Morgunblaðið - 13.12.1986, Blaðsíða 85

Morgunblaðið - 13.12.1986, Blaðsíða 85
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 13. DESEMBER 1986 85 Dýrfinna Ingvars dóttir - Minning Fædd 7. júlí 1900 Dáin 1. desember 1986 Aðfaranótt 1. desember andað- ist á Hrafnistu í Hafnarfírði tengdamóðir mín, Dýrfínna Ing- varsdóttir, en hún hafði dvalið þar á sjúkradeild frá því í janúar 1983. Síðasta mánuðinn sem hún lifði var hún mjög þungt haldin og því mikil lausn er hún var kölluð brott úr þessum heimi. Á sjúkradeild Hrafnistu hafði hún notið mikillar og góðrar hjúkrunar og verður starfsfólki þar seint fullþakkað fyrir einstaka natni og umhyggju. Minningarathöfn var í Foss- vogskirkju fímmtudaginn 11. desember og annaðist séra Þórir Stephensen Dómkirkjuprestur at- höftiina. Útför Dýrfínnu verður gerð frá Landakirkju í Vestmannaeyjum í dag, laugardag 13. desember, kl. 14.00 og verður hún lögð til hinstu hvíldar í grafreit við hlið eigin- manns síns, Sigurðar Gottskálks- sonar, en hann andaðist í Vestmannaeyjum 1955. Dýrfínna Ingvarsdóttir fæddist 7. júlí 1900 að Hellnahóli undir V-Eyjafjöllum, foreldrar hennar voru Ingvar Einarsson ættaður úr Landeyjum og Ástríður Sigurðar- dóttir kona hans frá Hrauni undir Eyjafjöllum. Er Dýrfínna var níu ára gömul fluttust foreldrar hennar til Vest- mannaeyja en Dýrfínna varð eftir í Hvammi hjá móðurbróður sínum, Magnúsi Sigurðssyni hreppstjóra, og konu hans, Þuríði Jónsdóttur ljósmóður. Þar var Dýrfínna til átján ára aldurs er hún fór til Eyja fýrst og vann þar á vetrar- vertíð, en á sumrum var hún í Hvammi. í Vestmannaeyjum kynntist Dýrfínna eiginmanni sínum, Sig- urði Gottskálkssyni frá Vatnshól í Landeyjum, voru þau gefín sam- an 18. nóvember 1922. Þau bjuggu alla tíð í Vest- mannaeyjum, fýrst í Hraungerði í fjögur ár, Vallatúni þijú ár, en 1929 byggðu þau sér hús á Landa- götu 23 og voru þar í tíu ár þar til þau keyptu Norður-Kirkjubæ 1939 en þar bjuggu þau sveitabú- skap í fimmtán. ár, þessu búi fýlgdu nyt af úteyjum og var það gott búsílag í þá daga. í gosinu 1973 fóru allir þessir staðir undir hraun. Er eiginmaður Dýrfinnu lést 1955 fluttist hún til Reykjavíkur og keypti sér íbúð á Laugavegi 27b, þar bjó hún fyrstu árin með syni sínum Sigurði og Oddhildi, konu hans, og dætrum þeirra. Síðar keypti hún sér íbúð í Álftamýri 10 og bjó þar ein þar til hún fór á Hrafnistu. Fljótlega eftir að Dýrfínna kom til Reykjavíkur fór hún að vinna hjá Sláturfélagi Suðurlands og vann hún þar til ársins 1975 eða um rúmlega tuttugu ára skeið. Eftir að Dýrfínna hætti að vinna hrakaði heilsu hennar ört en hún hélt samt sínu góða skapi, hún hafði ríkt skopskyn og skemmti- lega frásagnargáfu og var óþrjót- andi frásagnarbrunnur af sérkennilegum gömlum orðatil- tækjum. A heimili tengdaforeldra minna var gestrisni í hávegum höfð enda oft gestkvæmt. Sjálfur naut ég þess að dvelja hjá tengda- foreldrum mínum í sumarleyfum og kynnast þeim og álít ég það dýrmæta reynslu í lífí mínu. Á hverju sumri fór Dýrfínna í heimsókn að Hvammi og dvaldi í góðu yfirlæti hjá þeim hjónum Magnúsi og Lóu er þar bjuggu með bömum sínum. Það duldist engum hve hlýjan hug Dýrfínna bar til æskustöðva sinna og vænt- umþykja hennar til ættmenna sinna þar, og öllu er tengdist staðnum. Dýrfínnu og Sigurði varð þriggja bama auðið. Sigurást var elst þeirra, en hún andaðist 1980, eftirlifandi maður hennar er Snorri D. Halldórsson verslunarmaður og býr hann í Reykjavík, þá er Ing- unn gift Þorsteini