Morgunblaðið - 13.12.1986, Blaðsíða 83

Morgunblaðið - 13.12.1986, Blaðsíða 83
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 13. DESEMBER 1986 83 Hjónaminning: Jóhann Jónsson og Margrét Arnadóttir Fæddur 28. nóvember 1902 Dáinn 3. desember 1986 Fædd 14. maí 1911 Dáin 3. janúar 1986 Okkur langar að minnast hér afa okkar, Sigurðar Jóhanns Jónssonar, og ömmu okkar, Stefaníu Margrét- ar Ámadóttur, en hún andaðist fyrr á þessu ári. Þegar við fréttum að afi væri dáinn fórum við að rifja upp hvað það var nú alltaf gott að vera hjá „afa og ömmu á Þórs- höfn“, eins og við systkinin vorum vön að kalla þau. Þegar við komum í heimsókn til þeirra var amma allt- af búin að búa um rúmin og elda matinn, á hvaða tíma sólarhrings sem var og alltaf var tekið rausnar- lega á móti okkur. Okkur fannst alltaf eins og við væmm komin heim þegar við voram komin að Lyngholti. Gleði og umhyggjusemi ríkti alltaf þar. Þegar við sátum oft við eldhúsborðið og amma pijónaði sokka eða vettlinga sem við systkin- in eða frændsystkinin fengum að gjöf, þá sögðu þau okkur margar skemmtilegar og fróðlegar sögur sem við munum seint gleyma. í janúar sl. lést amma og fékk það mjög á afa þar sem hann þurfti að flytjast af heimili þeirra, Lyng- holti, sem hann byggði á áranum 1956—58. Báðum þótti þeim mjög vænt um þetta hús. Afi okkar var um margt mjög sérstakur maður. Við fengum að njóta þess að hafa hann hjá okkur í nokkrar vikur í haust. Síðustu mánuðina dvaldi afí hjá yngstu dóttur sinni og fjölskyldu hennar. Amma var mikil hannyrðakona og eftir hana liggur margt fallegt. Hún kenndi okkur systranum að pijóna og einnig kenndi hún okkur margar fallegar bænir, því bæði vora þau trúuð. Ein þeirra er okkur minnisstæðust: Leiddu mína litlu hendi, ljúfí Jesú þér ég sendi, bæn frá mínu bijósti sjáðu, blíði Jesú að mér gáðu. Okkur er það dýrmæt lífsreynsla að hafa kynnst svo elskulegum hjónum sem þau vora. Blessuð sé minning þeirra. Jóhanna, Guðný og Guðmundur. Okkur langar að minnast hjón- anna Margrétar og Jóhanns með nokkram orðum. Elskulega amma og afi era horfin héðan með stuttu millibili. Kynslóð er horfín sem miðl- aði okkur af reynslu sinni og þeim mikla dugnaði og þeirri lífsbaráttu sem þau háðu saman. Það sem ein- kenndi þau helst, var viljinn fyrir því að sjá vel fyrir sér og sínum. Það var mikið á sig lagt, Margrét hugsaði um heimilið og bömin 6, og til að drýgja tekjumar hafði hún menn í fæði og húsnæði. Hún lagði mikla rækt við allt ertilheyrði heim- ili hennar, og bar það þess glögg merki. Jóhann vann við ýmiss konar verkamannastörf, og vetur eftir vetur tók hann sig upp og fór á vertíð til Hafnarfjarðar, hér var þá enga vinnu að fá. Já, oftast þurfti hann að vinna myrkranna á milli til þess að endar næðu saman. Þau byggðu upp tvö hús hér á Þórs- höfn. Það síðara, Lyngholt, stórt og fallegt hús, sem hefur trúlega þótt íburðarmikið á þeim tíma. En vinnan sem lá að baki því að reisa svo stórt hús var mikil, og þá kom dugnaður Jóhanns vel fram. Hann vann að mestu leyti við bæði húsin sjálfur. Já, Lyngholt og garðurinn var stoltið þeirra beggja. Við feng- um að njóta náinna samvista við þau í 2 ár er þau leigðu okkur efri hæðina í Lyngholti. Það er tími sem við eigum eftir að minnast með hlý- hug, því að samvistir við gamla fólkið, það fólk sem hefur lifað