Morgunblaðið - 13.12.1986, Page 87
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 13. DESEMBER 1986
87
Jól í París
SANNKÖLLUÐ
KRÁARSTEMMNING
Það er óhætt að fullyrða að fjör
verði í kvöld, því hljómsveitin
Kasínó spilar og syngur til kl. 3.00.
OPIÐ: í hádeginu alla daga kl: 11.30 - 15.
á kvöldin sunnudaga - fimmtudaga kl: 18 - 01
og á föstudögum og laugardögum kl: 18 - 03.
Frakkar halda jólahátíðina að kaþólskum sið og
halda sig á mottunni fram að Jóladegi, ólíkt okk-
ur, sem byijum helst á herlegheitunum á Þorláks-
messu.
Frakkar eru þó búnir að skreyta trén meðfram
breiðgötunni Ódáinsvöllum, eða Champs Eiysées, eins
og Frakkar nefna hana sjálfir. Tugþúsundir ljósapera
hanga í tijánum og tuttugu borgarstarfsmenn sjá til
þess að ekkert fari úrskeiðis, svo að borgarbúar geti
notið dýrðarinnar áfallalaust.
Blóð,
sviti
og
tár
Hinn fímmta desember var
haldin heimsmeistarakeppnin
í veltivigt hnefaleika. Keppnin fór
fram í Las Vegas og stóð milli John
„The Beast“ Mugabi og Duane
Thomas. Thomas fór með sigur úr
býtum, en það er Mugabi, sem á~
myndinni sést kominn að niðurlot-
um. Hann sligast yfír kaðlana og
hefur gripið um andlitið, enda snýtti
hann rauðu. Skömmu síðar stöðvaði
dómarinn keppnina, en þá voru 56
sekúndur liðnar af þriðju lotu.
Veitið sérstaka athygli Ijósmynd-
aranum í hægra horninu, sem
heldur áfram að taka myndir þrátt
fyrr að yfir hann fossist blóð, sviti
og líklega tár.
Wd<aflCDD
VEITINGAHÚS
Vagnhöfða 11, Reykjavík. Sími 685090.
Nýju og gömlu dansarnir
Hljómsveitin Danssporið heldur uppi
stanslausu fjöri til kl. 3 ásamt söng-
konunni Kristbjörgu Löve.
Dansstuðið er í Ártúni.