bjargað síðastliðin fímm ár
„með einföldum og handhægum
aðferðum, sem nú em tiltækar
til að vemda heilbrigði bama“.
Skýrslan segir ennfremur að
unnt sé að bjarga sjö milljónum
bamslífa á ári með aðferðum,
„sem þegar era kunnar og era
í senn einfaldar og ódýrar".
Skýrslan segir ástand víða
alvarlegt í Afríku, en samt hafi
á síðastliðnum tveimur áram
fleiri böm dáið í Indlandi og
Pakistan en í öllum hinum 46
löndum Afríku til samans.
Þær himinhrópandi hörm-
ungar, sem skýrsla Bamahjálp-
arinnar sýnir okkur, vekja
spumingar: Eigum við ekki for-
sjóninni skuld að gjalda, m.a.
fyrir eigin velsæld? Munum við
nógu vel og nógu oft eftir orð-
um meistarans: Það sem þér
gjörið mínum minnsta bróður,
það gjörið þér og mér?
eftir Guðjón Ármann
Eyjólfsson
Fyrir nærri því ári síðan, í janúar
1986, komu menntamálaráðherra
og sjávarútvegsráðherra sér saman
um að skipa fjögurra manna starfs-
hóp, tvo frá hvoru ráðuneyti, til að
ræða og gera síðan tillögur um
stofnun sjávarútvegsskóla á fram-
haldsskólastigi.
Starfshópinn skipuðu: Helgi G.
Þórðarson verkfræðingur, sem var
formaður, Stefán Stefánsson full-
trúi frá menntamálaráðuneytinu,
Finnur Ingólfsson aðstoðarmaður
sjávarútvegsráðherra og Gylfí
Gautur Pétursson deildarstjóri í
sjávarútvegsráðuneytinu.
Vinnuhópurinn lagði fram
skýrslu um miðjjan október, sem
tekin var til umræðu á opnum
fundi, sem ráðherramir boðuðu til
20. október sl.
I fundarboði segir. „Markmið
fundarins er að fá fram sjónarmið
sem flestra um fræðslu í sjávarút-
vegi, skipulag hennar og markmið."
Fundur þessi var vel sóttur af
ýmsum forsvarsmönnum í sjávarút-
vegi, nokkrum alþingismönnum,
fulltrúum frá ráðuneytum, kennur-
um Stýrimannaskólans, Vélskólans
og Fiskvinnsluskólans ásamt nokkr-
um nemendum þessara skóla.
Á fundinum voru flutt stutt fram-
söguerindi um framtíð sjávarút-
vegsfræðslunnar og viðhorf til
skýrslu starfshópsins. Að þeim
loknum voru pallborðsumræður og
síðan almennar umræður.
Skoðanir um nefndarálitið voru
mjög skiptar, en í fréttum af fundin-
um sem nefndin og fundarboðendur
hljóta að bera einhveija ábyrgð á
er ekki minnst einu orði á and-
stæðar skoðanir. Ráðherramir
tveir sem boðuðu til fundarins höfðu
ekki tíma eða sáu ástæðu til að
sitja lengur undir umræðum en
fram að kaffihléi kl. 10.00, þegar
lauk framsöguerindi formanns
starfshópsins og Stefáns Ólafs
Jónssonar deildarstjóra í mennta-
málaráðuneytinu, sem flutti erindi
sem bar heitið Skólakerfíð og sjáv-
arútvegsfræðslan.
Það virðist sem sé sæta litlum
tíðindum, þó að nefnd komi fram
með tillögu um að leggja niður
grónar stofnanir sem hafa starfað
áratugum saman í þágu sjávarút-
vegsins. Elsti sjómannaskóli lands-
ins, Stýrimannaskóiinn í Reykjavík,
hefíir t.d. starfað í nærri 100 ár
eða síðan 1891, Vélskóli íslands í
yfír 70 ár, síðan 1915, og Fisk-
vinnsluskólinn var stofnaður árið
1971 og viðurkennt í ræðu og riti
a.m.k. að sá skóli eigi mikla framtíð
fyrir sér og maður skyldi ætla að
svo skyldi vera í landi sem á allt
sitt undir sjávarfangi.