tímana tvenna, getur gefíð okkur yngra fólkinu svo ótrúlega mikið. Rafni langar að þakka þeim sér- staklega fyrir þann tíma sem hann dvaldi hjá þeim í Lyngholti á sínum unglingsáram. Ömmu sinni þakkar hann alla uppfræðsluna og hjálpina við námið, og afa sínum fyrir sam- verastundimar á grásleppuvertíð- unum. Góði Jesús, fyrir greftran þín gefðu síðasta útfór mín verði friðsöm og farsæl mér frelsuð sál nái dýrð hjá þér. Hér era að lokum nokkur kveðju- orð til afa, langafa og vinar. Það verður erfítt að sætta sig við það að Jói afí komi ekki oftar í sínar nær daglegu heimsóknir, til þess að spjalla og líta eftir hvort allt væri nú ekki í lagi. Hann sem var svo hress og fylgdist svo vel með öllu sem var að gerast bæði hér á staðnum og í þjóðmálunum al- mennt. Hann var maður alþýðunnar og lét sér mál hennar miklu varða. Hann var svo ungur í anda og út- liti að oft gleymdist okkur hvað árin vora orðin mörg og við héldum, vonuðum að minnsta kosti, að við fengjum að njóta hans miklu leng- ur. En nú þegar hann er horfínn af sjónarsviði þessa heims er okkur efst í huga þakklæti fyrir allan þann velvilja og samhug sem hann sýndi okkur. Þær vora ófáar ferð- imar sem hann kom þegar Rafn var á sjónum, þá hafði hann áhyggj- ur af okkur mægðunum einum heima og af honum úti á sjó. Svona var hann, lét sér svo annt um sína. Og aldrei leið honum vel ef eitthvað af hans fólki var að ferðast á milli. Katrín litla þakkar afa sínum fyrir alla þá ástúð og umhyggju sem hann sýndi henni, og við öll fyrir allt það sem hann gaf okkur. Að lokum viljum við þakka fyrir þá gæfu að hafa átt slíkan afa og vin. Hann var yndislegur maður og mikil persóna sem seint verður lýst með orðum. Fjölskyldan Fjarðarvegi 23, Þórshöfn FALLEG DUKKA er frábær gjöf. Leikfélagi og vinur, sem hún á eftir að eiga lengi. Þýsku dúkkurnar frá Zapf eru vönduð leikföng, sem ekki láta á sjá við misjafna meðhöndlun ungra eigenda. TomsTunonHusiD hf Laugavegi 164, sími 21901 f Ástin á tímum kólerunnar Alveg ný skáldsaga eftir kólumbíska Nóbelsverðlaunahöfundinn Gabríel García Marquez í þýðingu Guðbergs Bergssonar hlýtur að sæta tíðindum á Islandi. Fáir suðuramerískir höfundar hafa notið jafn mikillar hylli meðal íslenskra lesenda og Marquez, og enginn hinna fjölmörgu aðdáenda hans verður svikinn af þessari bók. Þetta er skáldsaga þeirrar gerðar sem lesandinn getur sökkt sér ofan í, og hann berst með straumi frásagnarinnar um leið og honum opnast nýir og spennandi heimar. Hér er sögð einstaeð ástarsaga um Florentíno Aríza, mann sem bíður elskunnar sinnar í hálfa öld, svo gagntekinn Við bjóðum til bókaveislu um þessi jól verður hann á unga aldri af hinni ómótstæðilegu Fermínu Daza. Og meðan lesandinn bíður með honum, sífellt spenntari og vondaufari í senn, skemmtir Marquez honum með ótal frásögnum - af Júvenal Úrbíno lækni og páfagauknum hans, af kínverjanum sem vann bókmenntaverðlaun Gullorkídeunnar, af siglingum fljótaskipafélagsins eftir hinu mikla Magdalenufljóti og mörgu fleiru. Sögusviðið er Kolumbía undir lok síðustu aldar og framan af þessari, og aðferðin það göldrótta raunsæi sem Marquez hefur öðlast heimsfrægð fyrir. Ástin á tímum kólerunnar er 308 blaðsíður og kom fyrst út á spönsku í desember 1985. Verð: 1690.-. Mál og menning
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.