B. Sigurðssyni flugumferðarstjóra en þau búa í Kópavogi, yngstur er Sigurður Gottharð bifreiðastjóri, kona hans er Oddhildur Guðbjömsdóttir, þau búa í Hafnarfírði. Dýrfínna var næst yngst sjö systkina en þau em öll látin nema Guðbjörg sem býr í Reykjavík. Bamaböm Dýrfínnu, sem em sex að tölu, og bamabamabömin, sem em tólf, vom henni til mikill- ar gleði enda amma og langamma í miklu uppáhaldi og kærleikar gagnkvæmir. Nú er löngum starfsdegi Dýr- finnu lokið og hvíldin kærkomin. Ég er þess fullviss að henni er vel tekið handan móðunnar miklu og að: „þar bíða vinir í varpa, sem von er á gesti." Guð blessi minningu tengdamóð- ur minnar. Þorsteinn B. Sigurðsson Nýjar spennandi ástarsöaur Theresa Charles Undraleiðir ástarinnar Tom og Jósa œtla aö gifta sig. En stríðið o.íl. kemur í veg íyrir þau áíorm. Jósa vinnur á SilíurkambL bú- garði hins unga Nikulásar Darmayne. Jósa laðast einkennilega að hinum sterka og einbeitta Niku- lási, og hún neitar að trúa hinum illgjömu sögu- sögnum um hann, sem ganga meðal íólksins í nágrenninu. Pegar Tom er sagður haía fallið í sthð- inu, er það Nikulás sem hjálpar Jósu upp úr þung- lyndi og örvœntingu. Hann býður henni hjóna- band án ástar. Getur Jósa gifst honum og geíið honum eríingjana sem Silíurkambur þarfnast? UndraleUkir ástarianar Cartland Hvítabtómíð hans Erik Nerlöe Ást og skyldurœkni Hún var nýkomin til litlu eyjarinnar Kratö til að taka þar við starii lœknisinsá eyjunni. Þar fœr hún óvin- veittar móttökur. íbúámir búast ekki við miklu af kvenlœkni. Hún myndi aldrei standa sig í staríinu. En hún sýndi hvers hún var megnug, og sérstak- lega þegar hún barðist fyrir lífi hamingju og íramtíð mannsins, sem hún elskaði. ízb i J Rauðu ástaisögumar eítii höíunda eins og Erik Nerlöe, Else-Marie Nohr og Evu Steen og bœkui Theresu Chailes og Baiböru Cartland haía lengi verið vinsœlar héi á landi. Nú eru komnar út íimm nýjar ástarsögui eítii þessa höfunda. Eldri bœkur þeina íást enn í bókaverzlunum og hjá útgáfunni. Barbara Cartland Hvíta blómiö hans Ivan Volkonski fursti er glœsilegur ungur maður, sem heillar kveníólkið, en hann hefur ekki enn íundið þá konu, sem hann getur fellt sig við. En þegar hann sér hina íögm og hrífandi dansmey, Lokitu, feDur hann samstundis íyrir henni, eins og aðrir hafa gert á undan honum. En það er ekki auðvelt að nálagast hana. Ivan fursta er vísað írá er hann reynii að ná sambandi við hana. Hver er þessi Lokita í raun og vem og hvaðan er hún? Hvers vegna hvílir þessi mikla leynd yíir henni? Svarið við því íœst ekki fyrr en... ‘Else-Marle Mohr ENDURHEIMT HAMINGJA VJ Else-Marie Nohr Endurheimt hamingja Með óbuganlegum kjarki og bjartri trú á ástina tekur hún upp baráttuna við þá, sem vilja steypa henni í glötim — fólkið, sem með leynd reynir að brjóta niður heilbrigði hennar, svo að það geti að lokum komið henni á hœli íyrir ólœknandi geð- sjúklinga og síðan svipt hana öllu Heimili hennar, eignum og barni hennar. Eva Steen Vertu góöur viö Lindu Hún er blind og býr hjá íoreldmm sínum. Dag einn kynnist hún ungum manni, sem fœrir birtu inn í myrkrið, sem umlykur hana. Þau íella hugi saman og allt virðist bjart. En íleira íólk kemur inn í líf hennar. Þegar móðir hennar deyi, gerir einkaritari íöður hennar sig heimakominn á heimili hans; kuldaleg en fögur kona sem aðeins hugsar um sinn eiginn hag. Eva Steen Vertu góður við Undu m Já, þœr eru spennandi ástarsögurnar írá Skuggsjá
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.