Þetta fínnst mér undarlegt
fréttamat á tímum þess fjölmiðla-
æðis, sem nú gengur yfír þjóðina.
Ég efast um að sama afstaða
hefði einkennt fundarboðendur og
fíölmiðla um skoðanir fundar-
manna, ef tillaga hefði komið fram
um að leggja niður einhvem
menntaskóla landsins eða verslun-
arskóla og sameina öðrum eða þá
einhveija háskóladeildina. En í mik-
illi og háværri umræðu um eigenda-
skipti eða breytingu á rekstri
Borgarspítalans undanfama daga
þá megum við starfsmenn Sjó-
mannaskólans teljast hógværir og
lágróma, því að tillaga um svo rót-
tæka breytingu á rekstri og starfs-
sviði þessara skóla var sett fram
eftir aðeins einn fund með okkur
skójasljómm skólanna.
Á því er enginn vafí, að ábyrgð
ráðherra og ríkisstjómar, sem ætlar
sér að kollvarpa skipulagi gamal-
gróinna skóla, sem hingað til hafa
gegnt lykilhlutverki í menntun und-
irstöðuatvinnuveganna, er mikill.
Alla stöðnun ber þó að varast og
hefur síður en svo verið sá svipur
á þeim þremur menntastofnunum
sem hér um ræðir heldur verið unn-
ið að breytingum á lögum um
skipulag þeirra, til aðlögunar
breyttum tímum og aðstæðum.
Við stofnun sjávarútvegsskóla
hefði ég álitið að sígandi þróun og
aðlögun hefði verið farsælust.
Vissulega eru þó til menn í sjáv-
arútvegi, sem fínnst ekki meira til
um starf þessara þriggja skóla eða
sjálfstæði en svo, að þeir álíta stór-
snjallt að bræða þá saman, ef með
því væri unnt að nýta saman
kennslu í nokkmm undirstöðugrein-
um eins og íslensku, stærðfræði,
ensku og dönsku. Mætti þá halda
að skólamir hefðu verið þungur
baggi á ríkissjóði.
Eg fullyrði að svo hefur ekki
verið en næsta léttvægt er þá met-
ið framlag skólanna á sérsviðum
hvers skóla, þegar fyrrgreind rök
eru sett fram. Mætti þá ekki á sömu
forsendum slá saman fleiri fram-
haldsskólum?
Sérskólar
Menn verða að muna að þetta
eru sérskólar hver á sínu sviði.
Endurskoðun fræðslu í sjávarút-
vegi er þó nauðsynleg og efla ber
samvinnu milli höfuðskóla sjávarút-
vegsins, Stýrimannaskóla, Vélskóla
og Fiskvinnsluskóla, og hefur verið
unnið að því á undanfömum ámm.
Undir þessa stefnu, að endurskoða
og þróa skóla með gát, tók t.d.
mjög ákveðið fulltrúi LIÚ, Jónas
Haraldsson lögfræðingur.
Með nýrri löggjöf um bæði Fisk-
vinnsluskólann og Stýrimannaskól-
ann, sem unnið var að af fullurn
krafti þar til hugmynd um sjávarút-
vegsskóla kom fram, var ætlunin
að vinna áfram í þessum anda. Ég
tel miður, að fullbúið fmmvarp frá
hendi nefndar, sem frú Ragnhildur
Helgadóttir fyrrv. menntamálaráð-
herra skipaði í janúar 1985, hefur
nú í heilt ár, sfðan f desember 1985,
legið fullfrágengið á borði núver-
andi menntamálaráðherra. Ég leyfí
mér að vona að þessi umræða verði
til þess að ráðherrann leggi fram
þetta frumvarp á yfírstandandi
þingi, sem lið í endurskoðun fræðslu
í sjávarútvegi. Sverrir Hermanns-
son menntamálaráðherra er maður
sprottinn úr umhverfi sjávarútvegs
og sjósóknar vestur á fjörðum og
er sjálfur þátttakandi í öflugum og
farsælum útgerðarrekstri, sem á
sinni tíð var í hópi frumheija í skut-
togaraútgerð á Islandi. Hann hlýtur
því að sjá hvar skórinn kreppir.
Menntun skip-
stjórnarmanna
Við eram enn á tímamótum í
útgerð fískiskipa. Ég er sannfærður
um að í hönd fara nýir tímar í tog-
ara- og fískiskipaútgerð. Sjávarút-
veg og fiskveiðar verður að
skilgreina markvissar og á annan
hátt en gert hefur verið til þessa.
Það verður að hverfa frá veiðihug-
takinu sem æðsta boðorði og
minnast þess, að fískveiðar em
fyrsti og mikilvægasti þáttur í há-
þróaðri matvælaframleiðslu.
Menntun tii þátttöku og ábyrgðar
í þannig atvinnugrein eins og til
skipstjómar á nýtísku fiskiskipum,
þ.e. stjómar á skipi, mönnum og
öllum störfum um borð verður að
taka mið af þessari skilgreiningu
og markmiði. Drög þau að nýju
fmmvarpi um menntun skipstjóm-
armanna, sem vom fullunnin í
nóvember 1985 em í samræmi við
þessa skoðun. Ný löggjöf um skip-
stjómamámskeið yrði því mikils-
verður áfangi í bættri menntun
fískimanna og farmanna.
Sérstaklega mjmdi þetta frum-
varp hafa jákvæð áhrif á aukna
þekkingu á fískmeðferð og veiðar-
fæmm, en brýnt er að kenna
fiskimönnum meira 1|nl fiskmeð-
ferð, fiskmat, veiðarfæri, veiði-
tækni og liffræði sjávar
umhverfis landið.
Lagt er til að greina námið í
deild farmanna og fískimanna og
fá með því lengri tíma til að und-
irbúa nemendur undir sérhæfð
störf.
Með tilkomu nýrra frystitogara
og mjög sennilega í framhaldi af
þeim nýtísku verksmiðjutogumm
sem fullvinna fískúrgang og slóg
og „Surimi“-togara (þegar komnir
í Færeyjum) er slík kennsla og sér-
hæfíng nauðsynleg. Vegna aðlög-
unar að nýjum alþjóðasamþykktum
SKIPS TJORNARNAM
SKIPSTJÓRADEILD
SKIPSTJÓRI/YFIRSTÝRIMAÐUR
Varðskip, flutningaskip, farþegaskip.
ótakmorkufi stærft og farsviö.
FISKIMENN
Skipstjóri og
yfirstýrimaöur:
ótakmörkuö stærö
og farsviö.
FARMENN
Skipstjóri og
yfirptýrimaöur:
aö 1600 BRL. ótak-
markaö farsviö.
Undirstýrimaöur:
ótakmörkuö stærö
og farsviö.
/XSS/9SISS9SSS95IS9& mmmmmmmz vzzzszzzzzzzzzzzzm
FISKIMENN Undirstýrimanns- skírteini fiski- skipa: ótakroörkuö stærö og farsviö. Skipstjóra- og. yfirstýrimanns- skírteini: fiski- skip 1600 BRL. föJARNl - FARMENN Skipstjóri: 400 BRL. ótakmarkaö farsviö. Undirstýrimaöur: að 1600 BRL. ótakmarkaö farsviö. i
INNTÖKUSKILYRÐI
Siglingatími,grunnskólapróf, 9. stig í sundi,
heilbrigöisvottorö og augnvottorö frá augnlækni.
J
Tillaga að breyttu skipulagi skipstjómamáms, sem sett var fram í
frumvarpsdrögum haustið 1985, en Ragnhildur Helgadóttir mennta-
málaráðherra skipaði i janúar 1985 nefnd til að endurskoða lög um
skipstjómamám og fella í ein lög, löggjöf um stýrimannaskólana í
Reykjavík og Vcstmannaeyjum.